SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 30
F
átt stóð betur af sér
hrunið er bókin. Það má í
það minnsta ráða af því
meðal annars að bóksala á
síðasta ári, hrunsárið, var með
besta móti og ekki er annað að
merkja en sala á þessu ári verði
líka góð þó heimildir Morg-
unblaðsins bendi til þess að enn
sem komið er sé hún eitthvað
minni en á síðasta ári, líkt og önn-
ur smásala reyndar.
Ein af þeim skýringum sem
menn hafa gripið til þess að skýra
það að hrunið hafi ekki náð til
bókanna er að í þrengingum leiti
fólk í skáldskapinn. Vissulega
skemmtilega rómantísk skýring og
góð til síns brúks við útlendinga,
en líklegri skýring að verðið hafi
haft sitt að segja, enda héldu út-
gefendur aftur af sér í verðhækk-
unum á síðasta ári og söluaðilar
ekki síður.
Hvað söluna fyrir þessi jól varð-
ar ætti verðið ekki að standa í veg-
inum, því þó verð frá forlagi hafi
almennt hækkað eitthvað hefur
verð á bókum lítið hækkað milli
ára (og reyndar lítið hækkað síð-
asta áratuginn eða svo, því verðið
hækkaði ekki í krónum frá 2001 til
2008 – á sama tíma hækkaði vísi-
tala neysluverðs um 44%).
Halló kisa
Þegar rýnt er í Bókatíðindi má sjá
ýmislega þróun sem fer kannski
framhjá manni dags daglega;
hvern hefði til að mynda grunað
að nýtt æði í íslenskum barnabók-
um væri bækur um japanska kisu?
Málið er nefnilega það að fátt er
vinsælla nú um stundir fyrir ungar
stúlkur en Hello Kitty bækurnar
sem Edda gefur út. Í haust komu
út fjórar Hello Kitty bækur: Fjöl-
skyldan mín, Góður dagur, Í góðu
skapi og Litir og tölur sem allar
hafa selst mjög vel. Edda á aðra
metsölubók á listum fyrir þessi jól,
því innbundin jólasyrpa fyrirtæk-
isins með sögum af Andrési Önd
stökk beint í annað sætið yfir mest
seldu barnabækurnar í síðustu
viku og selst enn vel.
Annað sem menn hafa rekið
augun í er að bækur um tónlist eru
óvenju margar þetta árið og þá
helst ævisögur tónlistarmanna því
út hafa komið ævisögur Vilhjálms
Vilhjálmssonar, Gylfa Ægissonar,
Jóns Leifs, Þórunnar Ashkenazy,
Guðmundar „Papa jazz“ Stein-
grímssonar og Magnúsar Eiríks-
sonar, en einnig kom út bókin 100
bestu plötur Íslandssögunar,
nótnabókin 36 jazzlög með lögum
eftir Sigurð Flosason og Stóra
söngbókin með gítarhljómum Jó-
hanns Ísbergs við 240 lög. Í þessari
samantekt vekur athygli að nýtt
forlag, Sena, á tvær af þessum
bókum sem báðar hafa selst af-
skaplega vel; Súddirarí rei, end-
urminningar Gylfa Ægissonar, og
Söknuð, ævisögu Vilhjálms Vil-
hjálmssonar.
Pollýanna og Adda
Eins er vert að gefa endurprenti á
gömlum bókum gaum, ekki síst
þegar litið er yfir sölulista. Í fyrra
var það Pollýanna sem mokseldist
og nú er höggvið í sama knérunn
með Öddubókunum eftir Jenný og
Hreiðar – hreint endurprent með
gömlu bókarkápunum. Þær bækur
hafa reyndar ekki gengið eins vel
og Pollýanna, en vísbending um
það sem koma skal; mín spá er að
fjölmargir muni feta sömu slóð og
gefa út að nýju óbreytta gamla
klassík. Annað dæmi um það
hvernig slíkt getur heppnast mjög
vel er sú sígilda bók Matur og
drykkur eftir Helgu Sigurðardóttir
sem Opna gefur út og hefur runnið
út eins og heitar lummur frá því
hún kom út.
Að því sögðu þá er útgáfa á mat-
reiðslubókum í einhverskonar
lægð, því þær sýnist mér vera
færri en á síðustu árum, en hand-
bækur hverskonar hafa aftur á
móti sótt í sig veðrið, til að mynda
mokast prjónabækur út (Prjóna-
dagar 2010, Prjónað á börn, Prjón-
að í dagsins önn, Prjónaperlur,
Vettlingauppskriftir, Prjóniprjón)
og aðrar handavinnu, tónstunda
og föndurbækur; bútasaumur
(Bútasaumur í rauðu og hvítu),
golf (Enn betra golf), jólaföndur
(Föndur-jól), veiði (Silungaflugur í
íslenskri náttúru, Skotvopnabókin,
Veiðar á villtum fuglum og spen-
dýrum, Vötn og veiði – Stanga-
veiði á Íslandi 2009), útivist (Heit-
ar laugar á Íslandi, Hrafnkels saga
Freysgoða – Kort og gönguleiðir)
og matjurtir / sveppir Matjurtir –
Handhægur leiðarvísir fyrir rækt-
endur, Matsveppir í náttúru Ís-
lands).
