SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 20

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 20
20 13. desember 2009 Foreldrar í leit að barninu sínu Helga Einarsdóttir, ráðgjafi hjá Barnavernd, var á bak- vakt um helgina þar sem hún þurfti að sinna ýmsum málum B örn í vímuefnaneyslu sem höfðu stungið af frá heimilum sínum voru stærstu verkefni Helgu Ein- arsdóttur ráðgjafa hjá Barna- vernd Reykjavíkur um helgina. Helga segir þetta hafa verið nokkuð dæmigerða helgi. Mikill tími hafi farið í að afgreiða símtöl, en sem betur fer hafi ekkert mál komið upp sem varðaði lítil börn. Bakvakt Helgu byrjaði þegar kl. 16:15 á föstudegi þegar skiptiborðinu hjá Barna- vernd var lokað og stóð til kl. 8:15 á mánu- degi. Þegar vaktin hófst lá strax fyrir eitt verkefni sem hún þurfti að sinna undir eins. Ástæðan var sú að annar tveggja eft- irlitsmanna Barnaverndar var veikur og þurfti Helga að hlaupa í skarðið fyrir hann samhliða öðrum verkefnum. Eitt af hlut- verkum eftirlitsmanna er að sinna eftirliti í umgengnismálum. Þetta eru mál þar sem sýslumaður eða dómari hefur úrskurðað um umgengni foreldra við barn sitt. Slíkur úrskurður er felldur vegna þess að foreldrar hafa ekki getað komið sér saman um hvernig umgengni skuli háttað. Í nokkrum málum er úrskurðað á þann veg að um- gengni skuli vera undir eftirliti og fara fram á hlutlausu svæði, þ.e. ekki á heimili föður eða móður. Kl. 16:30 sótti Helga barnið og fór með það þangað sem umgengnin átti að fara fram. Faðirinn mætti hins vegar ekki og því sneri hún fljótlega heim með barnið. Kl. 18 á laugardegi hringdi lögregla í Helgu og tilkynnti að unglingur hefði gerst brotleg- ur við lög. Foreldrar sóttu barnið á lög- reglustöðina. Helga sagði að í svona málum væri fulltrúi frá Barnavernd viðstaddur yf- irheyrslur yfir barninu. Það kæmi fyrir að skýrslur væru teknar af barni um helgi, en í þessu máli hefði verið ákveðið að bíða fram yfir helgi. Kl. 24 á laugardegi hringdi móðir í Helgu og sagði frá því að dóttir hennar hefði rokið út af heimilinu og hún vissi ekkert hvar hún væri. Helga hafði samband við lögreglu og bað hana að reyna að grafast fyrir um hvar stúlkan gæti verið. Jafnframt var ákveðið að henni yrði tryggð neyðarvistun á Stuðl- um um leið og hún kæmi í leitirnar þar sem grunur léki á að hún væri í fíkniefnaneyslu. Helga sagði mál af þessu tagi ekki óal- geng. Ágreiningur kæmi upp á heimili milli unglinga og foreldra, þau rykju út eða strykju að heiman og þá væri reynt að finna börnin og vinna úr vanda þeirra. Stundum færu börnin tímabundið í neyðarvistun ef þau væru í vímuefnaneyslu eða á heimili í Hraunbergi, sem Reykjavíkurborg rekur, meðan verið er að vinna úr erfiðleikum barnsins eða erfiðum samskiptum barns við foreldra. Kl. 10:30 á sunnudag hringir önnur móðir og tilkynnir að barn hennar hafi ekki skilað sér heim í sólarhring. Helga biður lögreglu að hefja eftirgrennslan. Kl. 16 hringir móð- irin aftur og hafði þá náð sambandi við fé- laga barnsins sem taldi sig vita hvar það væri. Kl. 17 hefur móðirin enn samband og segir að það hafi skilað sér heim. Helga sagði að það væri alltaf álitamál hvenær ætti að stíga það skref að auglýsa eftir unglingi sem væri saknað. Ekki væri endilega grunur um að unglingnum væri bein hætta búin. Hann væri einhvers stað- ar í húsaskjóli, en ekki endilega í æskileg- um félagsskap. Kl. 12 á sunnudegi hefur fósturfaðir sam- band. Fram