Organistablaðið - 01.05.2000, Side 13
Organlslablaðið
Jakob Tryggvason
21.01.1907-13.03.99
Jakob var fæddur að Ytra
Hvarfi í Svarfaðardal.
Um fermingaraldur hóf hann
nám í orgelleik hjá Tryggva
Kristinssyni, organista, sem síðar
varð tengdarfaðir hans, síðar
flutti hann til Reykjavíkur og
nam orgelleik hjá Sigurði
Frímanssyni og var um leið við
nám í Samvinnuskólanum. Að
loknu námi þar árið 1927 flutti
hann til Akureyrar og hóf störf á
skrifstofu Kaupfélags Eyfirðinga.
Árið 1931 hélt hann aftur
suður yfir heiðar og sótti einkatíma hjá Páli
ísólfssyni og stundaði nám við
Tóniistarskólann í Reykjavík til ársins 1938.
Jakob var ráðinn organisti við Akur-
eyrarkirkju árið 1941 og sinnti því starfi til
ársins 1986, að unanteknum árunum
1945-1948 er hann var við framhaldsnám við
The Royal Academi of Music í London. Jakob
barðist fyrir kaupum á veglegu orgeli í
Akureyrarkirkju og þurfti oft að heyja baráttu
við úrtöluraddir sem jafnvel héldu því fram að
hagkvæmara væri að losa sig við organistann
og að kaupa bara lítið hljóðfæri, en Jakob stóð
fast á sínu og og samkvæmt hans hugmyn-
dafræði var aðeins það besta nógu gott. Orgelið
var svo vígt 1961.
Jafnframt organistastarfinu var Jakob ken-
nari og skólastjóri við Tónlistarskólann á
Akureyri frá 1950-1974, að einu ári frátöldu og
á þeim tíma óx skólinn og dafnaði upp í að
verða einn stærsti og fjöl-
breyttasti tónlistarskóli lands-
ins. Jafnframt öllu þessu var
hann stjórnandi Lúðrasveitar
Akureyrar um tuttugu ára
skeið og þar var sem og í öllu
öðru er hann tók sér fyrir
hendur smekkvísi og vand-
virkni hans aðalsmerki.
Lúðrasveitin þakkaði honum
með því að sæma hann
gullmerki sínu og gera hann
að heiðursfélaga á 25 ára
afmæli sveitarinnar.
Kirkjukór Akureyrar var ekki eini kórinn eða
sönghópurinn sem Jakob kom nálægt Hann
var einn af fyrstu söngstjórum Kórs
Lögmannshlíðarsóknar, síðar Kórs
Glerárkirkju og gerði sá kór hann að heiðurs-
félaga 1994. Söngfélagið Gígjur var kvennakór
sem starfaði í um 17 ár og allan tímann undir
handleiðslu hans. Ilann var stjórnandi og
undirleikari Smárakvartettsins svo eitthvað sé
nefnt. Hann útsetti fjölda laga fyrir kórana
sína og einnig samdi hann nokkur verk.
Jakob var um árabil formaður
Kirkjukórasambands Eyjafjarðarprófasts-
dæmis og var gerður að heiðursfélaga þess árið
1991. Hann var varaformaður F.Í.O. um árabil
og var gerður að heiðursfélaga félagsins 1991.
Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu árið 1980.
JÓS
13