SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Síða 43

SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Síða 43
13. desember 2009 43 Eygló Margrét Lárusdóttir hannar kvenmannsföt undir merkinu Eygló. „Ég er aðallega að gera partýföt fyrir hressar konur. Línan sem ég er að hanna núna er innblásin af smásjármynd- um af grjóti,“ segir Eygló og blaðamaður kemst ekki hjá því að spyrja hvaðan sú hugmynd hafi komið. „Kærastinn minn fór í Háskólann til að athuga hvað hann vildi læra. Hann fékk bækling frá jarðfræðideildinni og þar var þessi fína mynd af grjóti. Ég byrjaði á að skoða stuðlabergið og svo þróað- ist þetta. Ég skoðaði líka Hin fjögur fræknu [hópur ofurhetja í vinsæl- um teiknimyndablöðum, innsk. blm.], en það er grjótkall í því,“ segir Eygló sem hefur hannað föt síðan hún útskrifaðist úr fatahönn- unardeild Listaháskóla Íslands ár- ið 2005. Aðspurð segist Eygló aðallega nota jersey efni þar sem svo auð- velt sé að komast í það. „Svo er ég líka búin að nota bambusefni, t.d. í jakka, og svo er „díteillinn“ prent- aður á pólýester.“ Hönnun Eyglóar fæst á Pop Up markaðnum og verður því til sölu í Hugmyndahúsi háskólanna um helgina. „Svo er ég komin alla leið til Færeyja. Það var verið að opna barinn Sirkus þar og á jarðhæðinni er búð sem heitir Zoo og þar eru fötin mín seld. Svo er hægt að nálgast þau á birki- land.com og eyglocollection.com.“ ylfa@mbl.is Grjótið veitir innblástur Eygló Margrét Partýföt fyrir hressar konur. Hönnun Borghildur Gunnarsdóttir fata- hönnuður hannar trégleraugu und- ir merkinu Milla Snorrason en hún er að auki að hanna flíkur sem hún ætlar að koma í sölu á næsta ári. „Gleraugun eru með satínbandi og eru notuð sem hálsmen. Þau eru í raun eins og gleraugnagrím- ur,“ segir hún. Gleraugun eru skorin út í planka af Ore- gon-furu, svo eru þau púss- uð, máluð og sandblásin og loks sett í litla poka sem Borg- hildur saumar. Borghildur notaði gleraugnagrímurnar í útskriftarsýn- ingunni frá LHÍ í vor. „Það voru margir sem spurðu um gleraugun. Síðan fór ég til Danmerkur á sýn- ingu sem heitir CPH Vision, en inn- an hennar er nemendasýning sem heitir Designers Nest, og þar var líka mikið spurt um gleraugun þannig að ég ákvað að fara að selja þau.“ Gleraugun fást í Belle- ville og verða að auki til sölu á Pop Up markaðnum sem haldinn verð- ur um helgina í Hugmyndahúsi há- skólanna. ylfa@mbl.is Gleraugna- grímur úr tré Borghildur fékk innblástur þegar hún var að parketleggja. Morgunblaðið/Heiddi Borghildur Gunnarsdóttir Þ essi jól er kynþokkafyllst að vera hag- nýtur. Græðgi er dottin úr tísku en hinsvegar eiga margir í vandræðum með að kaupa gjafir sem setja þá ekki á hausinn. Nú er áherslan lögð á að hugsa vel hvort um annað og eiga einfaldar en tvíræðar gjafir því vel við. Með því að snúa sér aftur að undirstöðuþáttunum fá pör fullkomna afsökun til að dekra hvort við annað og þannig meta hvort annað betur, með smá kynþokkafullu ívafi. Það eru til margar gjafir sem geta kveikt lostann og það besta er að flestar þeirra kosta ekkert, eða nánast ekki neitt. Unaðsmiðar. Bæklingur með ástar- og kyn- lífsmiðum sem elskhugi þinn getur leyst út hvenær sem er. Hvort heldur sem er smá kelerí þegar enginn sér, eyða heilli helgi uppi í rúmi eða prufa eitthvað nýtt í kynlífinu, þá er þessi gjöf fullkomin sönnun þess að ánægjan marg- faldast sé henni deilt með öðrum. Líkamsmálning. Hægt er að fá slík krem í mörgum ólíkum bragðtegundum en sykurbráð á líkamann veitir fullkomna afsökun til að kanna sköpulag hvort annars á nýjan hátt. Auðvelt er að nálgast ódýrari útgáfur af líkams- málningu í eldhúsinu, t.d. með því að nota sprauturjóma, súkkulaðisósu eða hunang. Það hefur aldrei verið jafngaman að þrífa upp eftir sig! Svefngríma. Grímuna er ekki hægt að nota til að bæta svefninn heldur getur hún bætt dulúð við kynlífið, auk þess að örva skilningarvitin. Nuddkerti. Dragðu maka þinn á tálar með snertingu og lykt sem hann hefur aldrei kynnst áður. Þegar kveikt er á þessum sérstöku nudd- kertum breytist vaxið í prýðisnuddolíu. Láttu olíuna drjúpa varlega á líkama makans og dreifðu svo vel úr henni með blíðum strokum. Svampur. Bjóddu upp á lúxusbað þar sem makinn er nuddaður með svampi frá toppi til táar. Ekki er verra að bæta út í vatnið unaðs- baðolíum. Sápur. Eitt sinn voru sápur aðeins sápur en nú eru fyrirtæki farin að framleiða margar ólík- ar gerðir sem örva skilningarvitin. Dagbók. Skráið sögu ykkar saman. Kauptu dagbók sem þið getið bæði skrifað í, t.d. mis- merkileg tilefni, tilfinningar í garð hvort annars og væntingar ykkar fyrir framtíðina. Myndaalbúm. Skrásettu sögu ykkar með myndum. Prentaðu út allar myndirnar sem eru geymdar í tölvunni eða taktu saman gamlar myndir sem eru á víð og dreif. Raðaðu þeim skipulega í albúm, sem verður tileinkað lífi ykkar saman, og gefðu makanum. Búðu til eitthvað. Hvort sem þú hefur gaman af því að skapa eða ekki, taktu smá áhættu og búðu til eitthvað sem er ómetanlegt aðeins vegna hugsunarinnar sem býr að baki, t.d. lít- inn bækling með heitinu „Það sem ég elska við þig“ þar sem útlistaðir eru allir eiginleikarnir í fari makans sem þú kannt vel að meta. Mynd. Rammaðu inn mynd af ykkur tveim- ur. Þannig geturðu styrkt sambandið, svo ekki sé minnst á þær góðu tilfinningar sem myndin vekur upp í hvert skipti sem horft er á hana. Nú um jólin snýst allt um að hverfa aftur til þess sem raunverulega skiptir máli á sama tíma og nýju upphafi er fagnað. Besta leiðin til að fanga hinn sanna jólaanda er að gefa af sjálfum okkur og hafið í huga að hugs- unin að baki gjöfinni er margfalt verð- mætari en það sem hún kostaði. Gjafir fyrir makann á viðráðanlegu verði Kynfræðing- urinn Dr,Yvonne Kristín Fulbright kyn@mbl.is nýtt kortatímabil kr. pk.998 Grillaður kj úklingur, 2 l Pepsi eða P epsi Max kr. kg Ungnauta p iparsteik1749 verð áður 3 498 50%afsláttur í pk! 4 í pk! 2 400 grömm FP súkkula ðikremkex 300 g 249kr.pk. Panesco Ba guette389kr.pk. FP ávaxtak aramellur489kr.pk. FP frosin jarðarberog hindber48 9kr.pk.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.