SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Side 41
20. desember 2009 41
Hrærðar kökur eru hrærðar með hrærara en þeyttar kökur með
þeytara. Athugið að þegar þeyttar eru eggjahvítur má engin eggja-
rauða fara með og skálin þarf að vera hrein og ekkert vatn í henni. Ef
þetta er ekki í lagi þeytast eggjahvíturnar ekki.
Marengs er sett beint á bökunarpappír, smyrjið ekki undir. Bök-
unarpappír er með sérstakri húð. Smjörpappír er ekki það sama og
bökunarpappír. Geymið smákökur í boxum og hafið plastpoka inn-
an í og lokið vel, látið kökurnar kólna áður en þær eru settar í boxin.
Sörur er best að geyma í frosti eða ísskáp. Svampbotna er best að
frysta en marengs þarf ekki að frysta.
Næst tölum við um matarlím.
Húsráð
Margrétar
Hrært og þeytt
Ölgerðin Egill Skallagrímsson var
stofnuð árið 1913 og fyrsti drykk-
urinn sem fyrirtækið framleiddi
var hið eina sanna Egils Mal-
textrakt. Appelsínið kom til sög-
unnar hjá Agli 1955 og fljótlega upp
úr því varð til sú skemmtilega hefð
að blanda drykkjunum tveimur
saman. Ekki er vitað hverjum datt
það í hug eða hvers vegna, en lík-
legt að það hafi verið til þess að
drýgja maltið, sem var álitið mun-
aðarvara á þessum tíma. Ýmsar
hefðir hafa skapast í kringum há-
tíðarblönduna og fólk hefur mis-
jafnar skoðanir á því hver hlut-
föllin eiga að vera. Þá þykir mörgum skipta máli hvernig kanna er
notuð, hvort drykkurinn á að standa í ákveðinn tíma fyrir neyslu og
síðast en ekki síst eru mjög skiptar skoðanir þegar kemur að froð-
unni.
Mörgum finnst drykkurinn njóta sín best með þykkum froðuhaus í
glærri glerkönnu. Bent hefur verið á að ef kannan hefur verið þvegin
með öðru leirtaui er hætta á að froðan endist verr. Því sé best að þvo
könnuna eina og sér og skola vel og vandlega. Þá sitji froðuröndin
eftir í könnunni og segi til um hversu oft var hellt úr henni. Það sama
gildir með glös undir jólaöl og bjór – ef glösin eru alveg fitulaus þá
lifir froðan lengur og froðurákirnar sanna það. Og svo er stundum
spurt að því hvoru eigi að hella á undan. Skiptir það máli? Í bæklingi
frá Ölgerðinni segir að ef appelsíninu er hellt út í maltið geti froðan
orðið efiðari viðureignar. Stafrófsröðin sé því líklega best; fyrst app-
elsín og síðan malt. Þeir sem gefi sér góðan tíma helli reyndar gjarnan
maltinu fyrst og láti það standa í fjórar eða fimm mínútur og bæti
appelsíninu svo rólega saman við. Í lokin sé svo smáskvetta af malti
látin buna beint ofan í könnuna til að froðan verði þykk og góð.
skapti@mbl.is
Drykkur vikunnar
Malt og appelsín
Jólapastarétturinn
Maack-fjölskyldan segist lítið fyrir að gefa upp nákvæm
hlutföll þannig að lesendur verða að láta sér heldur lauslega
uppskrift nægja.
Þessi réttur krefst smáundirbúnings. Kjúklingabringur
þurfa að marínerast í ólífuolíu, rifnu engiferi og hvítlauk í
hálfan til heilan sólarhring. Næst er best að búa til engifer-
brjóstsykur. Hann er gerður þannig að engifer og strásykur
eru sett, í nánast jöfnum hlutföllum, á smjörpappír og á disk.
Þetta er hitað í örbylgjuofni þar til sykurinn bráðnar en gæta
þarf þess að sykurinn brenni ekki. Þetta er hrært vel saman
og látið kólna úti í glugga. Þegar brjóstsykurinn er orðinn
harður er hann rifinn með rifjárni.
Meðan tagliatelle sýður í potti skal saxa mjög smátt 5-7
sneiðar af beikoni. Beikonið er steikt á berri pönnu svo úr
komi dálítil feiti. Kjúklingabringurnar eru steiktar upp úr beik-
onfeitinni þar til þær verða stökkar að utan, því næst eru
þær settar í ofn. Þegar tagliatelle-ið er tilbúið er því skellt á
pönnuna með beikoninu ásamt matreiðslurjóma og miklum
hvítlauk. Bringurnar eru teknar úr ofninum og settar ofan á
pastað. Svo er rifna engiferbrjóstsykrinum stráð yfir.
Ís
4 eggjarauður
1 egg (heilt)
3-4 msk flórsykur
þeytt saman
hálfur líter rjómi, þeyttur sér
slegið saman rólega
1-2 pokar af kóngabrjóstsykri (rauðum anísbrjóstsykri) -
mulið smátt (má gera í matvinnsluvél)
öllu slegið létt saman, fryst í minnst sólarhring
Íssósa:
hálf plata af suðusúkkulaði
2 mars súkkulaðistykki
1,5 dl rjómi
brætt saman í potti eða í skál í vatnsbaði.
Jólapastarétturinn og
kóngabrjóstsykursísinn
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
Klappastíg 44 – Sími 562 3614
Enskt Seville marmelaði
Fyrir jólamorgunmatinn
Jarðaberjasulta
Góð í jólabaksturinn
Sítrónu-Lime marmelaði
Gott á ristað brauð og kex
Piparrótarsósa
Góð með Roast Beef og reyktum laxi
Cranberry sósa
góð með Kalkún, Villibráð og Paté
Myntuhlaup
Gott með lambakjöti
Ómissandi með
jólamatnum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111