Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1959, Blaðsíða 26

Skólablaðið - 01.03.1959, Blaðsíða 26
26 - snýr sér skyndilega að ENGUM ) hvern djöfulinn ert þú að pípa þú getur ekkert sannað en ég sanna allt a • b = ab (beinir geislum sínum að ENGUM ) þessir snaróðu yógar og heimspekingar og líberal- istar og anarkistar eru fyrir hinni nýju fögru veröld sem ég mun skapa öVLum mönnum og allir munu verða ánægðir og hamingjusamir og það geri ég með cýclótróninum í samræmi við ford og freud ENGINN : ( hverfur ) HVER SEM. ER : þú ert eins og jarðýta í framan og þú ferð að verða hættulegur sennilega sloppinn af kleppi að ganga svona um og drepa fólk það dytti mér aldrei í hug þótt ég ætli í bisness og nú fer ég út með KVENMANNINN V SPILINU sem ég elska svo heitt út í tunglskinið til að horfa á blómin og dansa cha-cha MAÐURINN MEÐ CÝCLÓTRÓNINN: í framtíðinni verður engin ást engin fegurð engin trúarbrögð engin heimspeki engin list engar bókmenntir engir sjúkdómar engin elli engin sorg og ekkert djöfuls þvaður heldur bókanóvskí-prinsípið og börn verða framleidd í flöskum menn verða heilaþvegnir og gerðir að ánægðum öpum með misjöfnu gáfnafari °g v.* ( sírenugaul lögreglubílsins í fjarlægð sem hefur heyrst allan tímann með tuttugu sekúndna millibili hækkar nú greinilega eins og bíllinn færist nær ) KVENMAÐURINN í SPILINU : er við kaprí rjálar hinn blái sær róa sjómenn til fiskjar út á hið bláa haf en togarasjómanni tamast það er að tala sem minnst um það allt það gefur á bátinn við grænland MAÐURINN MEÐ CtCLÓTRÓNINN: (beinir geislum sínum að KVEN- MANNINUM I SPILINU ) í þágu vísindanna og almennrar vel- ferðar KVENMAÐURINN 1 SPILINU: (deyjandi) he has got the whole world in his hands he got the whole world in his hands he got the whole world in his hands he got you and me brother ( deyr ) HVER SEM ER : (kastar sér yfir lík sinnar heittelskuðu og fremur hina venjulegu harmsenu - sjá shake- speare - að því loknu lætur hann fallast fram á sverð sitt og deyr ) MAÐURINN MEÐ CÝCLÓTRÓNINN : nú mun ég organiséra allt og leggja allt vald í eina hönd óskorið vald vald vald °g byggi upp þjóðfélag effektíft þjóðfélag sem vinnur eins og vél vél vél ( hann fer út til vinstri ) (ekkert heyrist nema hávært gaul sírenunnar á lögreglubílnum ) í fjarska heyrist gífurleg sprenging teningurinn á miðju sviðinu klofnar í tvennt og úr honum vellur kók og prinspóló SNJÓMAÐURINN ÚR HIMALAYAFJÖLL- UNUM (kemur fram á sviðiö og fær sér kók og prinspólój tjaldið JÓTA KAPPA

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.