SunnudagsMogginn - 13.12.2009, Síða 47
13. desember 2009 47
LÁRÉTT
1. Hálfgert greinarmerki. (9)
5. Heilagur rokkar og býr til smjör. (8)
8. Tæki lem úr sjáanlegum. (7)
11. Mistökin í húsinu. (6)
12. Það er huggun fyrir íþróttafélag. (6)
13. Uppkast að altarissakramenti. (5)
14. Ágóði okkar færir okkur plöntur. (8)
16. Ekki alveg lokaður heldur á þeim sem er næst-
um vitaður. (11)
19. Haddur gyðju er burkni. (10)
21. Kastaðist til fjármagns vegna stefnu sem er
ekki áreiðanleg. (11)
24. Fótabúnaður málara? (8)
28. Vatnsfall bætir fyrir okkur. (9)
30. Bundið af draugagangi? (5)
31. Tilhneiging í nálægt níu ár (6)
32. Tungumál vatnavaxta lýsir hluta strandar. (9)
33. Flækist eftir endilöngum slagnum. (7)
34. Nirfilshátturinn birtist þegar Anní skand-
alíserar. (6)
35. Næ meiðslum hjá viðkvæmari. (6)
LÓÐRÉTT
2. Mammon hálfæpir yfir Asíubúum. (8)
3. Trúarlegar stofnanir þar sem er aldrei kalt
kalla fram loforð. (12)
4. Umsögnin frá karli um heiðurinn. (9)
5. Tveir á hlið í hirslum. (6)
6. Staður þar sem rúmmynd eignast afkvæmi í
íþrótt. (8)
7. Sérfræðingur í sjúkdómum sálna? (10)
9. Stök hreyfir við sjálfstæðum. (8)
10. Kona hjó sef í Namibíu. (8)
15. Fæði öskur með hljóðfæri. (5)
17. Mathákur borðaði ský. (6)
18. Framkvæmdamenn mata hnefann í rugli. (11)
20. Hluti af bæjarfélagi verður á braut. (6)
22. Mér heyrist ílátið undir skítinn vera í anddyr-
inu. (10)
23. Hjá Gerði stórjókst. (8)
25. Ljós skiptinemasamtaka nær að stoppa. (7)
26. Leynir íþróttafélagi í djúpum snjó. (7)
27. Sjá belju hlaupa á eftir þurrkuðum ávexti. (7)
28. Líf og Lína næla sér í band. (7)
29. Fjöllistamaður að tafsa. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 13. des-
ember rennur út næsta föstudag. Nafn vinnings-
hafans birtist sunnudaginn 20. desember. Hepp-
inn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 6. desember sl. er Guðmundur
Kr. Eydal. Hann hlýtur í verðlaun bókina Von-
arstræti eftir Ármann Jakobsson. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Fyrirbyggjandi taflmennska átti
ekki upp á pallorðið hjá skák-
unnendum fyrr á árum. Eins og
að horfa á grasið gróa, sagði
einn. Algerlega áunnið bragð,
sagði annar. Helsti spámaður
þeirrar deildar var Anatolí Kar-
pov. Leysti af hólmi Tigran Pet-
rosjan sem var heimsmeistari
óslitið í sex ár á sjöunda ára-
tugnum. Petrosjan virtist
skynja hættur betur en aðrir.
Kannski var óttaskynið of þró-
að; Tigran virtist stundum alveg
lafhræddur löngu áður en taflið
hófst og jafnteflistilboðunum
rigndi yfir mótstöðumanninn.
Ekki alltaf með berum orðum
heldur einnig með ýmsu lát-
bragði; þegar Bobby Fischer
háði einvígi sitt við Petrosjan í
Buenos Aires haustið 1971 bað
hann um vistaskipti því að
hann kvaðst alltaf vera að rek-
ast á Petrosjan í hótellyftunni
með yfirþyrmandi vesæld-
arsvip.
Karpov bætti þann ermska
upp að flestu leyti þótt þeir
væru líkir um margt. Skákstíll
hann einkenndist af alls kyns
smáspili, „raðtækni“, endur-
tekningum og beinum en þó
oftar óbeinum hótunum .
Margir reyndu að líkja eftir
Karpov en það var erfitt því stíll
hans var persónulegri og út-
smognari en menn hugðu, það
var eins og einhver óljós ógn
héngi yfir höfði mótstöðu-
manna hans; hann gat fyrir-
varalaust breytt um tempó í
leik sínum og var að mati enda-
taflssérfræðingsins Averbakh
„endurskoðunarsinni“ – fyrir
honum staðan á borðinu alltaf
„ný“.
Karpov má í dag muna sinn
fífil fegurri en áhrif hans eru
engu að síður gífurleg og auðsæ.
Meistari dagsins, Magnús Carl-
sen, virðist t.d. hafa lært heil-
mikið af honum. Hann hefur nú
unnið tvær fyrstu skákir sínar á
London chess classic, sterkasta
móti sem haldið hefur verið í
London í 25 ár.
Töfluröðin er þessi: 1. Carlsen
2. McShane 3. Howell 4. Na-
kamura 5. Ni Hua 6. Short 7.
Adams 8. Kramnik.
Ef viðureign Magnúsar Carl-
sen við Vladimir Kramnik úr 1.
umferð er skoðuð má greina
ýmsa þætti sem áður var getið
um t.d. raðtækni og óbeinar
hótanir. Hann lét aldrei beinlín-
is til skarar skriða og þegar
Kramnik lagði niður vopnin
gátu hinir ávallt sögufróðu Eng-
lendingar altént vitnað í nokkr-
ar orrustur sem lauk án þess að
skoti hefði verið hleypt af.
Kasparov mun hafa mælt með
að Carlsen beitti enska leikn-
um, 1. c4 sem er athyglisvert
því sjálfur brá hann aldrei á það
ráð í einvígi sínu við Kramnik í
London árið 2000. Fyrir-
byggjandi leikir í þessari skák
teljast t.d. 37. Hb4 og 39 Bf4 og
43. Re2. Raðtæknileikir eru
nokkrir þ. á m. 40.Kf2.
London 2009; 1. umferð:
Magnús Carlsen – Vladimir
Kramnik
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6
4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2
Rb6 7. 0-0 Be7 8. a3 0-0 9. b4
Be6 10. Hb1 f6 11. d3 a5 12. b5
Rd4 13. Rd2 Dc8. 14. e3 Rf5 15.
Dc2 Hd8 16. Bb2 a4 17. Hfc1 Rd6
18. Rde4 Re8 19. De2Bf8 20. f4
exf4 21. gxf4 Dd7 22. d4 c6 23.
Rc5 Bxc5 24. dxc5 Rc4 25. Hd1
Dc7 26. Bc1Ra5 27. bxc6 bxc6
28. Rxa4 Hxd1+ 29. Dxd1 Hd8
30. Dc2 Df7 31. Rc3 Dh5 32. Re2
Bf5 33. e4 Bg4 34. Rg3 Df7 35.
Bf1 Be6 36. Dc3 Ha8
37. Hb4 Dd7 38. f5 Bf7 39. Bf4
Dd1 40. Kf2 Rb3 41. Be2 Db1 42.
Bc4 Hxa3 43. Re2
– og Kramnik gafst upp.
Frá heimsbikarmóti FIDE í
Khanty Maniysk í Síberíu berast
þau tíðindi að úrslitaeinvígi
muni heyja Ísraelsmaðurinn
Boris Gelfand og Ruslan Po-
nomariov frá Úkraínu. Yfir 130
skákmenn hófu keppni.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Magnús Carlsen er óstöðvandi
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang