SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Side 34
34 13. desember 2009
Ljóðveldið Ísland
Höf.: Sindri Freysson
„Þetta er raunar frekar
döpur og slysaleg saga
þjóðar sem aldrei hefur
almennilega kunnað
að feta sig áfram í
heimi þjóðanna. Mér
finnst hugmyndin að
kvæðaflokknum góð en
lopinn kannski teygður
fullmikið.“
Skafti Þ. Halldórsson
211 bls.
Svarta forlag
Íslenska undra-
barnið, saga
Þórunnar Ashkenazy
Höf.: Elín Albertsdóttir
„Þetta er skemmtileg
ævisaga um óvenju-
legt lífshlaup sem er
samofið brennandi
tónlistarástríðu.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir
224 bls.
Bókafélagið
Reyndu aftur
Höf.: Tómas Hermannsson
„Frásagnirnar í bókinni
eru oftast fróðlegar því í
ferli Magnúsar felst heil-
mikil poppsagnfræði;
þær eru á stundum
átakanlegar og sömu-
leiðis sprenghlægilegar
í bland, og þegar upp er
staðið er Reyndu aftur
hinn mesti skemmti-
lestur.“
Jón Agnar Ólason
248 bls.
Sögur
Snorri – Ævisaga
Snorra Sturlusonar
1179-1241
Höf.: Óskar Guðmundsson
„[Þ]essi ævisaga Snorra
[er] afskaplega vel
lukkuð, og varpar ljósi
á áhugaverðan en mót-
sagnakenndan mann,
og þá róstusömu tíma
þegar hann var uppi
– áður en hann sagði í
kjallaranum í Reykholti
við Árna beisk „Eigi skal
höggva.““
Einar Falur Ingólfsson
528 bls.
JPV
Jón Leifs
– Líf í tónum
Höf.: Árni Heimir Ingólfsson
„Bókin er [...] ætíð
læsileg og í raun afar li-
purlega stíluð. [...] Þessi
ævisaga mun án efa
auka áhuga á verkum
Jóns Leifs hér á landi,
hjálpa fólki að skilja
um hvað þau eru, eftir
hverju tónskáldið var að
slægjast og hverju
hann dreymdi um að
ná fram. Þessi saga er
verðskuldaður minnis-
varði um óvenjulegan og
erfiðan listamann.
Einar Falur Ingólfsson
472 bls.
Mál og menning
Papa Jazz – Lífs-
hlaup Guðmundar
Steingrímssonar
Höf.: Árni Matthíasson
„Það fer ekkert á milli
mála að Guðmundur
gefur sig heilshugar að
öllu sem hann fæst við.
Eldmóður, drifkraftur og
„swing“ hans aðals-
merki allt frá því hann
spilaði með Gunnari
Ormslev í GO-kvartettin-
um í Gúttó í Hafnarfirði
um miðjan fimmta
áratuginn og fram á
þennan dag. Bókin er
einkar læsileg, svellandi
fín og skemmtileg
lesning.“
Ómar Friðriksson
288 bls.
Hólar
Hundgá úr
annarri sveit
Höf.: Eyþór Árnason
„Helsti galli bókarinnar
er að hún er nokkuð
sundurlaus en það
kemur ekkert á óvart
að skáld sem er að gefa
út fyrstu bók virðist
leitandi á stundum og
óvisst með tóninn. Þá
eru ljóðin misáhrifarík.
Hundgá úr annarri sveit
er þó afar áhugaverð og
persónuleg frumraun og
hrífandi þar sem Eyþóri
tekst best upp.“
Einar Falur Ingólfsson
64 bls.
Uppheimar
Nokkur almenn orð
um kulnun sólar
Höf.: Gyrðir Elíasson
„Fáir verða sviknir af því
að lesa nýja ljóðabók
[Gyrðis] Nokkur almenn
orð um kulnun sólar.
Stundum virka ljóðin
svo áreynslulaus að það
er eins og skáldið hafi
ekkert fyrir því að yrkja.
