Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 24
Organistabiaðia
Tvær orgelvígslur í Reykjavík
19. september 1999
/
Aundanförnum árum hafa verið vígð fjölda
mörg ný orgel í kirkjum landsins.
Sunnudaginn 19. september 1999 voru vígð tvö
orgel í Reykjavík og voru þau bæði frá ban-
daríska orgelsmiðnum Fritz Noack frá Boston.
Þetta mun vera einsdæmi í íslenskri orgelsögu.
Það hafa að vísu verið vígð tvö orgel
samdægurs á landinu fyrr, en ekki tvö af
þessari stærð frá sama orgelsmið. Þessi orgel
eru í Langholtskirkju og Neskirkju. í báðum
þessum kirkjum var tónleikaröð í vikunni eftir
vígslu.
Orgelið í Langholtskirkju
er 34 raddir sem skiptast á þrjú hijómborð og
pedal. Orgelið var vígt við messu kl. 11.00 og
var þar m.a. frumflutt orgelverk eftir Hjálmar
H. Ragnarsson sem samið var af þessu tilefni.
Síðar um daginn voru vígslutónleikar þar sem
ameríski orgelleikarinn Peter Sykes lék
orgelverk eftir J. S. Bach.
Mánuaginn 20.09. kl. 12.00
lék ameríski orgelleikarinn Victoria Wagner á
hádegistónleikum.
Þriðjudaginn 21.09. kl. 12.00
lék Árni Arinbjarnarson, organisti
Grensáskirkju og kl. 20.00 voru kór /
Orgeltónleikar þar sem Kór og Gradualekór
Langholtskirkju sungu undir stjórn Jóns
Stefánssonar. þar voru frumflutt nokkur verk:
„Laudate Dominum“ eftir Oliver Kentish
(Davíðssálmur 150 - 1993/8) fyrir barnakór og
orgel. Davíðssálmur 100 „Öll veröldin fagni
fyrir Drottni" eftir Tryggva Baldvinsson, fyrir
Gradualekór Langholtskirkju og orgel. „Ég vil
vegsama Drottin“ eftir Árna Harðarson a capel-
la fyrir Kór - og Gradualekór Langholtskirkju
og „Dies Irae“ eftir Árna Egilsson
(endurskoðað í febr. 1999) fyrir kór og orgel.
Miðvikudaginn 22.09 kl. 12.00
lék Lára Bryndís Eggertsdóttir á orgelið og kl.
20.00 voru orgeltónleikar þar sem Björn
Steinar Sólbergsson, organisti
Akureyrarkirkju, lék á orgelið.
Fimmtudaginn 23.09
lék Kjartan Sigurjónsson, organisti
Digraneskirkju á orgelið og kl. 20.00 voru
orgeltónleikar þar sem organisti kirkjunnar,
Jón Stefánsson, lék verk eftir J. S. Bach.
Föstudaginn 24.09
lék Douglas A. Brotchie, organisti
Háteigskirkju á hádeigistónleikunum kl. 12.00.
Sunnudaginn 26.09 kl. 17
voru síðan orgeltónleikar þar sem prófessor
Michael Radulescu frá Vínarborg lék á orgelið.
24