SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 19
13. desember 2009 19  Dæmi um að börn séu skilin eftir á Íslandi Barnavernd Reykjavíkur þarf í auknum mæli að hafa afskipti af börnum af erlendum uppruna D æmi eru um að útlendingar, sem hér starfa um lengri eða skemmri tíma, hafi skilið börn sín eftir í umsjón vinafólks, þar sem þau eru stundum svo mánuðum eða árum skiptir. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir að útlendingar, sem hér búa hafi í sumum tilvikum talsvert önnur viðhorf til umönnunar barna en almennt tíðkist hér á landi. Nokkur umræða hefur verið á hinum Norðurlönd- unum um hvernig tekið skuli á málum útlendinga sem grunur leikur á að hugsi ekki nægilega vel um börn sín. Halldóra segir að því sé ekki að neita að viðhorf til lík- amlegra refsinga á börnum séu önnur hjá sumum út- lendingum sem hér búa. Viðhorf til kynjahlutverks séu líka önnur. Samkvæmt barnaverndarlögum er bannað að beita börn líkamlegum refsingum, þar með talið að flengja börn. Sumum útlendingum komi þetta á óvart og þeir spyrji hvernig þeir eigi að tryggja að börn hlýði ef ekki megi beita líkamlegum refsingum. Reynt sé að leiðbeina þeim. Meðal starfsmanna Barnaverndar sé talsvert rætt um hvort eigi að taka á málum Íslendinga af er- lendum uppruna með öðrum hætti en annarra Íslend- inga. Hún segist sjálf þeirrar skoðunar að börn útlend- inga eigi ekki að fá aðra meðferð af hálfu Barnaverndar en önnur börn. Það eigi ekki að umbera ofbeldi gagn- vart þeim vegna þess að þau séu af öðrum uppruna. Komu með lítil börn til landsins til að stela Eitthvað hefur borið á því undanfarin misseri að fólk hafi komið til Íslands beinlínis í þeim tilgangi að fara ránshendi um landið. Nýlega þurfti Barnavernd Reykja- víkur og lögregla að hafa afskipti af hjónum með tvö börn. Fólkið kom til landsins beinlínis til að stela. Lög- regla handtók foreldra sem voru með tvö börn á aldr- inum 4-6 ára. Börnin tóku þátt í því að stela með for- eldrum sínum. Fólkið var með mikið þýfi á sér þegar það var handtekið. Halldóra sagði að erfitt hefði verið að ná sambandi við fólkið því það talaði tungumál sem enginn skildi „Börnin voru skítug og það var sláandi hvað þau voru ró- leg þó að þau væru tekin frá foreldrum sínum meðan þau gistu fangageymslur. Það segir manni að þau hafa upplifað ýmislegt um ævina.“ Fjölskyldunni var síðan vísað úr landi. Börn í umsjón vina Halldóra sagði að á síðustu árum hefðu komið upp nokkur mál þar sem börn útlendinga voru skilin eftir hér á landi. Hún sagði að tilkynningar um svona mál kæmu oftast frá skóla eða leikskóla. Starfsmenn skólanna hefðu þá grun um að það væri ekki allt með felldu varð- andi aðstæður barnanna. Við skoðun kæmi í ljós að foreldrarnir væru farnir úr landi og hefðu skilið eftir eitt eða fleiri börn í umsjón vina eða ættingja, sem oftast væru einnig af erlendum uppruna. Hún sagði að reynt væri að hafa upp á foreldrunum, sem stundum væru hissa á því að barnaverndaryfirvöld væru að hafa af- skipti af börnunum. „Þau segjast hafa farið úr landi til að vinna eða annast veika foreldra. Við reynum að meta aðstæður barnanna. Stundum er niðurstaðan að allt sé í lagi, en það kemur líka fyrir að hlutirnir eru alls ekki í lagi.