En ætli reyndin sé ekki
sú að þau ljóð hafi kraf-
ist mestrar yfirlegu. Það
er nefnilega ekki ein-
boðið að skáld fái í senn
góða hugmynd og geti
útfært hana á jafnein-
faldan og glæsilegan
hátt og Gyrðir gerir.“
Skafti Þ. Halldórsson
104 bls.
Uppheimar
Mynd af Ragnari í
Smára
Höf.: Jón Karl Helgason
„Upplýsingarnar sem
eru dregnar fram eru
oftast nær forvitni-
legar og varpa ljósi á
margbrotinn karakter-
inn. Stundum verða
samtölin nokkuð stirð
eða bókleg, enda byggð
á rituðum nóteringum
svo það kemur ekki á
óvart. En nálgunin er
lifandi og úrvinnslan svo
vönduð, að allt frá fyrstu
síðu, þar sem lesandinn
skoðar ljósmyndina frá
miðdegisverðinum, og
þar til Ragnar hóar í
ljósmyndara „að fá
almennilega mynd
af hópnum“, drífur
frásögnin forvitinn
lesandann áfram.“
Einar Falur Ingólfsson
383 bls.
Bjartur
Vigdís. Kona verður
forseti
Höf.: Páll Valsson
„Fyrir sléttum áratug
hlaut Páll Valsson
íslensku bókmennta-
verðlaunin fyrir bók sína
um Jónas Hallgríms-
son og það hvarflar að
manni á myrkum dögum
hvort hann hafi verið
fenginn til að búa til
eða viðhalda eins konar
Fjölnismannaímynd af
Vigdísi.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir
472 bls.
JPV
Ljóðorkuþörf
Hof.: Sigurður Pálsson
„Sigurður Pálsson
hefir frá útgáfu fyrstu
ljóðabókar sinnar,
Ljóð vega salt (1975)
verið sannkallaður
ljóðvíkingur og lagt sitt
á vogarskálar þeirrar
útrásar. Góðu heilli
hefir sú ljóðaútrás verið
eitthvað hófsamari en
sú sem nú hefir lagt
myglusvepp yfir sálar- og
fjármagnsheill vora.“
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson
100 bls.
JPV
Rennur upp um nótt
Höf.: Ísak Harðarson
„Ísak hefur marga góða
kosti sem ljóðskáld. Að
lesa bók hans er eins og
að fara í gegnum mörg
lög af kenndum og til-
finningum.“
Skafti Þ. Halldórsson95 bls.
Uppheimar
Ævisögur
Halldór Baldurssson og Silja Aðalsteinsdóttir.
Morgunblaðið/RAX
K
öttur út í mýri, safn
íslenskra ævintýra er
komið í stórfallega
bók, ríkulega mynd-
skreytta. Silja Aðalsteinsdóttir
valdi ævintýrin úr safni Jóns
Árnasonar og Halldór Baldursson
tók að sér að myndskreyta á sinn
fjöruga og hugmyndaríka hátt.
„Ég vildi safna á einn stað æv-
intýrum sem hafa verið hluti af
menningu okkar í nokkur
hundruð ár,“ segir Silja. „Sum
þeirra eru vissulega ansi óhuggu-
leg en öll hafa þau skilið eftir djúp
spor í þjóðarvitundinni. Þetta eru
sögur eins og Búkolla, Velvakandi
og bræður hans, Grámann, Sagan
af Mjaðveigu Mánadóttur,
Himinbjargarsaga, Sagan af Her-
móði og Háðvöru og fleiri. Ég fór
yfir textann, eins og hann er í
safni Jóns, og reyndi að gera hann
aðgengilegri og læsilegri fyrir nútímabörn. Í safni
Jóns eru samtöl til dæmis í belg og biðu en ég set
þau upp eins og leikrit og um leið verður textinn
auðveldari aflestrar.“
Dragdrottning í ævintýrum
Silja fór yfir öll ævintýrin í safni Jóns Árnasonar og
sumt af því sem hún las kom henni á óvart. „Núna
sé ég til dæmis söguna af Oddi kóngi á annan hátt
en áður. Oddur kóngur leggur undir sig land,
verður mjög vinsæll kóngur en hverfur alltaf eina
nótt á ári. Einn vinnumanna hans kemst loks að
því hvert hann fer og þá reynist Oddur kóngur
vera drottning í undirheimum. Hann er semsagt
dragdrottning og Halldór teiknaði hann þannig.
