SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Qupperneq 48

SunnudagsMogginn - 20.12.2009, Qupperneq 48
48 20. desember 2009 É g hef haldið því fram að umræða um íslenskt mál geti verið skemmtileg. En einhvern veginn hefur mér fundist sem meiri gleði og snerpu hafi vantað í þessa um- ræðu síðustu árin. Gísli Jónsson mennta- skólakennari var eldhugi og hann vann auðvitað afrek með því að halda úti viku- legum móðurmálsþáttum í Morgun- blaðinu ár eftir ár. Árið 1996 var hluti þáttanna gefinn út í bókinni Íslenskt mál. Oft gluggaði ég í þá bók og sótti mér þang- að hugmyndir til að nota í kennslu minni. Svo lánaði ég bókina einhverjum sem ekki skilaði henni og satt að segja finnst mér afleitt að geta nú ekki gripið til hennar. Þegar rætt er um móðurmálið er gott að forðast nöldur og barlóm. Slíkt fælir fólk frá góðu málefni, drepur áhugann. Gísli Jónsson nöldraði ekki. Hann benti á hvað væri gott og fallegt og rökstuddi mál sitt með dæmum. En nöldrið megum við muna sem nú erum komin á virðulegan aldur: „Þú átt ekki að segja mér hlakkar heldur ég hlakka.“ Nú eru börn ekki leiðrétt á sama hátt og áður. En á móti kemur tómlætið sem ég ýjaði að, afskiptaleysi gagnvart móður- málinu. Íslenskan er ekki í tísku – eða var það a.m.k. ekki í góðærinu (þegar banka- menn vildu fara að taka hér upp ensku). Þetta kann að vera að breytast. Ég hef sagt við nemendur mína (verðandi kennara) að umræða um mál og stíl geti að nokkru leyti leyst „málfræðistagl“ af hólmi, að málfræðin komi sjálfkrafa og fyrirhafn- arlaust ef hún er notuð í lifandi umræðu um mál og stíl. Þegar við útskýrum t.d. hvað felist í muninum á „mér hlakkar“ og „ég hlakka“ þurfum við, ef vel á að vera, að notast við hugtök eins og nefnifall, þágufall, frumlag, persónuleg sögn, ópersónuleg sögn, 1. persóna og 3. per- sóna. Í leiðinni má skemmta nemendum með því að ræða um sjúkdóminn „þágu- fallssýki“; það var ekki alveg í lagi með okkur sem ekki vissum að sögnin að hlakka væri persónuleg sögn en ekki ópersónuleg. En umræða um mál og stíl þarf ekki að vera háð mörgum hugtökum úr málfræði og stílfræði. Það þarf ekki flókinn orða- forða til að benda á hvað geri þennan texta læsilegri en hinn eða hvað það sé í máli þessa manns eða hins sem gerir hann áheyrilegan. Það þarf t.d. ekkert að skýra snilld prestsins sem sagði í útvarpsmessu þann 14. þ.m. að þjóðin hefði verið á sum- ardekkjunum. Sú hætta er alltaf fyrir hendi að þeir sem gagnrýna aðra fari óþarflega geyst. Bene- dikt Gröndal Sveinbjarnarson sagði í blaðagrein árið 1899: „Sá sem „krítiserar“ ætti að líta vel í kringum sig áður en hann kveður upp dauðadóminn“ (sjá Ritsafn IV:124). Gröndal vísar til greinar í Nýju öldinni þar sem Jón Ólafsson skáld og rit- stjóri fer hörðum orðum um málfarið í leikritinu Hellismenn eftir Indriða Ein- arsson og segir meðal annars að orða- sambandið „að skora einhverjum á hólm“ sé rassambaga. En Gröndal bendir vin- samlega á að í 8. kafla Njálu standi: „Ég skora þér á hólm.“ Með hugtökum mál- fræðinnar mætti þá segja að sögnin að skora geti stýrt þágufalli þó hún stýri yf- irleitt þolfalli: „Ég skora þig á hólm.“ Gröndal var náttúrlega bráðskemmti- legur. Í upphafi fyrrnefndrar greinar segir hann: „Það hefur fyrir löngu verið við- urkennt að málið væri hin öflugasta stoð þjóðernisins, og sérhver sú þjóð, sem vill halda sjálfri sér við og ekki láta aðrar meiri þjóðir gleypa sig, leitast við að viðhalda máli sínu sem hreinustu og óbjöguðustu. (Þetta á raunar síður við Engla og Frakka þar sem þeirra mál eru miklu meir blönd- uð og ósjálfstæð en íslenska, danska, þýska og sænska; „norska“ er ekki annað en bjöguð danska og verður aldrei veruleg norska fyrr en hún sameinar sig íslensk- unni alveg).