SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Qupperneq 30

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Qupperneq 30
30 20. desember 2009 S veitarstjórnarkosningar verða næsta vor. Enn hefur ekki komist mikið rót á hugi manna vegna þeirra. Oft heyrist því hald- ið á lofti að litlu skipti hverjir sitji við völd í sveitarfélögum. Hið pólitíska svigrúm á þeim vettvangi sé mjög takmarkað, og lífsskoðanir stjórnmálamanna hafi minna vægi þar en í lands- málum. Það er töluvert til í þessu. Löggjafinn hef- ur sett sífellt fleiri ramma, stóra og smáa, um starfsemi sveitarfélaga og því eru hin svokölluðu lögbundnu verkefni sveitarfélaganna orðin mjög fyrirferðarmikil í stjórnsýslu þeirra. Svigrúm til athafna utan ramma er því orðið mjög takmarkað. Sveitarfélög leiddu áður í mikilvægum málaflokkum Er þetta mikil breyting frá því sem var fyrir fáein- um áratugum. Reykjavíkurbær, síðar -borg, var lengi á síðustu öld mjög mótandi um verkefni sín og laut takmarkaðri lagaforskrift. Bæjarfélagið sjálft hafði mjög frjálsar hendur um að ákveða hvaða verkefni það léti til sín taka og með hvaða hætti. Þannig hafði þetta sveitarfélag forgöngu um uppbyggingu í skóla- og fræðslumálum, sem síðar varð fordæmi víðar og loks forskrift að meginþátt- um langra lagabálka um sviðið, þegar ríkið tók loks forystuna. Sama gilti um félagsmálakerfi Reykjavíkur, sem lengi laut sínum eigin lögmálum og var byggt upp af myndarskap og útsjónarsemi. Allt hefur þetta umhverfi breyst með vaxandi vilja ríkisvaldsins til að tryggja samræmi í þjónustu sveitarfélaga og skyldum þeirra gagnvart íbúun- um. Sveitarfélögum er í stjórnarskrá tryggt sjálf- stæði í orði kveðnu, en mjög hefur verið af því sjálfstæði sneitt ár frá ári. Ekki þarf að efast um að það sé í góðu gert og í nafni göfugra gilda, svo sem jafnræðis og réttlætis. En það er ekki víst að rétt- lætið hafi haft sigur úr þeirri miðstýringu allri ef grannt væri skoðað. En eins létt og lipurlega og um réttlætið er talað er það ekki auðmælt. Því get- ur vel verið að sveitarstjórnarmenn sem mættu sjálfir leita nýrra lausna á viðfangsefnum og vanda dagsins römbuðu ekki á síðra réttlæti og hagfelldara en felst í forskriftunum úr ráðuneyt- unum, sem þingmenn hafa, stundum með bundið fyrir augu, geirneglt í lög. Þá hafa ráðuneyt- ismenn átt næsta leik og smíðað langhunda með ótrúlegri smásmygli og sett í reglugerðarbúning sem ráðherrann undirritar jafnblindandi og lögin voru afgreidd. Þessa umgjörð um líf sitt sitja sveitarstjórnarmenn svo uppi með. Þetta um- hverfi verður svo til þess að sífellt verður erfiðara að selja kjósandanum þá hugmynd að það sé til einhvers að tölta á kjörstað og kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórnina. Enn er kosningaþátttaka þó bærileg hér á landi, en í nágrannalöndum, þar sem svipuð stjórnskipunarþróun hefur orðið í sveitarfélögum og hér á landi, fækkar þeim ört sem taka þátt í slíkum kosningum. Kjósendur hafa smám saman komist að þeirri niðurstöðu að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum skipti ekki lengur jafnmiklu máli og áður. Leikreglurnar og lagaramminn sé orðinn svo niður njörvaður að pólitískar línur hafi ekkert lengur með stjórn þessara eininga að gera. Skiptir enn máli hverjir stjórna? En þrátt fyrir að fátt sé ofsagt um þróun sveitar- stjórnarmála hér að framan er þó enn hægt að sýna fram á að það getur skipt máli hverjir eiga síðasta orðið í sveitarstjórninni við tilteknar að- stæður. Það skiptir auðvitað ekki öllu máli um hvort sorp verði fjarlægt, götur mokaðar, gras slegið, malbik endurnýjað, upphækkanir settar og þar fram eftir götunum að þessi eða hinn flokkurinn ráði mestu í sveitarstjórninni. Um langstærstan hluta þeirra verkefna sem sveitar- stjórn fæst við er enginn ágreiningur og duglegir og framsæknir sveitarstjórnarmenn verða oft að sýna töluverða leikni til að láta bera meira á ágreiningi en hinu sem ágreiningslaust er. En hin dæmin eru til og þau geta verið mjög mikilvæg. Dæmi um Reykjavík Þegar R-listi, sem svo var nefndur, tók við stjórn borgarinnar 1994 eftir tólf ára stjórn sjálfstæðis- manna var borgin nánast skuldlaus, þrátt fyrir að hafa staðið í stórum og áberandi framkvæmdum. Þegar R-listatímabili lauk voru skuldir borg- arinnar og fyrirtækja hennar orðnar mjög miklar á hvaða mælikvarða sem á er litið. Það þýðir í sinni einföldustu mynd að vaxandi hluti fjármuna borgarinnar fer til sífellt hækkandi vaxta- greiðslna. Slíka peninga væri ella hægt að nýta til þarfra verka í borginni eða þá til þess að sýna hóf í skattheimtu á borgarbúa. Þessa óþægilegu mynd er ekki auðvelt fyrir íbúana að grípa. Hún blasir ekki við. Sama gildir um stjórnkerfi borgarinnar. Því var öllu snúið á haus, þvælt og hringlað. Svið- um af ýmsu tagi var fjölgað. Þekktum einingum var sundrað. Og hið straumlínulaga stjórnkerfi sem tryggði skilvirka ákvarðanatöku og gegnsætt ferli var ruglað. Röksemdin fyrir þessu stjórn- sýslulega uppnámi sem stjórnkerfinu var hleypt í var einkum sú að stjórnkerfið hefði verið lagað að eins flokks stjórnkerfi því sem hentað hefði Sjálf- stæðisflokknum og það gengi ekki lengur. Breyt- ingarnar gáfu nýjum meirihluta vissulega tæki- færi til að raða inn nýjum embættis- og starfs- mönnum í stað þess að bíða þolinmóður eðlilegra starfsmannabreytinga. En aðferðin þýddi einnig að stjórnkerfið bólgnaði út og flækjustigið fór vaxandi og ákvarðanatöku seinkaði mjög á flest- um sviðum. Slíkum óþurftarbreytingum í opin- beru stjórnkerfi verður ekki svo auðveldlega breytt á ný. Stjórnsýslureglur eru til þess fallnar að auðvelda aukningu stjórnkerfisins en setur steina í götu þeirra sem vilja gjarnan vinda ofan af vitleysunni. Dæmi frá Álftanesi Annað nýlegt dæmi er frá Álftanesi. Þar var ákveðið að gera tilraun með að skipta út meiri- Hallgrímskirkja í Reykjavík Var bankakreppan á Álftanesi? Reykjavíkurbréf 18.12.09

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.