SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Qupperneq 6
6 13. desember 2009
Ýmsir menn með kunnugleg nöfn hafa spyrnt knetti á
Íslandi gegnum tíðina, þannig voru þeir allir hér á
sama tíma fyrir rúmu ári, Dean Martin hjá KA, Michael
Jackson hjá Þrótti og Prince hjá Breiðabliki. Til að
gæta nákvæmni skal tekið fram að sá síðastnefndi
hefur eftirnafnið Rajcomar en ekki Rogers Nelson.
Það mætti eigi að síður segja manni að skemmti-
atriðin hafi verið af dýrari gerðinni á uppskeruhátíð
leikmanna það haustið.
Martin hefur skotið hér rótum en fáum sögum fer af
leik- og sönghæfileikum hans. Spegilritari hefur heim-
ildir fyrir því að félagar hans norðan heiða kalli hann
iðulega Frank Sinatra. Prince hefur spyrnt hér í nokk-
ur ár en Jackson staldraði stutt við. Ekki liggur fyrir
hvort sá ágæti maður hefur hæfileika á sviði tungl-
göngu.
Ekki eru mörg dæmi um að íslenskir sparkendur
hafi borið sama nafn og kunnir einstaklingar á öðrum
sviðum. Þau eru þó til. Ólafur Jóhannesson er gamalt
og gott íslenskt nafn. Ég var einhverju sinni við-
staddur þegar ungmenni spurði Ólaf Jóhannesson
kvikmyndagerðarmann að nafni. Svaraði hann því til
að hann væri alnafni forsætisráðherra þjóðarinnar á
áttunda áratugnum. Ungmennið starði á hann tóm-
um augum. „Nú jæja,“ sagði Ólafur, „eða þá
landsliðsþjálfarans í fótbolta.“ Ungmennið kveikti
strax á því.
Trúði ekki að hann héti Gylfi
Það kemur sér ekki alltaf vel að eiga fræga alnafna.
Þannig hermir sagan að Gylfa Þ. Gíslasyni leikmanni
Selfoss hafi umsvifalaust verið vikið af velli þegar
hann sagði til nafns um árið. Dómarinn hélt hann
væri að gera grín að sér. Gylfi var á þeim tíma alnafni
menntamálaráðherrans.
Ekki er vitað til þess að Bjarni Benediktsson, nú-
verandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi lent í
vandræðum af þessu tagi meðan hann lék knatt-
spyrnu með Stjörnunni. Afabróðir hans og alnafni var
vitaskuld forsætisráðherra þjóðarinnar á sinni tíð.
Michael Jackson hafði
viðkomu hér á landi
Prince Dean Martin Michael Jackson
F
regnin fór eins og eldur í sinu um heims-
byggðina: Þeir voru búnir að skjóta Bobby
Kennedy. Angist greip um sig. Í grámyglunni í
Manchester á Englandi átti ungur piltur aftur
á móti erfitt með að átta sig á tíðindunum. Hvers vegna
í ósköpunum voru þeir að skjóta Bobby Kennedy?
Hann var bara varamaður.
Góður maður rifjaði í vikunni upp þessa dásamlegu
sögu úr æskuminningum Colins nokkurs Shindlers,
Manchester United lagði líf mitt í rúst. Sumarið 1968
hafði hann aldrei heyrt minnst á Bobby Kennedy for-
setaframbjóðanda vestur í Bandaríkjunum en alnafni
hans var bakvörður í hans ástkæra knattspyrnuliði,
Manchester City. Fjarað hafði undan Kennedy á þess-
um tíma og hann ekki náð að leika nógu marga leiki
veturinn á undan til að fá meistaramedalíu. Er að undra
að aumingja barninu hafi fundist dularfullt að menn
væru að hafa fyrir því að skjóta hann?
Tilefni þessarar upprifjunar var að meiðslavandræði
Arsenal náðu nýjum hæðum í vikunni þegar munstra
þurfti Tom Cruise í stöðu vinstri bakvarðar í Meist-
aradeildarleik í Grikklandi. Arsène Wenger, knatt-
spyrnustjóri Lundúnaliðsins, kom raunar af fjöllum
þegar hann var spurður um málið á blaðamannafundi
fyrir leikinn. „Í mínum huga er aðeins einn Tom Cruise
– sá sem leikur með Arsenal – og hann er mjög góður
leikmaður.“ Líklega fer karlinn sjaldan í bíó.
Tom Cruise er ekki fyrsta stóra nafnið sem skólað er
til í akademíu Arsenal. Á árunum 2004-06 var mark-
vörðurinn Michael Jordan á samningi hjá félaginu.
