SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Síða 26

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Síða 26
26 20. desember 2009 David Arthur Faraday og Betty Lou Jensen áttu sér einskis ills von. Þ að var stór dagur hjá hinni sextán ára gömlu Betty Lou Jensen. Foreldrar hennar höfðu loks- ins látið til leiðast og leyft henni að fara á stefnumót. Heimasætan ljómaði þegar David Arthur Faraday, sem var árinu eldri, kom að sækja hana um kvöldmatarleytið 20. desember 1968. Foreldar stúlk- unnar stóðu í þeirri meiningu að drengurinn ætlaði að fara með hana á jólatónleika í skólanum þeirra, sem var í grenndinni. Það gerði hann ekki. Í stað þess að fara á tón- leikana heimsóttu þau vin sinn og fengu sér bita á veit- ingahúsi áður en Faraday lagði bíl sínum á malarvegi út af Lake Herman Road í Vallejo, Kaliforníu. Þar var kunn „turtildúfutröð“. Talið er að parið hafi verið komið þangað laust eftir klukkan tíu um kvöldið en Faraday hafði lofað að skila Jensen heim klukkan ellefu. Tæpri klukkustund síðar renndi bifreið upp að hlið Ramblersins, sem Faraday hafði fengið að láni hjá móður sinni. Út steig maður vopnaður skammbyssu og skipaði unga parinu að fara út úr bílnum. Jensen fór á undan en þegar Faraday ætlaði að fylgja henni skaut maðurinn hann í höfuðið. Jensen tók til fótanna en komst ekki langt, maðurinn skaut hana fimm sinnum í bakið og banaði henni. Síðan ók hann á brott. Talið er að dauðastríð Faradays hafi staðið stutt en hann var látinn þegar íbúi í grenndinni fann unga parið nokkrum mín- útum eftir árásina. Lögreglan í Vallejo fálmaði í myrkrinu. Engin vitni voru að morðunum og engar vísbendingar komu fram aðrar en þær að bíll hafði sést aka á brott frá staðnum. Það var ekki fyrr en í júlíbyrjun 1969 að lögreglan komst á sporið. Ann- að ungt par var þá skotið með keimlíkum hætti, stúlkan dó en drengurinn lifði árásina af enda þótt hann væri skotinn í andlitið, hnakkann og brjóstið. Daginn eftir hringdi maður í lögregluna í Vallejo og lýsti báðum tilræðum á hendur sér. Nokkrum vikum síðar barst þremur dagblöðum í Vallejo og San Francisco bréf sama efnis. Lögreglan var ekki sannfærð og óskaði opinberlega eftir rökstuðningi frá manninum. Hann ritaði þá dagblaðinu San Francisco Examiner annað bréf, þar sem hann gaf upplýsingar um morðin sem ekki voru á vitorði almennings. Hluti bréfsins var á dulmáli og gaf maðurinn til kynna að tækist lögreglunni að ráða það myndi hún hafa hendur í hári hans. Í bréfinu notaði hann fyrst undirskriftina Dýrahringurinn (e. Zodiac). Þetta var upphafið að tíðum bréfaskrifum Dýrahringsins næstu árin en lögreglunni hefur enn ekki tekist að leysa gátuna. Í einu bréfanna hélt Dýrahringurinn því fram að hann hefði 37 líf á samviskunni en lögreglan hefur aðeins staðfest sjö fórnarlömb, þar af tvö sem lifðu af. Annað þeirra, ungur maður, Bryan Hartnell að nafni, gaf lýsingu á honum (sjá mynd hér að ofan) en 27. september 1969 myrti Dýrahringurinn vinkonu hans, Ceceliu Shephard, þar sem þau voru í nestisferð við Berryessa-vatn. Hartnell slapp við illan leik. Fimmti maðurinn sem Dýrahringurinn er talinn hafa myrt er leigubílstjórinn Paul Stine, sem skotinn var til bana í bíl sínum 11. október 