SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 38
38 13. desember 2009
„Það varð til
þess að hann
var valinn á
forsíðu Time árið
1938 og fjallað um á mörgum opnum,
eins og hann væri forseti Bandaríkjanna.“
H
ans Kristján Árnason hefur unnið að
sögu Íslendingsins Holgers Cahill með
hléum undanfarinn áratug, en Cahill
hét til 27 ára aldurs Sveinn Kristján
Bjarnarson, fæddur á Breiðabólsstað á Skógar-
strönd. „Foreldrar hans, Vigdís Bjarnadóttir og
Björn Björnsson, voru frá Hraunholti í Kolbeins-
staðahreppi og Syðri-Rauðamel í Eyjahreppi,“ seg-
ir hann. „Þau voru bláfátæk vinnuhjú hjá prófast-
inum á Breiðabólsstað og flúðu land í eymdinni árið
1889, fyrst til Winnipeg, en skömmu síðar til
Pembina, rétt fyrir sunnan landamærin í Kanada.
Það voru nokkur Íslendingaþorp á þessu svæði,
enda fluttu héðan allt á 20 þúsund manns á árunum
1873-1910.
Þegar Sveinn Kristján var níu ára skildu foreldrar
hans. Þau voru vinnuhjú hjá bændum, en pabbi
hans fann sig aldrei vestanhafs, hallaði sér að flösk-
unni, missti vinnuna og hrökklaðist að heiman.
Móðir hans varð fárveik, fékk taugaáfall, og var þá
með tvö börn, systur hans líka. Hún kom honum
fyrir hjá íslenskum hjónum á sveitabæ í 50 km fjar-
lægð, sem reyndust honum illa. Hann var þar í tvö
ár, en þá flutti móðir hans nær honum og tók sam-
an við Vestur-Íslending, sem kallaði sig Samson,
og var 20 árum yngri en hún.
En Sveini Kristjáni lynti ekki við nýja stjúpföð-
urinn, reifst við móður sína og strauk að heiman til
Winnipeg. Hann hélt að þar gæti hann búið hjá
skyldmennum sínum af Snæfellsnesi, en þau vildu
ekkert með hann hafa og komu honum fyrir á
munaðarleysingjahæli í Winnipeg. Þaðan fór hann
til írskra hjóna á sveitabæ og var þar í tvö ár, fór svo
aftur til móður sinnar, en strauk endanlega 15 ára.
Næstu árin þvældist hann um Bandaríkin og Kan-
ada, lagði járnbrautateina, smalaði kúm og gekk í
ýmis verkamannastörf. Svo varð hann kyndari á
vöruflutningaskipi til Sjanghæ, en flúði kóleruna á
skip til Japan og Hong Kong, en náði svo skipi aftur
til Vancouver.
Hann þvældist áfram um Bandaríkin, kom til St.
Paul í Minnesota árið 1906, 19 ára gamall. Þar vann
hann sem bókari og notaði kaupið sitt til að kaupa
bækur, allt ritsafn Tolstojs, Wilde og Shaw, en
draumur hans var alla tíð að verða rithöfundur.
Móðir hans heyrði síðast til hans árið 1907 þegar
hann sagði í einlægu og ástríku bréfi frá ævintýrum
sínum.“
Dularfulla mannshvarfið
Svo spurðist ekki aftur til hans fyrr en árið 1913
þegar hann skráði sig í kvöldskóla í New York-
háskóla, í bókmenntum og blaðamennsku, að sögn
Hans Kristjáns. „Hann kom sér fyrir meðal lista-
manna í Greenwich Village, það varð fjölskylda
hans og þar átti hann heima, í yfirfærðri merkingu.
Fljótlega varð hann blaðamaður í einu úthverfinu
og þegar ritstjórinn fór í framhaldsnám varð hann
ritstjóri.“
Ein af ráðgátunum við ævi Cahills, er að ekki eru
til neinar heimildir um tímann frá 1907 til 1913.
„Við vitum ekkert hvað gerðist þann tíma,“ segir
Hans Kristján. „En hann reyndi að fela þessi ár og
þegar hann varð ritstjóri birtust fyrstu greinarnar
undir nýju nafni. Nú hét hann Edgar Holger Cahill.
Hann yngdist um sex ár, sagðist vera fæddur árið
1893, en ekki 1887. Í þriðja lagi skipti hann um fæð-
ingarstað, fæddist á árbakka Mississippi-fljótsins í
Minnesota, en ekki á Íslandi. Svona faldi hann upp-
runa sinn og hvarf inn í bandarískt þjóðfélag, hafði
ekkert samband við Íslendinga. Hann endurskap-
aði sjálfan sig eins og „The Great Gatsby!“
Cahill varð snemma þekktur fyrir skrif sín, fyrst
um rithöfunda og svo myndlist. Honum var boðið
af sænsku fréttastofunni í New York til Svíþjóðar,
til þess að kynnast sænskri menningu, og ferðaðist
um Norður-Evrópu, þó ekki til Íslands. Þar kynnt-
ist hann alþýðulist, menningararfi sem Svíar höfðu
hlúð að, en Bandaríkjamenn vanrækt. Og það varð
hans sérgrein er hann sneri aftur, að hefja alþýðu-
list til vegs og virðingar í Bandaríkjunum. Upp úr
því réð eiginkona John D. Rockefeller Junior III,
sem var af ríkustu fjölskyldu Bandaríkjanna, hann
til að koma upp alþýðulistasafni.
