SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 51

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Blaðsíða 51
13. desember 2009 51 Veftir nefnist ný og glæsi- leg bók um feril Ásgerðar Búadóttur (f. 1920) sem Uppheimar gefa út. Rit- stjóri bókarinnar og meg- inhöfundur er Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur en Guðbergur Bergsson ritar formála. Í bókinni er rakinn ferill Ásgerðar frá skólaárunum í Handíða- og myndlista- skólanum á fimmta áratug liðinnar aldar, og allt þar til hún settist í helgan stein. Birt- ar eru myndir af 58 verkum listakonunnar, sem hún kallar vefti, og að auki fjöldi teikninga frá námsárum hennar. Sambland af málverki, höggmynd, lágmynd og minnisvarða Í formála sínum, „Ásgerður Búadóttir og tíminn“, rifjar Guðbergur upp fyrstu kynni sín af listakonunni. „Seinna gerði ég mér grein fyrir, vegna áhuga á vefnaði,“ skrifar hann, „að engum hefur tekist jafn vel og henni með sér- stöku handbragði að sameina í vefnaði margvíslega eig- inleika myndverksins: efnið, litina, formið og innihaldið. Þetta í sameiningu verður hjá henni ofin myndheild, sam- bland af málverki, höggmynd, lágmynd og minnisvarða.“ Ásgerður nam við Handíða- og myndlistarskólann á ár- unum 1942-26 og var við málaradeild Vilhelms Lundström við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn árin 1946-1949. Hún kenndi teikningu í upphafi sjötta áratug- arins og hóf að vefa fyrir alvöru árið 1952. Árið 1956 hlaut hún gullverðlaun á 8. Alþjóðlegu list- og handverks- sýningunni í München fyrir vefnað. Frá því snemma á sjö- unda áratugnum hélt hún reglulega einkasýningar, auk þess að taka þátt í fjölda samsýninga, hér heima og er- lendis. „Ásgerður Búadóttir er einn ferskasti og markverðasti myndlistarmaður þjóðarinnar ... verk hennar búa yfir safa og vaxtarmagni sem hafið er yfir tíma og rúm,“ skrifaði Bragi Ásgeirsson gagnrýnandi Morgunblaðsins um sýningu hennar í Listasafni Íslands árið 1994. Margvíslegir eiginleikar ekki á hverju strái. „Við fórum til Frakklands þar sem ég sá franskan vefnað en hann var allt annars eðlis en það sem ég var að gera. En ég kynntist snjöllum nor- rænum konum sem voru að fást við svipað og ég.“ Aðalsteinn Ingólfsson segir í bókinni að Ásgerður hafi á námsárunum orðið afhuga málverkinu, það hafi verið hætt að svara kalli tímans. „Það lá einhvern veginn í loftinu að olíumálverkið hafði ekki lengur hlutverki að gegna; að þeir viðsjálu tímar sem fylgdu í kjölfar heimsstyrjaldarinnar krefðust annarra viðhorfa.“ Þurfti að leita innra með mér eftir lausnum Ásgerður segir að efniskenndin hafi verið eitt af því sem dró hana að vefstólnum. „Stundum stóð ég svo við vefinn og hugsaði: hvað á ég eiginlega að gera næst? Ég hafði ekki lært það,“ segir hún og brosir. „Þá þurfti ég að leita innra með mér eftir lausnum. En þetta kom allt.“ Ásgerður hlaut gullverðlaun árið 1956 á alþjóðlegri list- og handverkssýningu í Þýskalandi, fyrir eitt af fyrstu verkunum sem hún óf, fígúratíft verk. „Ég vildi helst henda þessu verki,“ segir hún og horfir yggld á svip á mynd af því. „Ég var hér komin í eitthvað sem hentaði mér ekki.“ Eftir þetta varð myndgerð verka Ásgerðar óhlut- bundin og hún segir að í því efni hafi vinir sínir og fé- lagar frá skólaárunum að vissu leyti vísað veginn. Hún bendir á verk frá 1961 þar sem hún segist vera farin að ná því sem hún sóttist eftir í miðlinum. „Við Sigvaldi Thordarson arkitekt skiptumst á verk- um. Hann fékk þetta verk frá mér og ég fékk teikn- ingar að húsinu okkar í Karfavoginum,“ segir hún. „Þetta er eitt fyrsta verkið þar sem ég er að fara af al- vöru inn í vefinn, miðillinn er farin að taka ráðin af mér.“ Verklag Ásgerðar var þannig að hún gerði fyrst skissur og vann síðan á maskínupappír á gólfinu stærri skissu í sömu stærð og hún ætlaði verkinu að vera. Hún var síðan iðulega um tvo mánuði með hvert verk í vef- stólnum. „Þegar ég var byrjuð á verki var ekki hægt að bakka. Ég varð að halda áfram – eða henda verkinu og það gerði ég stundum. Þannig varð það að vera. Ég þurfti því eiginlega alltaf að hugsa verkið frá upp- hafi til enda.“ Ásgerður fór smám saman að vinna meira með þrí- víddaráhrif í vefnaðinum, fyrst með röggvavef, rýja, sem hún notaði allt til 1967 er hún uppgötvaði hross- hárið sem efnivið, en hún litaði hárin og felldi í veftina. „Í hrosshársverkunum var ég komin með mitt. Það fannst mér takast vel. Ég sýndi oft erlendis og var mik- ið spurð út í hrosshárið.“ Hún bætir við að þegar breytingar hafi orðið á nálg- un og tækni hafi það gerst smám saman, það hafi kom- ið af sjálfu sér. Hún hafi þó alltaf skoðað verk annarra, til dæmis á vefnaðartvíæringnum í Lausanne í Sviss sem hún sótti reglulega. Ásgerður segist einnig hafa orðið fyrir áhrifum af og unnið út frá náttúrunni. Verkið „Þar sem eldurinn deyr“ sé þannig unnið út frá Kröflueldum sem loguðu á þeim tíma. „Ég hef alltaf verið áhrifagjörn á þann hátt og þarna fylgdist ég vel með fréttum, því sem var að gerast við Kröflu. Eldar loguðu og það fór svona inn í mig.“ Ásgerður hefur átt glæsilegan feril, eins og bókin sýnir, en það var oft erfitt að samhæfa listsköpunina og heimilishaldið, segir hún. „Það var oft erfitt að finna tíma í verkið. Ég átti þrjú börn og var með drykkju- mann á heimilinu. Það var oft erfitt.“ En veflistin var hennar form. „Þetta gat verið krefj- andi starf en ég var alltaf ánægð í því,“ segir hún. ég var alltaf ánægð Í hrosshársverkunum var ég komin með mitt. Það fannst mér takast vel. Ég sýndi oft erlendis og var mikið spurð út í hrosshárið. Haustró. 1994. Ull og hrosshár, 123 x 115 cm. Einkaeign. Þöll II. 1965. Ull, 125 x 51 cm. BSRB Munaðarnesi. Bláin. 1981. Ull og hrosshár, 134 x 115 cm. Einkaeign.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.