1969. Dýrahringurinn sendi fjölmiðlum efnistætlu úr skyrtu hans. Lögregla hefur fengið óteljandi vísbendingar um Dýrahringinn en ávallt lent í öngstræti. Áhöld eru um hvort síðasta ósvikna bréf- ið hafi borist fjölmiðlum árið 1974 eða 1978. Alltént hefur morðinginn hvorki æmt né skræmt í meira en þrjá ára- tugi. Maður að nafni Arthur Leigh Allen lá lengi undir grun en var aldrei ákærður. DNA-rannsóknir hreinsuðu hann af áburðinum árið 2002, tíu árum eftir dauða hans. Öll þessi mál eru ennþá galopin á borði lögreglu. orri@mbl.is Turtildúfur teknar af lífi Á þessum degi 20. desember 1968 Teikning af Dýrahringsmorðingjanum gerð eftir lýsingu eins fórnarlamba hans sem lifði af. Jensen tók til fótanna en komst ekki langt, maðurinn skaut hana fimm sinnum í bakið og banaði henni. K rafan um aukið lýðræði, aukna þátttöku hins almenna borg- ara í ákvörðunum um mál, sem hann varða, hefur verið undirtónn í þjóðfélagsumræðum allt þetta ár og er að brjótast fram með ýmsum hætti. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti hinn 1. september sl. að ráðast í til- raunaverkefni á þessu sviði. Íbúum ein- stakra hverfa var gefinn kostur á að kjósa í netkosningu um forgangsröðun „fjár- muna til smærri nýframkvæmda og við- haldsverkefna í hverfunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010“, eins og sagði í ávarpi Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur borgarstjóra á netinu. Niðurstaðan var mjög athyglisverð. Tæplega 6.000 Reykvíkingar á 16. aldurs- ári og eldri tóku þátt í netkosningunni. Í átta af tíu hverfum settu íbúarnir um- hverfi og útivist efst á blað og tiltekin verkefni á því sviði. Á næsta ári verður ákveðnum fjármunum varið til fram- kvæmda og viðhalds í hverfunum í sam- ræmi við óskir íbúanna. Um þessa niðurstöðu sagði Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands: „… má segja, að meiri fjöldi íbúa hafi tekið þátt í að taka bindandi ákvarðanir um for- gangsröðun verkefna í sínum hverfum en nokkur dæmi eru til á Íslandi …“ Þetta tilraunaverkefni Reykjavíkur- borgar í að auka þátttöku borgarbúa sjálfra í ákvörðunum um meðferð fjár- muna þeirra mun áreiðanlega marka tímamót í rekstri sveitarfélaga á Íslandi. Ganga má út frá því sem vísu, að Reykja- víkurborg muni þróa þessi vinnubrögð áfram á næstu árum og taka stærri skref í þessa átt. Og líklegt má telja, að önnur sveitarfélög fylgi í kjölfarið. Þetta er til fyrirmyndar. Ekki kemur á óvart, að þessi tímamót verði í borgarstjóratíð Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur. Hún varð ásamt Birni Bjarna- syni fyrst til þess úr hópi forystumanna Sjálfstæðisflokksins, að taka fyrir nokkr- um árum undir hugmyndir um aukið lýð- ræði með beinni þátttöku almennra borg- ara í ákvörðunum. Og hefur auðvitað unnið afrek í borgarstjórn Reykjavíkur með því að setja niður deilur manna á milli og auka samráð á milli fulltrúa flokka í borgarstjórninni. Netmiðillinn eyjan.is hafði forgöngu um það í síðustu viku að efna til þjóð- arkosningar um ríkisábyrgð vegna Ice- save, sem lauk í fyrradag, fimmtudag. Þessi „þjóðarkosning“ fór fram í krafti forrits, sem hannað hefur verið í tengslum við Íslend- ingabók Íslenskrar erfðagrein- ingar