SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Side 22

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Side 22
H líðarfjall síðdegis á miðvikudegi: bjart og fallegt veður. Logn, frostið er fáeinar gráður og roði í fjöll- um út með firði austan megin er sönnun þess að sól- in er ekki fjarri þótt hún lýsi ekki upp skíðasvæði Akureyringa í augnablikinu. Brekkurnar eru lokaðar almenningi en starfsmenn á snjótroðurum eru í óða önn að færa til og slétta hvíta undraefnið, sem gleð- ur svo marga, svo allar brekkur verði boðlegar hverjum sem er daginn eftir. Þetta er bæði náttúrulegur snjór og fram- leiddur, eins og hríðin úr byssunum er kölluð. Starfsmennirnir eru þó ekki einir á svæðinu: Börn og unglingar úr Skíðafélagi Akureyrar og annars staðar af landinu renna sér kröftuglega á milli stanga; æfingar standa yfir fyrir keppnistímabilið sem hefst senn. Hlíðarfjall undir kvöld á fimmtudegi: veðrið er fallegt, dálítið kalt en logn. Töluverður fjöldi er í brekkunum enda svæðið opið alþýðunni, sem hefur nýtt sér frábærar aðstæður í Hlíðarfjalli síðan svæðið fór í vetrargallann á ný fyrir nokkrum vikum. Þegar fyrsta mjöllin fellur til jarðar að hausti hlaupa margir til og byrja að bera undir skíðin. Kannski þegar búnir að því. Er löngu farið að klæja í ilj- arnar, jafnvel búnir að dreyma drifhvítar, brattar brekkurnar lengi; harð- fenni, froststillur og heiðbjartan himin. Framundan eru margir góðir dagar, með eða án Guðnýjar, í brekkunum, og svo framan við sjónvarpið þegar helstu hetjurnar gera sitt besta á Ólymp- íuleikunum í Vancouver í febrúar. Skíði er ævaforn gripur sem farartæki en talið er að rekja megi upphafið að því sem tómstunda- og keppnistæki til Þelamerkur í Noregi á 18. öld. Margar kempur hafa rist nöfn sín í brekkurnar í gegnum tíðina á leiðinni í átt að marki, sumir á leið í átt að gulli, frægð og frama. Næsti maður máir burt fyrra nafnið og þannig koll af kolli, en orðstírinn deyr aldregi. Íslendingar hafa ekki náð svo langt ennþá að vinna til verðlauna á þessari stærstu hátíð skíðamanna, en hver veit nema sigurvegari á þeim vettvangi leynist í íslenskri brekku um þessar mundir. Æfingin skapar meistarann, segir einhvers staðar, og kannski skapar aukaæfingin Ólympíumeistarann. Á myndinni að neðan eru nokkrar kátar stelpur í Hlíðarfjalli á fimmtu- dagskvöldið. Frá vinstri, Aðalbjörg Pálsdóttir, Sandra Björk Arnarsdóttir, Karen Júlía Arnarsdóttir, Eva Björg Halldórsdóttir og María Catharina Ólafs- dóttir Gros. Drifhvítir draumar Bak við tjöldin Skíðavertíðin er hafin fyrir alvöru á Norðurlandi. Náttúruleg mjöll og snjór framleiddur úr vatni í þar til gerðum byssum gleður Akureyringa og gesti þeirra í Hlíðarfjalli þessi dægrin. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Hafsteinn Ingi Pálsson lyftuvörður við efri enda Fjarkans þarf að hafa augun vel opin. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.