SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Side 8
8 20. desember 2009
Í Sviss skall á alvarleg
bankakreppa fyrir rúmu
ári og af henni spratt um-
ræða um það hvað bæri
að gera þegar banka-
starfsemi lands væri
margöld á við stærð hag-
kerfis þess. Ef bankar á
borð við UBS eða Credit
Suisse hryndu, tækju
þeir landið allt með sér.
Niðursveiflan í Sviss
hefur þó verið mun minni
en í grannríkjunum. Fyrir
viku birtust fréttir um
„svimandi“ atvinnuleysi,
sem ekki hefði verið
meira í fimm ár. Þegar
nánar var að gáð fór at-
vinnuleysið úr 4,0% í
október í 4,2% í nóv-
ember. Í löndum Evrópu-
sambandsins er atvinnu-
leysið að jafnaði rúmlega
helmingi meira.
Sviss er í hópi þeirra
ríkja, sem enn eru með hæstu einkunn, AAA, í lánshæfismati matsfyr-
irtækisins Moody’s frá því á þriðjudag. Í greiningu Moody’s sagði að
ekki væri hætta á að neitt þessara landa missti þá stöðu. Í úttekt grein-
ingardeildar vikuritsins The Economist frá því í upphafi mánaðarins
sagði að Svisslendingar væru komnir út úr kreppunni og þótt hægt
gengi stæðu þeir sig betur en grannar þeirra. Það er því ólíklegt að
svissneski frankinn lækki á næstunni.
Hægur bati í Sviss og betri
frammistaða í efnahagslífinu
en í hrjáðum grannríkjum
Óboðinn gestur UBS-bankans.
Reuters
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
35%
AF ÖLLU
JÓLASKRAUTI
Christmas. Skrautkerti m/glimmer.
H15 cm. Verð 395,- NÚ 250,-
H20 cm. Verð 595,- NÚ 380,-
H30 cm. Verð 995,- NÚ 640,-
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8 112 Reykjavík
Opið til 22:00 til jóla
M
argir þeirra, sem tóku myntkörfulán,
standa nú frammi fyrir því hvort þeir
eigi að breyta þeim í innlend lán
byggð á krónum. Það kann að hljóma
skynsamlega, en hafa þarf í huga að staða þeirra
gjaldmiðla, sem lánin voru miðuð við, mun ekki
verða óbreytt um ókomna tíð. Japanska jenið og
svissneski frankinn léku stórt hlutverk í myntkörf-
unum. Báðir þessir gjalmiðlar eru sterkir núna, en
hverjar eru horfurnar á að svo verði áfram?
Sterk staða japanska jensins er áhyggjuefni í Jap-
an. Um mánaðamótin stóð jenið það sterkt að það
hafði ekki verið jafn öflugt gagnvart Bandaríkja-
dollara í 14 ár. Þessi tíðindi leiddu til þess að hluta-
bréf í útflutningsfyrirtækjum á borð við Sony og
Honda féllu.
Á þessum 14 árum hefur vart verið um verðbólgu
að ræða í Japan. Nú óttast menn hins vegar verð-
hjöðnun. Þessi ótti endurspeglaðist í ákvörðun jap-
anska seðlabankans á föstudag að halda stýrivöxt-
um áfram í 0,1 prósenti. Í tilkynningu frá
bankanum var um leið greint frá því að ýmis merki
væru um að japanskt efnahagslíf væri að taka við
sér.
Sérfræðingar seegja að lítil verðbólga auðveldi
fyrirtækjum í útflutningi að kljást við sterkt gengi.
Dollarinn kostar nú um 90 jen, en ekki horfi til al-
varlegra vandræða fyrir útflutningsfyrirtæki fyrr en
hann fari í 55 jen.
Samdráttur í eftirspurn í Evrópu og Bandaríkj-
unum hefur bitnað harkalega á japönskum fram-
leiðendum og hátt gengi jensins hefur gert þeim
enn erfiðara fyrir. Hin nýja ríkisstjórn landsins hef-
ur á stefnuskrá sinni að draga úr því hvað japanskt
efnahagslíf er háð útflutningi. Þess vegna megi ekki
eiga von á því að stjórnin grípi til aðgerða til að
draga úr styrk jensins. Að auki fari viðskipti Japana
við Kínverja vaxandi og þá fari staða jensins gagn-
vart dollara og evru að skipta minna máli.
Sérfræðingar eiga hins vegar margir von á því að
jenið muni ekki halda stöðu sinni mikið fram á
næsta ár og spá því að gengi þess muni lækka er líð-
ur á 2010, en vitaskuld er ógerningur að segja til um
hversu mikið.
Stjórn Yukos Hatoyamas forsætisráðherra tók við
völdum í september eftir að flokkur hans, Lýðræð-
isflokkurinn, vann yfirburðasigur. Hirohisa Fujii
fjármálaráðherra hefur ekki viljað segja hvað þurfi
til að stjórnvöld reyni að hafa áhrif á gengið. Ekki
virðist þó ástæða til þess enn, enda ekkert óvenju-
legt að sjá við það hvernig það myndast. Skapist
hins vegar óeðlileg tilhneiging til að kaupa jen
vegna yrirlýsinga hans um að ekki eigi að keyra
gengið niður gæti stjórnin ákveðið að grípa í taum-
ana.
Fallvalt gengi
Sterkur gjaldmiðill getur verið
veikleiki fyrir efnahagslífið
Vikuspegill
Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is
Hirohisa Fujii, fjármálaráðherra Japans.
Reuters
Reuters
Kaupsýslumenn
á gangi í viðskipta-
hverfinu í Tókýó.