“ hafa batnað. Besti kosturinn hlýtur alltaf að vera að barnið alist upp hjá foreldrum sínum. Sumir telja reyndar að við gefum foreldrum of mörg tækifæri. Það er hins vegar þannig að þó að fólk eigi við áfengisvanda og neyti vímu- efna þá er það oftar en ekki mjög góðir foreldrar þegar það er edrú. Það elskar börn sín og hugsar vel um þau. Vandinn er bara að neysla vímuefna gerir það að verkum að börnin fá ekki eðlilega umönnun,“ segir Halldóra. Halldóra segir að neysla foreldra á vímuefnum leiði til þess að börnin séu vanrækt. Þau fái ekki að borða, þau lendi í smáslysum vegna þess að það sé ekki hugsað um þau, foreldrarnir vakni ekki til að huga að þeim og þau séu send í pössun hjá hinum og þessum sem séu misvel hæfir til að annast börnin. Það komi einnig fyrir að börn séu inni á heimili þar sem vímuefna er neytt. Halldóra segir að ákvörðun um að fjarlægja barn af heimili í lengri eða skemmri tíma sé vandmeðfarið úr- ræði. Það sé alltaf spurning hversu langt eigi að ganga. Menn geti t.d. haft mismunandi mat á því hversu langur tími þarf að líða frá því að foreldrar detta síðast í það þangað til hægt sé að segja að þau séu hætt óreglu. Spurn- ingin sé alltaf hve lengi sé hægt að bíða eftir því að foreldri taki sig á. „Af hverju gerðir þú ekki eitthvað þegar ég var 5 ára?“ Skiptir vilji barnanna engu máli? Halldóra segir að vissu- lega skipti afstaða barnanna máli. „Flestöll börn vilja vera áfram hjá foreldrum sínum. Þau vilji bara að mamma og pabbi séu edrú.“ Aldur barnanna skiptir máli. Þegar börn eru orðin 12 ára er þeim skipaður talsmaður og þegar börn eru orðin 15 ára eru þau orðin aðili máls í skilningi laga og eiga þau rétt á lögfræðiaðstoð. Halldóra segir að þegar börn séu komin á unglingsár og hafi upplifað óreglu foreldranna í nokkur ár séu þau oft orðin nokkuð sjálfstæð og dugleg að bjarga sér. Stundum finnist þeim þá afskipti Barnaverndar óþarfi því þau ráði sjálf við ástandið. „Við höfum upplifað að 12 ára börn hafa spurt starfsmenn Barnaverndar af hverju þeir séu að skipta sér af ástandinu núna, hvers vegna þeir hafi ekki gert eitthvað þegar þau voru 5 ára.“ Þegar tekin er ákvörðun um að barn fari í tímabundið fóstur eru það oft foreldrar barnsins sem benda á fóstur- foreldra, oftast nær nána ættingja, afa og ömmu eða systkini. Barnaverndin verður lögum samkvæmt að meta hæfni þeirra sem óska eftir að taka barn í fóstur, hvort sem um er að ræða ættingja eða vandalausa. Það er meira að segja svo að þegar um er að ræða barn einstæðrar móð- ur sem þarf að fara í fóstur og faðir barnsins óskar eftir að taka það að sér þá þarf líka að meta hæfni föðurins fari hann ekki með forsjá. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sterk staða þess sem fer með forræði barnsins. Meðal atriða sem litið er til þegar verið er að meta hæfni fósturforeldra er félagsleg og fjárhagsleg staða. Einnig þarf fólk að skila inn sakavottorði, heilbrigðisvottorði og skattaskýrslu. 150 börn í fóstri Í lok nóvember eru 57 börn í tímabundnu fóstri og 94 börn í varanlegu fóstri á vegum Barnaverndar Reykjavík- ur. Halldóra dregur ekki dul á að í málum þegar börn þurfa að fara í fóstur komi oft til alvarlegs ágreinings. Fyrsti kostur Barnaverndar sé að börnin fari í fóstur til Morgunblaðið/Heiddi Tilkynningar berast m.a. frá: • Lögreglu • Heilsugæslu • Skólum • Fólki sem þekki til aðstæðna barnsins Sá sem sendir inn tilkynningu getur, lögum samkvæmt, notið nafnleyndar. Þetta á þó ekki við um opinbera aðila. Möguleg stuðningsúrræði eru m.a.: Stuðnings- fjölskylda sem léttir tímabundið undir með foreldrum Sálfræði- þjónusta eða sál- fræðiviðtöl Stuðningur inni á heimili þar sem starfsmaður Barnaverndar kemur og aðstoðar og leiðbeinir foreldrum við uppeldi barna. Listmeðferð Foreldrar fari í vímuefna- meðferð og börn fari tímabundið í fóstur á meðan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.