SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 26
26 13. desember 2009 N ý einkavæðing tveggja af þremur ríkisbönkum er komin vel á veg. Arion banki og Íslandsbanki eru að kom- ast í eigu kröfuhafa, þótt að vísu sé ekki vitað á þessari stundu hverjir þeir eru. Í þessu felst að sjálfsögðu ný einkavæðing þessara banka tveggja. Nú má vel vera, að þessi einkavæðing bankanna tveggja sé óhjákvæmileg. Ís- lenzka ríkið hafi einfaldlega ekki efni á því að fara aðra leið. Hins vegar vekur at- hygli að hin nýja einkavæðing er að koma til framkvæmda án þess að nokkrar um- ræður hafi farið fram í samfélaginu að ráði um það hvert sé æskilegt að stefna í upp- byggingu bankakerfisins eftir hrun bank- anna fyrir ári. Samtök atvinnurekenda hafa að vísu lýst þeirri skoðun nánast frá upphafi að eðlilegt væri, að kröfuhafar yrðu eigendur bankanna en aðrir hafa lít- ið tjáð sig um það mál. Það er líka eft- irtektarvert, að það er fyrsta hreina vinstri stjórnin á Íslandi, ef svo má að orði komast, sem stendur að einkavæðingu bankanna með þessum hætti. Þótt færa megi sterk rök að því, að ríkið hafi ekki af fjárhagslegum ástæðum átt annarra kosta völ en hefja nýja einka- væðingu bankanna er hitt ljóst, að rík- isstjórnin og stjórnarflokkarnir gátu tekið forystu um nýja löggjöf um banka og önnur fjármálafyrirtæki áður en til einka- væðingar bankanna kæmi á ný. Það hefur núverandi ríkisstjórn ekki gert, þótt Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hafi að vísu lýst því yfir að undanförnu að slík löggjafarsmíð sé í undirbúningi. Því ber að fagna en breytir ekki því, að umræður um slíka löggjöf hefðu þurft að fara fram fyrir nýja einkavæðingu bankanna. Þetta er þeim mun athyglisverðara vegna þess, að fátt hefur meira verið rætt í nálægum löndum síðustu misseri en breyting á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja. Hér á Íslandi hefur nánast ríkt þögn um nauð- syn nýrrar löggjafar um starfsemi bank- anna. Í ljósi mikillar gagnrýni frá hruni bankanna á einkavæðingu þeirra fyrir, um og upp úr síðustu aldamótum er þessi þögn óskiljanleg. Hvaða álitamál hafa komið upp í rekstri banka á Íslandi á þessari öld, sem kalla á umræður og nýja löggjöf um rekstur þeirra? Grundvallaratriði í því sambandi er, hvort leyfa eigi rekstur viðskipta- banka og fjárfestingarbanka undir sama hatti. Hefðbundin viðskiptabanka- starfsemi er tiltölulega áhættulítil. Svonefnd fjárfestingarbanka- starfsemi er áhættusöm. Í kjölfar kreppunnar miklu á fjórða ára- tug 20. aldarinnar voru sett lög í Bandaríkjunum, sem skildu að þessar tvær gerðir bankareksturs. Þau lög voru smátt og smátt milduð og bannið að lok- um afnumið með öllu undir lok síðustu aldar. Fjármálakreppan á alþjóðavett- vangi hefur hins vegar vakið umræður á ný um nauðsyn þess að skilja þessa starf- semi að. Hinir einkavæddu íslenzku bankar stunduðu jöfnum höndum hefðbundna bankastarfsemi og fjárfestingarbanka- starfsemi. Miðað við þær upplýsingar, sem nú liggja fyrir um starfsemi þeirra er augljóst, að það var fjárfestingarbanka- starfsemin, sem leiddi til falls þeirra. Að fenginni þeirri reynslu er a.m.k. augljóst, að fram þurfa að fara fram umræður um það, bæði á Alþingi og í samfélaginu öllu, hvort setja eigi lög sem banni slíka starf- semi undir einum og sama hatti. Er verð- andi eigendum Arion banka og Íslands- banka ljóst, að slík löggjöf kunni að verða sett? Í upphaflegri gagnrýni greiningardeilda erlendra fjármálafyrirtækja við rekstur íslenzku bankanna undir lok árs 2005 voru gerðar athugasemdir við að bank- arnir lánuðu fé til yfirtöku á fyrirtækjum en gengju lengra og gerðust einnig sjálfir hluthafar í slíkum fyrirtækjum. Í ljósi þess, sem gerzt hefur eru sterk rök sem mæla með því að slík eignaraðild banka að fyrirtækjum verði bönnuð með lögum. En þetta er eitt af því, sem þarf að ræða og draga fram rök með og á móti. Um þetta hafa engar umræður farið fram frekar en um annað, sem læra má af falli bankanna og hefði þurft að ræða og afgreiða fyrir nýja einkavæðingu þeirra. Þriðja grundvallaratriðið, sem ræða þarf í framhaldi af hruni bankanna er hvaða kröfur eigi að gera til þeirra, sem vilja eiga og reka banka. Þá er ekki sízt átt við hvaða kröfur eigi að gera um fjárhags- legan styrk þeirra. Í því felst m.a. að þeir geti sýnt fram á, að þeir séu raunverulega að leggja fram eigið fé í bankastarfsemi en ekki fé, sem tekið er að láni. Í því sam- bandi vaknar líka spurning um, að feng- inni reynzlu, hvort ekki er nauðsynlegt að gera meiri kröfur um eigið fé bankanna en gerðar hafa verið hingað til. Fjórða meginatriðið, sem þarf að ræða er um dreifingu eignarhalds á bönkum. Illu