SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Page 27
13. desember 2009 27
vitleysisgangi foreldranna?
„Þau hafa alltaf verið til í
þennan fíflaskap með okkur
og elsta dóttirin, Bergþóra,
hefur verið öflugust í þessu
seinni árin. Hún gefur út sín
eigin kort til sinna vina,“
segir Guðmunda stolt.
Umræðan um útlit jóla-
korts ársins byrjar hjá fjöl-
skyldunni á haustmán-
uðum. Þá eru lagðar fram
margvíslegar tillögur og
þemu og hafa fræg plaköt
og plötuumslög verið notuð
sem viðmið. „Um aldamótin
ákváðum við að kveðja gömlu
öldina með hellisbúunum, þar
sem nýir tímar voru í uppsigl-
ingu. Þá kom nýaldarárið og
fannst okkur tilhlýðilegt að
klæða okkur í álpappír með til-
heyrandi tengslum við geim-
inn. Nýaldarárið var síðasta ár-
ið sem við klæddum okkur
upp. Photoshop-vinnsla kom
árið á eftir. Ekki var gæðunum
fyrir að fara en þetta hefur far-
ið skánandi með árunum. Það
er mest um vert að allir hafa
gaman af þessu,“ segir Guð-
munda.
Jólakortin er mjög stór liður
í jólaundirbúningi Jakaselsfjöl-
skyldunnar og ekki þykir
henni síður gaman að fá jóla-
kort.
„Á miðnætti á aðfangadags-
kvöld er heilög stund þegar
jólakortin eru opnuð. Og mikið
finnst okkur gaman að fá
myndir frá fólki. Þótt það sé
bara nýi bíllinn sem viðkom-
andi hefur keypt á árinu, sér-
staklega ef hann er hrifinn af
honum. Okkur finnst skrýtið
að sumum finnist þetta vera
kvöð að senda jólakort. Við
skemmtum okkur best sjálf við
að útbúa kortið og senda út og
við tökum okkur mátulega há-
tíðlega í þessum efnum,“ segir
Guðmunda.
Jólakortin senda þau eins
seint og þau geta og hvílir
mikil leynd yfir korti hvers árs.
„Það er til þess að þeir sem
opna jólakortin um leið og þau
berast upplýsi ekki hvernig
kortið lítur út það árið. Okkur
finnst það hálfgerð helgispjöll
að opna jólakortin um leið þau
berast,“ segir Guðmunda.
Jakaselsfjölskyldunni berast
reglulega óskir frá fólki um að
komast á jólakortalistann og nú
senda þau á milli 120 og 150
kort. „Við höfum heyrt að þeg-
ar fólk kemur í heimsókn til
þeirra sem við þekkjum á jól-
unum þá spyr það oft um
kortið frá klikkuðu fjölskyld-
unni.“
Áður fyrr klæddu þau sig upp
í hina ýmsu búninga fyrir
hina fullkomnu jólakorta-
mynd en í dag treysta þau á
tæknina.
Signý Gunnarsdóttir signyg@mbl.is
Þ
au kalla sig Jakasels-
fjölskylduna og þeir
sem til hennar þekkja
bíða með eftirvænt-
ingu eftir jólakorti þeirra ár
hvert. Það hefur skapast hefð
hjá þeim í kringum jólakortin
sem einkennist af örlitlum
fíflagangi. „Þetta byrjaði árið
1996 þegar við hættum að
senda myndir bara af börn-
unum og ákváðum að skreyta
okkur öll með jólaskrauti.
Þá var þetta meira mál því
við notuðum myndavél og
filmu sem við þurftum svo að
láta framkalla þannig að þetta
var margra daga ferli. Þegar
stafrænu myndavélarnar komu
varð lífið auðveldara. Hægt að
sjá um leið hvort myndin
heppnaðist eða ekki,“ segir
Guðmunda Óskarsdóttir frum-
kvöðullinn að þessu skemmti-
lega fjölskylduverkefni. Föndur
hefur verið áhugamál Guð-
mundu í áratugi og ákvað hún
fljótt að gera áhugamálið að at-
vinnu sinni þegar hún stofnaði
fyrirtækið Merkt. Þar gefst
fólki tækifæri að láta sérmerkja
vörur fyrir fjölskyldu og vini
og gefa þannig persónulegar
gjafir. Það kom því engum á
óvart að Guðmunda var fljót að
tileinka sér Photshop við
kortagerðina en í fyrstu studd-
ist hún við Word sem uppsetn-
ingarforrit. „Þegar Photoshop
kom til sögunnar var farið að
skeyta myndum saman og
minna var um uppstillingar og
uppáklæðnað. Á síðustu árum
settum við líka myndir með
texta sem segir frá því sem á
daga okkar hefur drifið á
árinu,“ segir Guðmunda.
En hvernig ætli hafi gengið
að fá krakkana til að taka þátt í
Eins og sjá má var
plakat kvikmyndar-
innar Englar alheims-
ins fyrirmynd að einu
jólakortinu og er það
eitt eftirlætiskort
fjölskyldunnar. Guð-
munda er fyrir miðju
á þeirri mynd.
Kátína í
kortagerð
www.lapulsa.is