SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Qupperneq 39
13. desember 2009 39
Eitt skeytið lenti á litlu pósthúsi í Elfross í Kan-
ada, þar var kona póstmeistarans að leysa af, og
kannaðist við mæðgurnar. Hún lét vita af því, og
brátt barst Holger hjartnæmt bréf frá móður sinni,
fallegasta bréf sem ég hef lesið um ævina, og hefst
það á orðunum: „Komdu sæll elsku sonur minn.“
Dorothy dubbaði Cahill óðar upp í frakka, setti á
hann trefil, stakk verkjapillum í vasann, og sendi
hann með lest norður til Winnipeg. Svo heyrði hún
ekkert frá honum í viku. Þá hringdi hann, sagði að
þau hefðu gert upp sín mál, og nú átti hann aftur
fjölskyldu. Það sem meira var, móðir hans var 92
ára, og lifði tíu ár í viðbót. Þegar hún lést 102 ára
var mikið skrifað um hana í Lögberg og Heims-
kringlu, og Guttormur J. Guttormsson ortierfiljóð.
Hún var alla tíð bláfátæk og hafði aldrei lært ensku
að ráði, þó að hún hefði búið í 70 ár í Bandaríkj-
unum“
Frásögn Hans Kristjáns hófst á kvöldverðarboði
og ekki er hægt að láta hjá líða að geta um annað
kvöldverðarboð í New York árið 1959. „Þá voru
Dorothy og Cahill boðin til þekkts listvinar í New
York, og á meðal gesta var Halldór Laxness. Halldór
hafði hitt Dorothy í MoMA og lesið bækur eftir
Holger, en aldrei hitt hann. Hann vissi að hann
væri ævintýramaður, en hafði ekki hugmynd um
að hann væri Íslendingur. Í boðinu heilsar Dorothy
Halldóri og svo kemur Cahill og segir: „„Komdu
sæll míster Laxness. Ég er glaður að mæta þér. Ég
heiti Sveinn Bjarnarson frá Skógarströnd.“
Halldór segir frá þessum fundi í bók sinni Við
heygarðshornið og einnig í grein í Lesbók Morg-
unblaðsins. Það kemur raunar fram í einu bréfa
hans, að hann ætlaði að skrifa ævisögu Holgers. Og
hann bauð honum til Íslands árið eftir til að halda
fyrirlestra í Gamlabíói og kynnast honum frekar,
en Holger lést áður en til þess kom. Þá var hann í
Massachusetts, í Stockbridge, þar sem fjölskylda
hans átti fallegt hús, og með honum í fríinu voru
Nína Tryggvadóttir, Una Dóra Copley og Al Copley,
maður Nínu.“
James Bond, Íslendingurinn ótta-
lausi, nefnist mynddiskur með sögu
Williams Stephensons, íslenska
njósnarans sem var fyrirmynd James
Bonds. Fyrri hlutinn er kanadísk heim-
ildarmynd, sem gerð var fyrir 3-4 ár-
um, og síðari hlutinn fyrirlestur Inga
Hans Jónssonar um þennan kunna
Snæfelling.
Stephenson fæddist árið 1896 og
var uppalinn af Vigfúsi Stefánssyni og
Kristínu frá Skógarströnd, sem fluttu
vestur örfáum árum áður en hann
fæddist.
Hann varð stríðshetja í fyrra stríði,
skaut niður 18 þýskar orrustuflugvélar
á fimm mánuðum og var sjálfur skot-
inn niður í september árið 1918,
þremur mánuðum fyrir stríðslok.
Hann strauk úr þýskum fangabúð-
um mánuði fyrir stríðslok, tók með sér
mynd af fangabúðastjóranum af skrif-
stofu hans og hafði hana á skrifborði
sínu æ síðan.
En hann stal einnig þýskum dósa-
hníf og fékk einkaleyfi á þeirri uppfinningu vestanhafs, en fyr-
irtækið fór á hausinn innan árs og Íslendingarnir í Winnipeg,
þessar fátæka fjölskyldur sem höfðu flutt vestur og fjárfest í fyr-
irtæki stríðshetjunnar, töpuðu öllu sínu.
Hann stakk af um miðja nótt, hugsanlega með allan sjóðinn,
og skaut næst upp kollinum á forsíðu blaða í Bretlandi árið
1922, 25 ára gamall, og varð þá fyrsti maðurinn í sögunni sem
sendi mynd þráðlaust milli tveggja staða. Það var ljósmynd af
konunni hans.
Hann varð moldríkur kaupsýslumaður, byggði Earls Court í
London, stærstu kaupstefnuhöll þess tíma, átti stál- og sem-
entsverksmiðjur, stærsta kvikmyndaver utan Hollywood og
margt fleira.
Hann átti viðskipti við Þjóðverja og
varð var við það árið 1935 að Hitler
væri að byggja upp hergagnaiðnaðinn
sinn, sem var brot gegn Versalasamn-
ingunum. Hann komst í samband við
Churchill og útvegaði honum upplýs-
ingar um uppbyggingu Þjóðverja allt frá
þeim tíma.
Stephenson var sendur af Churchill til
Bandaríkjanna árið 1940, mánuði eftir
að Churchill varð forsætisráðherra, og
var þar með 2 þúsund njósnara á sínum
snærum, sem hann greiddi úr eigin
vasa, en markmiðið var að fá Banda-
ríkjamenn til að útvega Bretum hergögn
og blanda sér í stríðið.
Eftir stríð var Stephenson fenginn til
að koma á fót leyniþjónustu Bandaríkj-
anna, CIA, af Truman forseta. Hann
setti upp þjálfunarbúðirnar Camp X í
Kanada, rétt norðan við landamæri
Bandaríkjanna, og þar voru fyrstu fimm
forstjórar CIA þjálfaðir.
Stephenson settist loks í helgan
stein á Jamaíka og bauð þangað vini
sínum Ian Fleming, sem byggði hús við hliðina á honum. Þá fór
Fleming að skrifa bækurnar um James Bond og sagði í viðtali við
Sunday Times árið 1962 að fyrirmynd Bond væri Stephenson.
Að síðustu flutti Stephenson til Bermúda, þar sem hann lést
93 ára gamall árið 1989.
Margar bækur hafa komið út um Stephenson og BBC gerði
sex tíma þáttaröð um hann árið 1979, en þá var hann leikinn af
David Niven. Ein af ævisögum hans kom út á íslensku árið
1963, Dularfulli Kanadamaðurinn, í þýðingu Hersteins Páls-
sonar.
Á morgun verður mikil athöfn í Winnipeg, þar sem ein að-
algatan er nefnd eftir Sir William Stephenson, en þar er stytta af
honum fyrir framan þinghúsið.
Íslenski njósnaforinginn, stríðshetjan og auðjöfurinn
William Stephenson hafði viðurnefnið „Intrepid“
eða hinn óttalausi.
Bose SoundDock fyrir iPod
Verð frá: 49.900kr.
Canon PowerShot A480
Verð: 25.900kr.
EOS 1000D með 8 GB minniskorti og EF-S 18-55mm linsu er betri hugmynd og kostar aðeins 109.900kr.
Fáðu fleiri betri hugmyndir að jólagjöfum hjá okkur.
Sony Handycam
Verð: 69.990kr.
My Passport 320GB hýsill
Verð: 16.900kr.
IdeaPad U350 fartölva
Verð: 119.900kr.
Verslun Nýherja, Borgartúni 37
Glæsilegir
vinningar!
Spennandi leikur á
betrihugmynd.is
netverslun.is