Cahill kvæntist árið 1922 og eignaðist dóttur, sem
nú er 87 ára og doktor í málvísindum. Þau skildu og
fór hún með barnið til Detroit. En hún var óreglu-
söm listakona, sem teiknaði myndasögur í blöð, en
náði aldrei fótfestu í lífinu, og hann tók aftur yfir
uppeldi dóttur sinnar þegar hún var sex ára gömul.
Um svipað leyti tók hann saman við stórmerkilega
konu, Dorothy C. Miller, sem varð fyrsti listfræð-
ingur nýlistasafnsins MoMA í New York, þegar það
var stofnað árið 1929, og þar með valdamesta
manneskja í bandaríska myndlistarheiminum í
hálfa öld. Það var hún sem gerði fólk frægt, setti
upp sýningar með málverkum og skúlptúrum.“
Og þegar forstjórinn Alfred H. Barr fór í frí til
Evrópu árið 1932 í rúmt ár, þá leysti Holger Cahill
hann af. „Hann setti upp nokkrar sýningar með
konu sinni og braut blað í bandarískri myndlist-
arsögu, því það voru verk listamanna frá Mið- og
Suður-Ameríku, m.a. Frida Kahlo og Diego frá
Mexíkó. Þau opnuðu þennan heim fyrir Banda-
ríkjamönnum. En draumurinn var að skrifa bækur.
Hann sendi frá sér skáldsögu árið 1927, The Yankee
Adventurer, sem fékk fína dóma. En það gekk
erfiðlega að finna tíma til skrifta.“
Á forsíðu Time
Og ævintýrið var rétt að hefjast. „Árið 1935 kallaði
Hvíta húsið Cahill á fund til sín. Harry Hopkins,
hægri hönd Roosevelts, bað hann um að verða for-
stjóra yfir stofnun sem ætlað var að hjálpa lista-
mönnum í kreppunni miklu. Eftir nokkrar fortölur
tók hann það að sér. Um tíma fengu 5 þúsund lista-
menn 100 dollara mánaðarlaun, svo þeir gætu sinnt
myndsköpun, leiklist og tónlist. Starfsmenn voru
mörg hundruð og settar upp 100 listamiðstöðvar
um allt land. Það varð til þess að hann var valinn á
forsíðu Time árið 1938 og lagðar fleiri opnur undir
hann, eins og hann væri forseti Bandaríkjanna.
Á þeim tíma var Cahill með útvarpsþætti um
myndlist, eilíft til umfjöllunar í blöðum og stóð á
hátindi frægðar sinnar. En háður var mikill slagur
um það á vettvangi stjórnmálanna, hvort stofnunin
ætti að lifa, og hann var gjörsamlega búinn, orðinn
slitinn maður, þegar stofnunin var loks lögð niður
árið 1943. Þá ákvað hann að einbeita sér að skrif-
um, konan hans gerði honum það kleift, en þau
áttu litla íbúð í Greenwich Village og bárust aldrei
á. Hann lést árið 1960, en Dorothy Miller ekki fyrr
en 45 árum síðar, 99 ára.“
– Þannig að þú hefur kynnst henni?
„Já, ég hitti hana í New York. Og ég heyrði frá
henni og dóttur hennar, Jane Ann, um dramatískt
uppgjör sem enn átti eftir að eiga sér stað. Cahill fór
varla út úr húsi, nema þegar hann frétti af góðum
hnefaleikum. Annars skrifaði hann heima og hélt
stundum kvöldverðarboð, en hann þótti fínn
kokkur. Árið 1947 veiktist hann og lagðist í rúmið.
Hann hafði farið í nokkra hjartauppskurði um æv-
ina, en læknarnir kunnu engin ráð í þetta skipti. Þá
áttaði Dorothy sig á því, að vandamálið væri dýpra,
sorg og sektarkennd plagaði hann, viðskilnaðurinn
við móður og systur. Hún sendi skeyti um allar
trissur, til að leita að systur hans, því hæpið var að
móðir hans væri enn á lífi.
Hans Kristján Árnason sendir frá sér tvo mynddiska fyrir jólin um kunna
Vestur-Íslendinga, báða með dulnefni, Holger Cahill og William Stephenson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Holger Cahill var áhrifamikill í list-
um og komst á forsíðu Time.
Komdu
sæll míster
Það er stafli af bókum og diskum á borðinu og Hans Krist-
ján Árnason kominn í stellingar sögumannsins, en hann
sendi nýverið frá sér heimildarmyndina Frá torfkofa á for-
síðu Time um lífshlaup Holgers Cahill, og mynddisk um Ís-
lendinginn, sem stofnaði CIA og var fyrirmynd James Bond.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Kvikmyndir