Hann reyndist á hinn bóginn ekki eins handlaginn og
bandarískur nafni hans og leikur nú með utandeild-
arliðinu Eastbourne Borough. Snemma á tíunda ára-
tugnum skrýddist Jimmy Carter líka búningi Arsenal í
nokkur skipti. Þokkalegur útherji sem áður lék með
Liverpool og Millwall. Mögulega er þörf á því að benda
yngri kynslóðinni á að Carter er alnafni 39. forseta
Bandaríkjanna.
Ýmsir undarlegir leikmenn léku með Liverpool á
þessum árum, þeirra á meðal Ungverjinn István
Kozma. Hann kemur þessari umfjöllun raunar ekkert
við en nafnið er gott og ástæða til að færa það hér í let-
ur.
Yngismeyjar á Evuklæðunum
Margir slitgóðir sparkunnendur muna eftir Ron Harris,
„Brytjaranum“ sem gerði garðinn frægan hjá Chelsea á
árunum 1961-80. Ég ritaði einhverju sinni grein um
kappann og þegar ég var að gúgla hann spruttu yng-
ismeyjar á Evuklæðunum upp eins og gorkúlur. Mér til
mikillar undrunar. Ekki var skýringin sú að „Brytj-
arinn“ hefði verið með „Tígur-heilkennið“ meðan
hann var upp á sitt besta, heldur sú að einn mikilhæf-
asti ljósmyndari heims, sem sérhæfir sig í nekt-
armyndum af kvenfólki, heitir einmitt Ron Harris.
Eiginkonum stuðningsmanna Chelsea er hér bent á,
að hafa augun hjá sér verji bændur þeirra óvenjumikl-
um tíma í að gúgla Ron gamla Harris á netinu.
Það er líka gaman að segja frá því að vígamaðurinn
mikli Tony Adams, sem var fyrirliði Arsenal um langt
árabil, á alnafna sem er raunar frægur fyrir það eitt að
vera faðir kryddpíunnar Victoriu og þar af leiðandi
tengdafaðir Davids Beckhams.
Nokkur dæmi eru um að sparkendur hafi borið sömu
nöfn og óskyldir starfsbræður
þeirra. Besta dæmið er líklega
Gary Michael Stevens, bak-
vörður Everton, og Gary And-
rew Stevens, varnarmaður
Tottenham Hotspur, en báðir
voru í HM-hópi Englendinga í
Mexíkó sumarið 1986. Olli það
misskilningi enda notuðu þeir
félagar yfirleitt ekki millinöfn
sín.
Margir muna eftir Alan
Smith, miðherja Leicester City
og Arsenal á níunda og tíunda
áratugnum. Hann var rétt bú-
inn að leggja skóna á hilluna þegar örgeðja ungmenni
með sama nafni skaut upp kollinum hjá Leeds United.
Smith yngri leikur nú með Newcastle United. Þess má
geta að þriðji maðurinn með þessu ágæta nafni lék með
Torquay United á sjötta áratugnum. Við minni orðstír.
Enda þótt hálfnafnar séu ekki eins skemmtilegir og
alnafnar má til gamans nefna nokkra slíka. Fyrstur
kemur upp í hugann miðvellingurinn Craig Shake-
speare sem lék um árabil með Walsall, WBA og
Grimsby Town. Lítilsigldur sparkandi en þótti með af-
brigðum fríðlima. Hann fór a.m.k. einu sinni með sigur
af hólmi í kjöri á „fallegustu lærum Englands“. Margir
voru víst kallaðir.
Þá er hermt að Bítilóðir missi helst ekki af við-
ureignum Tottenham Hotspur og Sunderland í seinni
tíð, þegar Lennon og McCartney leiða saman hesta sína
– það er Aaron og George.
Skutu
vara-
manninn
Fleiri spark-
endur en Tom
Cruise eiga
fræga alnafna
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Óárennileg sveit á velli: Shakespeare, Tom Cruise, Michael Jordan, Ron Harris, Jimmy Carter og Bobby heitinn Kennedy.
Lítilsigldur spark-
andi en þótti
með afbrigðum
fríðlima. Hann
fór a.m.k. einu
sinni með sigur
af hólmi í kjöri á
„fallegustu lær-
um Englands“.
Margir voru víst
kallaðir.
www.noatun.is
Veislan
hefst í
Nóatúni
OPAL SEAFOOD
BLINIS
20%
afsláttur
OPAL SEAFOOD
GRAFINN OG
REYKTUR LAX
15%
afsláttur