Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 8

Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 8
Organisiabladið Starfsreglur organista Samþykkt nr. 823/1999 á kirkjuþingi 1999 SkHgrciningar 1. gr. organisti nefnist hver sá sem leikur á orgel og stýrir söng í kirkju. Kirkjuorganisti nefnist hver sá sem lokið hefur námi sem viðurkennt er af Tónskóla þjóðkirkjun- nar og gegnir starfi organ- ista hjá söfnuði sbr. 6. gr. og er óheimilt að nota það starfsheiti um aðra. Ákvæði starfsreglna þessara gilda jafnt um organista og kirkjuorgan- ista. Verksvið organista 2. gr. Verksvið organista skal vera sem hér segir: 1. Að leiða söng safnaðarins í helgihaldinu. 2. Leika á hljóðfæri við guðsþjónustur og aðrar athafnir. 3. Sjá um forsöng, hljóðfæraleik og kórstjón við kirkjulegar athafnir sé eftir því leitað af sóknarbörnum. 4. Sjá um þjálfun kirkukórs og annara kóra við kirkjuna í samráði við sóknarprest og sóknarnefnd 5. Veita leiðsögn og fræðslu, til dæmis ferm- Skyldur organista í starfi 3. gr. Organisti lýtur forystu prests í helgihaldinu og hefur samráð við prest við val á tónlist í helgihaldi eftir því sem við á eða óskað er eftir. Organisti skal í starfi sínu virða hefðir og stefnu kirkjunnar í tónlistarmálum sem og helgi kirkjuhússins. Organista er skylt að gæta þagmælsku um atriði er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrir- mælum vinnuveitanda eða eðli málsins. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. Organista er skylt að sitja fundi sem sók- narnefnd eða sérnefndir á vegum safnaðarins Tónlist á barrok hljóðfæri. Ungi maðurinn með fiðluna á að ver G.F. Handel ingarbörnum, um tónlist í helgihaldi í samráði við sóknarprest. 6. Önnur verkefni á sviði tónlistar sem áskilið er af sóknarnefnd. Verksvið organista skal nánar skilgreint í erindisbréfi, sem sóknar- nefnd setur orgaista, sbr. 7. gr. 8

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.