heilli voru umræður um dreifða eign- araðild að fjármálafyrirtækjum drepnar í fæðingu fyrir rúmum áratug, fyrst og fremst með aðgerðum þessara fyrirtækja sjálfra á þeim tíma. En jafnframt vakti at- hygli þá andstaða einstakra talsmanna jafnaðarmanna við hugmyndir um löggjöf um dreifða eignaraðild að bönkum. Nú þarf að hefja þessar umræður á ný og vonandi fara þær í uppbyggilegri farveg að þessu sinni. Fimmti grundvallarþáttur þessa máls eru svo þau launakjör og launakerfi, sem tíðkast í fjármálafyrirtækjum, en um fátt er nú meira rætt beggja vegna Atlantshafs og þarf að ræða hér ekki síður. Öll þessi atriði hefði þurft að ræða og setja löggjöf um fyrir nýja einkavæðingu bankanna, sem er að komast í fram- kvæmd. Eftir því er tekið í öðrum lönd- um, að það hefur ekki verið gert og spurt hvort það sé til marks um, að Íslendingar skilji ekki enn hvað hér hafi gerzt. Er eitt- hvað til í því? Er einkavæðing án umræðu sjálfsögð? Af innlendum vettvangi… Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is Þ að komu vöflur á Alfredo Geri gallerista þennan vetrardag í Flórens, 13. desember 1913, þegar ókunnugur maður dró málverk úr pússi sínu og bauð honum til sölu. Málverkið var af sjálfri Mónu Lísu sem stolið hafði verið af Louvre-safninu í París rúmum tveimur árum áður. Geri trúði ekki sínum eigin augum en samdi við gestinn um að fá að hafa málverkið um stund í galleríinu til að meta það. Hann hnippti strax í Giovanni Poggi, forstöðumann Uffizi-gallerísins, sem gekk úr skugga um að málverkið væri ósvikið. Gerðu þeir lögreglu þegar viðvart og handtók hún manninn, Vin- cenzo Peruggia, síðar um daginn á hóteli í Flórens. Þar með var mál sem kallað hefur verið „mesti lista- verkaþjófnaður allra tíma“ loksins leyst. Það hófst þegar Peruggia, sem var fyrrverandi starfsmaður Louvre, faldi sig á safninu eftir lokun sunnudaginn 20. ágúst 1911. Dag- inn eftir, meðan safnið var lokað, gekk hann óséður út með verkið, sem Leonardo da Vinci málaði í upphafi sex- tándu aldarinnar, undir hvítum vinnusloppi. Talið er að dyravörðurinn hafi brugðið sér frá til að svala þorsta sín- um. Sér til hægðarauka fjarlægði Peruggia rammann. Uppi varð fótur og fit þegar menn gerðu sér grein fyrir því að Móna Lísa væri horfin – rúmum sólarhring síðar. Safnstjórinn trúði því ekki að þjófurinn hefði komist úr húsi og slagbrandi var brugðið fyrir dyrnar í heila viku meðan á rannsókninni stóð. Landamærum Frakklands var lokað um tíma og skip kyrrsett. Allt kom fyrir ekki. Hvorki fannst tangur né tetur af málverkinu. Þjófnaðurinn vakti heimsathygli og gestagangur á Lo- uvre hefur líklega ekki í annan tíma verið meiri. Fólk streymdi að til að stara á beran vegginn þar sem Móna Lísa átti að vera. Franska stoltið var sært og lögreglan lagði nótt við dag til að hafa hendur í hári sökudólgsins. Franska skáldið Guillaume Apollinaire, sem einhverju sinni lýsti því yfir að brenna ætti Louvre, var færður til yfirheyrslu og látinn dúsa um tíma í grjótinu. Hann vissi þó ekkert um málið. Apollinaire reyndi í örvæntingu sinni að bendla vin sinn, listmálarann Pablo Picasso, við verkn- aðinn. Það hefði verið saga til næsta bæjar hefði einn frægasti málari heims stolið Mónu Lísu en svo reyndist ekki vera. Pablo Picasso kom af fjöllum. Hermt er að þeir félagar hafi verið lengi að jafna sig eftir yfirheyrslurnar og Apollinaire raunar ekki borið sitt barr. Meðan á öllu þessu gekk beið Móna Lísa í góðu yfirlæti undir rúminu í íbúð Vincenzos Peruggias í París. Hann þorði ekki að hrófla við verkinu í rúm tvö ár eða þangað til hann smyglaði því til Flórens í desember 1913. Eftir að Peruggia var gripinn glóðvolgur lýsti hann því yfir að föðurlandsást hefði knúið hann til að stela mál- verkinu. Móna Lísa ætti heima á Ítalíu. Það þótti hins veg- ar draga úr trúverðugleika þjófsins að hann hafi reynt að selja verkið. Peruggia var eigi að síður fagnað sem þjóð- hetju á Ítalíu. Hann var dæmdur til eins árs fangavistar en látinn laus eftir fáeina mánuði. Síðar var því haldið fram að frægur svikahrappur, Edu- ardo de Valfierno, hefði verið á bak við þjófnaðinn í því augnamiði að sprengja upp verð á eftirlíkingum. Það var aldrei sannað. Móna Lísa sneri aftur heim á Louvre árið 1914 og hefur ekki brugðið sér af bæ síðan. orri@mbl.is Mesti þjófn- aður lista- sögunnar Á þessum degi 13. desember 1913 Móna Lísa er líklega frægasta málverk mannkynssögunnar. Það hefði verið saga til næsta bæjar hefði einn frægasti málari heims stol- ið Mónu Lísu en svo reyndist ekki vera. Pablo Picasso kom af fjöllum. Sekur: Vincenzo Peruggia. Grunaður: Pablo Picasso.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.