kemur að tveir unglingar, sem voru vistaðir á fósturheimili, hafa strokið að heiman, beinlínis í þeim tilgangi að fara út að skemmta sér og komast í vímu. Báðir unglingarnir hafa sögu um neyslu vímu- efna. Aðeins er eitt laust pláss í neyð- arvistun á Stuðlum. Helga sagði að það væri erfitt að vera í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli barnanna; hvort barnið ætti að fara að Stuðlum og hvað ætti þá að gera við hitt barnið. Þetta mál hefði verið leyst þannig að annað barnið fór heim til foreldra sinna. Mál beggja unglinganna voru síðan skoðuð strax eftir helgi. 3-5 pláss í neyðarvistun eru á Stuðlum, þar eru þau vistuð vegna afbrota, vímu- efnaneyslu, útigangs eða annarrar áhættu- hegðunar. Unglingarnir eru læstir inni tíma- bundið meðan víman er að renna af þeim og verið er að taka ákvörðun um næstu skref. Helga sagði að það kæmi reglulega fyrir að ekki væri pláss fyrir öll börn sem þyrftu að fara í neyðarvistun. Reynt væri að leysa mál eftir öðrum leiðum. Kl. 13:30 á sunnudag hafði lögreglan sam- Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Ein- arsdóttir ráðgjafi hjá Barnavernd takast á við ýmis konar verkefni í starfi sínu. Morgunblaðið/Árni Sæberg náinna ættingja, afa og ömmu eða systk- ina. Hún segir að stundum stígi ættingjar fram þegar mál séu búin að vera í vinnslu hjá Barnavernd í talsverðan tíma og bjóð- ist til að taka barnið í fóstur. Mál geti þá verið komin í þá stöðu að barnið sé í tíma- bundnu fóstri sem gangi vel og þá vakni spurningin hvort taka eigi barnið út af því heimili til að fara inn á annað fósturheim- ili. Halldóra segir að sumir upplifi það sem mikla höfnun þegar boði um að taka barn í fóstur er ekki tekið. Áður fyrr fóru börn sem fóru í varanlegt fóstur til vandalausra oftast til fósturfor- eldra sem bjuggu úti á landi. Halldóra seg- ir þetta vera arf frá þeim tíma þegar fólk taldi að börnum væri hollast að alast upp í sveit frekar en á „mölinni“. Hún segist hafa hvatt til þess að fósturforeldrum á höfuðborgarsvæðinu sé fjölgað. Þeim hafi verið að fjölga sem sé fagnaðarefni. Þetta auðveldi eftirlit með börnunum, auðveldi samskipti foreldra við börn sín og tryggi aðgang barnanna að sálfræðiþjónustu. Þó börn í varanlegu fóstri eigi rétt á samskiptum við foreldra sína er lögð áhersla á að þau tengist fósturforeldrum sínum sem traustustum böndum. Hall- dóra segir að auðveldara sé að mynda slík tengsl þegar börnin eru ung. Það geti verið erfitt fyrir barn sem er að komast á ung- lingsár og hefur búið við lítið aðhald á heimili sínu að aðlagast fósturforeldrum sem fylgi föstum reglum t.d. um mat- artíma, svefn og fleira. Margir koma að erfiðustu málunum Frásagnir um illa meðferð á börnum sem send voru á vistheimili fyrir nokkrum áratugum hafa verið áberandi síðustu misserin í kjölfar skýrslu vistheim- ilanefndar. Halldóra segir að þessar upp- lýsingar hafi vissulega smitast yfir á um- ræður um barnaverndarmál í dag. Halldóra segir að eftirlit sé haft með fósturheimilum í dag. Rætt sé við börnin, þeirra vitjað og kallað eftir upplýsingum frá skólum. Hún segir allt gert til að tryggja að börnum líði vel á fósturheim- ilum, en það sé ekki hægt að lofa því að aldrei sé farið illa með börn sem fari í fóst- ur. Halldóra segir mikilvægt að átta sig á að það sé enginn einn aðili sem taki ákvörðun um að setja barn í varanlegt fóstur. Fleiri en einn starfsmaður Barnaverndar komi að málum, teknar