Sagan af Hring kóngssyni kom mér líka á óvart.
Hún fjallar um strák sem er síhræddur en gerir
samt allt sem hann þarf að gera til að leysa úr álög-
um nafna sinn, kóngsson sem er í álögum sem
hundur. Hringur er skelfingu lostinn en gengur
samt til verka og verður enn meiri hetja fyrir vik-
ið.“
Halldór Baldursson segist hafa tekið sér góðan
tíma til að myndskreyta ævintýrin. „Í byrjun var
þetta spurning um að finna rétta tóninn,“ segir
hann. „Stundum þegar maður tekur að sér verk-
efni er maður að rembast við að gera eins og maður
heldur að maður eigi að gera. Ég skoðaði mynd-
skreytingar í ýmsum æv-
intýrabókum en ekkert
fór að ganga fyrr en ég
ákvað að nota minn eigin
stíl og teikna eins og mér
finnst skemmtilegast.
Sögurnar byggja aðallega
á gamansemi og hryllingi.
Ég vona að ég móðgi eng-
an þegar ég segi að þessi
ævintýri eru hreinar af-
þreyingarsögur. Léttleiki
með horrorívafi er sá
þáttur sem ég einbeitti
mér að í myndskreyting-
unum.“
Að standa við orð sín
En hafa íslensku ævintýr-
in eitthvert uppeldisgildi?
„Þetta eru fyrst og fremst
skemmtisögur, eins og
Halldór segir, en þær segja
manni samt margt um kjör fólks og öfgarnar í ríki-
dæmi og fátækt,“ segir Silja. „Þær hafa fyrst og
fremst það uppeldisgildi að segja krökkum að þeir
eigi ekki að gefast upp. Þeim mistakist kannski í
fyrsta og annað sinn en í þriðja sinnið hafist það.
Ævintýrin enda ævinlega vel, og enda þá oft á sigri
þess sem er minni máttar.“ Halldór bætir við: „Það
er ákveðið gildismat í þessum sögum og stundum
nokkuð annað en það sem við nútímamenn til-
einkum okkur. Í ævintýrum standa menn til dæmis
ætíð við orð sín alveg sama þótt þeir séu að gangast
undir mjög ósanngjarnar kröfur. Menn reyna aldr-
ei að komast undan kröfunum sem þeir hafa geng-
ist undir heldur leitast við að uppfylla þær – og
tekst það auðvitað ævinlega að lokum.“
Spurð um uppáhaldsævintýri sitt í safninu nefnir
Halldór Velvakanda og bræður hans og gefur henni
einkunnina: „Skrambi góð drengjasaga.“ Silja segir
að sagan Karlssonur, Lítill, Trítill og fuglarnir hafi
ævinlega verið uppáhaldsævintýri sitt. „Fyrir utan
hvað það er fyndið er það svo gott dæmi um ósér-
hlífni og staðfestu hetjanna í ævintýrunum. Yngsti
karlssonurinn er útundan heima hjá sér en þegar á
reynir tekst honum það sem eldri eftirlætum for-
eldranna tekst ekki: að finna kóngsdóttur. Ráðið er
að vera örlátur og forsmá ekki hjálp litlu karlanna
og fuglanna eins og bræður hans gera. Þetta er fal-
leg saga um gildi samhjálpar og þrautseigju.“
Léttleiki með horrorívafi
Silja Aðalsteinsdóttir og Halldór Baldursson leggja saman
krafta sína í nýrri bók sem er safn íslenskra ævintýra. Þau
komust að ýmsu óvæntu við vinnu sína eins og því að Odd-
ur kóngur er dragdrottning.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Oddur kóngur er dragdrottning.
Jólabækurnar