Kreppa á kreppu ofan
Kreppan er mönnum ofarlega í
huga og kemur varla á óvart að
bækur þar sem kreppan kemur við
sögu séu fyrirferðarmiklar í útgáf-
unni fyrir þessi jól. Sumar bækur
reyna að nálagst efniviðinn á sagn-
fræðilegan hátt, til að mynda Um-
sátrið – Fall Íslands og endurreisn
eftir Styrmi Gunnarsson, sem er
meðal söluhæstu bóka, en einnig
hafa komið út slíkar bækur eftir
Ásgeir Jónsson (Af hverju Ísland?
Lítil þjóð – stórt hrun), Guðna Th.
Jóhannesson (Hrunið – Ísland á
barmi gjaldþrots og upplausnar),
Einar Má Guðmundsson (Hvíta
bókin), Ólaf Arnarson (Sofandi að
feigðarósi) og Ármann Þorvaldsson
(Frozen Assets).
Þeir sem fást við skáldskap (að
því slepptu hve mikill hluti ofan-
greindra hrunbóka byggist á
skáldskap og / eða óskhyggju) hafa
líka skrifað um hrunið eða nýtt
það sem efnivið eða leiktjöld og
skraut í verkum sínum. Einhverjir
hissa sig kannski á því hve margar
bækur eru markaðar hruninu á
einn eða annan hátt, en ætti ekki
að koma á óvart í ljósi þess að rit-
höfundar sækja alla jafna efnivið í
sinn samtíma.
Af skáldverkum má til að mynda
nefna Rigningin gerir ykkur frjáls
eftir Hauk Má Helgason, Drauga-
borg eftir Óttar M. Norðfjörð,
Bókasafn Ömmu Huldar eftir Þór-
arin Leifsson, Færeyskan dansur
eftir Huldar Breiðfjörð, Blómin frá
Maó eftir Hlín Agnarsdóttur,
Hjartslátt eftir Ragnheiði Gests-
dóttur, Vormenn Íslands eftir
Mikael Torfason, Núll núll 9 eftir
Þorgrím Þráinsson, Ljóðorkuþörf
eftir Sigurð Pálsson, Ljóðveldið Ís-
land eftir Sindra Freysson, Ein-
eygða köttinn Kisa eftir Hugleik
Dagsson, Síberíu eftir Fritz Má
Jörgensson, Horfðu á mig eftir
Yrsu Sigurðardóttir, Síðustu dagar
móður minnar eftir Sölva Björn
Sigurðsson, Gæsku eftir Eirík Örn
Norðdahl, Alltaf sömu söguna eftir
Þórarinn Eldjárn og Bankster eftir
Guðmund Óskarsson.
Góðærið mikla þegar allir ætluðu
að græða rosalega kemur líka við
sögu í nokkrum bókum, til að
mynda Svörtuloftum Arnaldar
Indriðasonar, Hinu fullkomna
landslagi Rögnu Sigurðardóttur og
Hyldýpi Stefáns Mána.
Jólabækurnar
Hrun, tónlist, kisur og handbækur
Á síðasta ári seldust bækur betur en nokkru sinni fyrr á Íslandi og ekki ástæða til að ætla
annað en að salan verði áþekk á þessu ári, þó hún fari rólega af stað. Breytingar í bóksölu eru
hægfara, en sitthvað forvitnilegt kemur í ljósi þegar rýnt er í lista yfir útgáfubækur ársins.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
02000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
Íslenskar
barnabækur
Þýddar
barnabækur
Íslensk
skáldverk
Þýdd
skáldverk
Ljóð
Ævisögur
Fjöldi
bókatitla
eftir árum
í völdum flokkum
88
61
54
51
36
30
82
75
82
78
45
38
186
Eins og sjá má hafa verið tiltölulega litlar breytingar á fjölda titla í helstu útgáfu-
flokkum, en aðal breytingar síðustu tvö ar hafa kannski verið að smáforlögum
hefur vaxið fiskur um hrygg. Þetta sést til að mynda á ævisögum; á síðasta ári
komu út 40 ævisögur 15 forlaga, en á þessu ári 45 ævisögur 21 forlags. Mikill
samdráttur í útgáfu á þýddum barnabókum skýrist af gríðarlegu gengisfalli
krónunnar, en talsvert af þessum bókum voru svokallað samprentsbækur og
prentaðar erlendis.
30 13. desember 2009