“ Ég ætla ekki að ræða innihald þessarar klausu en benda á það til gamans hvað gæsalappir geta verið áhrifamiklar. „Norskan“ er innan gæsalappa í fyrra skiptið en ekki í það síðara – enda er hún þá orðin eiginleg norska! Þetta minnir mig á það að greinarmerkjasetning hjá okkur Íslendingum er í skötulíki um þessar mundir. Gaman væri að ræða það nánar síðar. Sex ára börn í Melaskóla árið 1970. „Nú eru börn ekki leiðrétt á sama hátt og áður.“ Úr myndasafni Morgunblaðsins/Ólafur K. Magnússon „Ég skora þér á hólm“ Þegar rætt er um móðurmálið er gott að forðast nöldur og barlóm. Slíkt fælir fólk frá góðu málefni, drepur áhugann. Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is O ddný Eir Ævarsdóttir hefur lagt gjörva hönd á margt frá því fyrsta bók hennar, Opnun kryppunnar, kom út fyrir fimm árum. Meðal annars hefur hún unn- ið að doktorsritgerð, rekið gallerí í New York, stýrt útgáfunni Apaflösu með Ugga bróður sínum, skrifað kvikmyndahandrit og greinar í blöð og tímarit og tekið þátt í baráttu gegn álvæðingu Íslands aukin- heldur sem hún hefur unnið að rann- sóknum á minjamenningu og myndlist. Fyrir stuttu kom út önnur skáldsaga hennar, Heim til míns hjarta – Ilmskýrsla um árstíð á hæli. Oddný segist hafa byrjað á bókinni þegar hún bjó í New York, en skrifað lungann í Suður-Frakklandi á síðasta ári og notaði þá ósjálfráða skrift meðal annars til að finna út hvenær sólarhringsins væri best að skrifa. Hún segir að dvöl á heilsu- hælinu í Hveragerði hafi og nýst henni vel til skrifta og síðustu mánuðir hafi síðan farið í að klára verkið. Í mörgum lögum „Heim til míns hjarta er unnin á mörgum stöðum og í mörgum lögum enda fannst mér það passa best því ég er að segja svo margt í einu. Ég vildi hafa hana þannig að ég væri að segja allt í einu, nánast í belg og biðu,“ segir Oddný, en bætir við að þegar hún var sátt við textann hafi hún skipt honum upp í kafla til að létta hana aðeins og gera væntanlegum lesendum auðveld- ara fyrir. Hún byggði bókina upp og skipti henni í kafla eftir ólíkum fösum í ferli eimingar og ilmefnavinnslu „en ég hætti við að láta efnið lúta því ferli eingöngu, það hefði sett efninu of þröngar skorður. Önnur umbreytingarferli og sköpunarferli ráða því uppbyggingunni ekki síður, en ilmur og ilmvötn er samt mikill þáttur í verkinu. Ég ætlaði líka að fylgja þeirri reglu miðaldamanna að láta verkið bíða í níu ár áður en það yrði gefið út, en svo var ég af góðum vinum hvött til að slá bara til og senda hana út í heiminn og ég fann hvað það var mikill léttir þegar ég sendi handritið til útgefanda og fékk góð augu til að lesa textann yfir og koma inn í út- gáfuferlið með mér.“ Að þessu sögðu þá segist Oddný eigin- lega varla hafa gert sér grein fyrir að ein- hver myndi lesa bókina fyrr en hún fékk í hendurnar fyrstu innbundnu eintökin af henni. „Ég var náttúrlega með lesendur í huga þegar ég var að ganga frá henni en ég var orðin svo spennt í sjálfu útgáfu- og prentferlinu að mér brá þegar því lauk og bókin var tilbúin, þá fannst mér eins og ég hefði verið í einhverju tómi og alveg Sjálfsævi- sögulegur skáldskapur Oddný Eir Ævarsdóttir sendir frá sér sína aðra skáldsögu fyrir þessi jól og veitir þar aðgang að hjarta sínu, segir: Þetta er ég, og er alveg óhrædd við það. Hún vildi hafa bókina þannig að hún væri að segja allt í einu, nánast í belg og biðu. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Lesbók K rístín Ómarsdóttir er ekki sérlega aðgengi- legur höfundur þótt barnsleg einlægni og ævintýralegur blær sé aðal- einkennið á skáldverkum henn- ar. Í nýrri bók hennar, Hjá brúnni, stígur lesandi inn í undraheim framandi borgar á óræðum tíma þar sem ballerínur og óléttar prinsessur leika laus- um hala, kynlífsandar leita uppi breim og apaskáld og valds- menn reyna að beisla skáld- Torræð og fögur Bækur Hjá brúnni bbmnn Skáldsaga eftir Kristínu Ómars- dóttur. Uppheimar, 303 bls. Texti Kristínar er ljóðrænn, „framvindan hæg, sögu- þráður krókóttur og samtöl taka óvæntar dýfur.“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.