séu ákvarðanir eftir umræður á fundum og eftir samráð við Barnaverndarstofu. Þessi mál séu lögð fyrir barnaverndarnefnd þar sem þau séu rædd og niðurstaða nefndarinnar sé ekki alltaf samhljóða tillögu starfsmanna Barnaverndar. Í þessum erfiðu málum fái foreldrar alltaf lögfræðiaðstoð, oft að frumkvæði Barnaverndar. Foreldrar eiga þann kost að vísa málum til Barnavernd- arstofu, kærunefndar og einnig að bera þau undir dómstóla. Sár sem aldrei gróa Þegar grunur vaknar um kynferðislegt of- beldi gagnvart börnum eru viðbrögð Barnaverndar þau að taka grunsemdir alltaf alvarlega. Þetta getur leitt til mjög harkalegra aðgerða eins og að börn séu sótt í skóla og fjarlægð fyrirvaralaust af heimilum. Einstaka sinnum fari sá sem grunaður er um ofbeldi út af heimilinu, en ekki alltaf. „Mál af þessu tagi eru með því versta sem nokkur fjölskylda getur gengið í gegnum. Jafnvel þó að grunur um ofbeldi reynist ekki réttur verða til sár sem gróa stundum aldrei. Fólk er þá eðlilega mjög reitt út í okkur. Við lítum hins vegar svo á að barnið verði alltaf að njóta vafans.“ Barnavernd Reykjavíkur kemur stund- um að málum þegar ágreiningur er milli foreldra um umgengni. Stofnunin veitir umsögn í umgengnismálum og starfs- menn eru t.d. í því hlutverki að keyra börn á milli foreldra. Stöð 2 fjallaði nýver- ið um mál barns sem var tekið grátandi af heimili sínu í fylgd lögreglu, starfsmanns sýslumanns og Barnaverndar. Í því máli var um að ræða svokallaða aðfarargerð, en slík mál eru mjög fátíð. Málið er þá búið að fara alla leið innan kerfisins og dómari er búinn að dæma að barn eigi að njóta um- gengi við föður sinn. Aðfarargerð felur í sér að verið er að fylgja eftir ákvörðun dómara. Halldóra segist vera þeirrar skoðunar að barnaverndarnefndir eigi ekki að hafa stórt hlutverk í umgengismálum. Nefnd- irnar verði hins vegar að sinna þeim verk- efnum sem löggjafinn felur þeim. Foreldrar sem tengjast inn í heim glæpa Hversu langt eiga barnaverndaryfirvöld að ganga í að hafa afskipti af umönnun barna, þegar foreldrar, annað eða bæði, tengjast inn í heim glæpa? Við þessari spurningu er ekkert augljóst svar. Halldóra segir að Barnavernd berist öðru hverju ábendingar um að mæður séu að stunda vændi. Hún segir að það sé að nokkru leyti siðferðileg spurning hvort grunur um vændi foreldra eigi að leiða til afskipta Barnaverndar. Í slíkum málum skoði starfsmenn aðstæður barnanna al- mennt. Halldóra segir að starfsmenn Barna- verndar hafi haft afskipti af einstæðum mæðrum sem tengist inn í heim glæpa. Mæðurnar séu ekki endilega í vímu- efnaneyslu, en séu kannski í þessum að- stæðum vegna þess að þær ætli sér „að Fjöldi tilkynninga - skipting eftir tegund Áhættuhegðun barna: 1.602 Ofbeldi: 601 Heilsa eða líf ófædds barns í hættu: 18 Vanræksla: 1.426 Vanræksla alls: ..................1.426 Vanræksla varðandi umsjón og eftirlit: 1.221 Þ.a. foreldrar í áfengis- og fíkniefnaneyslu: 236 Tilfinningaleg vanræksla: 162 Vanræksla varðandi nám: 24 Líkamleg vanræksla: 19 Ofbeldi alls: .......................601 Líkamlegt ofbeldi: 246 Tilfinningalegt/sálrænt ofbeldi: 234 Þar af heimilisofbeldi: 75 Kynferðislegt ofbeldi: 121 Áhættuhegðun alls: ..................1.602 Afbrot barns: 687 Stefnir eigin heilsu og þroska í hættu: 520 Neysla barns á vímuefnum: 186 Barn beitir ofbeldi: 124 Erfiðleikar barns í skóla, skólasókn áfátt: 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.