og Friðriks Skúlasonar og hefur ver- ið gefið það fallega nafn ÍslendingaVal. Til þess að nálgast atkvæðaseðilinn þurfti kjósandi að fara inn í „rafræn skjöl“ eins og það heitir alla vega í einkabanka Landsbankans. Eftir að atkvæðaseðillinn var fundinn var eftirleikurinn auðveldur. Þessi tilraun eyjunnar.is sýndi, að kerf- ið sem slíkt gengur upp og hægt er að framkvæma kosningu með þessum hætti. En jafnframt leiddi hún í ljós ákveðna veikleika, sem væntanlega verður reynt að sníða af í næstu atrennu. Í fyrsta lagi er auðvitað ljóst, að ekki hafa allir kjósendur aðgang að heimabanka. Þetta kemur glöggt í ljós í minni þátttöku elstu aldurs- flokkanna en annarra. Er hægt að finna skynsamlega lausn á þessu? Í annan stað var engar leiðbeiningar að finna í heimabönkum um hvar atkvæða- seðilinn var að finna. Alla vega þurfti sá kjósandi, sem hér skrifar, að finna at- kvæðaseðilinn af eigin rammleik. Vel má vera, að leiðbeiningar hafi verið að finna á eyjunni.is, en þær hefðu þurft að vera á forsíðu heimabankanna. Eru bankarnir eitthvað feimnir við að veita slíkar upp- lýsingar þar? Í þriðja lagi sýnir reynslan af tilraun eyjunnar.is að til þess að tryggja mikla þátttöku þarf lengri aðdraganda og miklu meiri kynningu á meðal almennings. Í fyrrnefndu tilraunaverkefni Reykjavík- urborgar kom í ljós, að í hvert sinn, sem netkosningin var kynnt með einum eða öðrum hætti opinberlega, tók þátttakan kipp. Þjóðarkosning eyjunnar.is um Icesave opnar hins vegar nýjar víddir í þátttöku almennings í ákvörðunum um málefni, sem varða almannahag. Aðferðin, sem notuð er, sýnir, að aðilar utan stjórnkerf- isins geta tekið höndum saman um slíka atkvæðagreiðslu, jafnvel þótt stjórnkerfið sé því mótfallið. Mjög almenn þátttaka í slíkri þjóðarkosningu hlyti að hafa þau áhrif, að stjórnmálamenn hugsuðu sig um tvisvar áður en þeir gengju gegn þjóðar- vilja, sem þannig birtist. Þjóðarkosning eyjunnar.is nú er að mörgu leyti ígildi öflugrar skoðanakönn- unar og þegar horft er til niðurstöðu hennar ásamt því að hátt í 40 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til for- seta Íslands um að vísa Icesave-málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu væri óskyn- samlegt af stjórnvöldum að taka ekki tillit til þeirra viðhorfa, sem þar koma fram. Núverandi ríkisstjórn gæti rétt hlut sinn í Icesave-málinu með því að leggja þá ákvörðun undir dóm þjóðarinnar, hvort veita eigi umrædda ríkisábyrgð. Þau rök Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráð- herra og formanns Vinstri grænna, að ekki henti að leggja slíka ákvörðun undir atkvæði kjósenda ganga ekki upp. Þetta sama fólk á að borga og það er lýðræð- islegur réttur þess að taka þá ákvörðun sjálft. Þessi tvö mál, netkosning Reykjavík- urborgar og þjóðarkosning eyjunnar.is, eru skýr vísbending um að hugmyndir um að auka þátttöku almennings í mikil- vægum ákvörðunum, sem varða lands- menn eða íbúa einstakra sveitarfélaga miklu, eru að fá byr undir báða vængi. Þau eru vísbending um að samfélagið er hægt og bítandi að finna sér leið út úr þeim ógöngum, sem bankahrunið sýndi, að við vorum komin í. Beina lýðræðið er að brjótast fram Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.