Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 1

Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 1
Um sex milljarða útgjaldaaukning Stuðst hefur verið við þá þumalputtareglu að forráðamenn greiði um þriðjung heildarkostnaðar leik- skólans og sveitarfélögin afganginn. Á árunum 2004-2008 jukust útgjöld sveitarfélaganna um rúma sex milljarða króna vegna leikskóla. Á sama tíma drógust greiðslur forráðamanna barnanna saman um 25% eða um ríflega milljarð vegna aukinna niðurgreiðslna sveitarfélaga. Á myndinni sjást börnin á leikskólanum Kató í Hafnarfirði velja sér jólatré fyrir skólann. Enn er því hægt að gera sér dagamun. Skólakerfinu gert að spara 6-7 milljarða  Matseðill í leikskólum ræðst af tilboðum í lágverðsverslunum  Handþurrkur víkja fyrir handklæðum og kló- settpappír skammtaður Morgunblaðið/Heiddi Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is MIKIL hagræðing hefur átt sér stað í skólum landsins undanfarin misseri en hún nægir ekki til og á næsta ári er leikskólum, grunnskólum, fram- haldsskólum og háskólum gert að spara sex til sjö milljarða króna til viðbótar, miðað við líðandi ár. Morgunblaðið birtir fréttaskýringar um málið í dag og næstu fjóra daga. Þar kemur meðal annars fram að skólastjórnendur leggja áherslu á að sparnaðurinn bitni hvorki á kennslu né þjónustu við nemendur en ljóst er að eitthvað verður undan að láta ef fram heldur sem horfir. Í fréttaskýringu dagsins um stöðuna í leikskól- um kemur meðal annars fram að kostnaður sveit- arfélaga vegna leikskóla ársins var tæplega 22,5 milljarðar króna 2008, en þeim er gert að hagræða um einn til einn og hálfan milljarð á næsta ári. Viðmælandi hefur áhyggjur af fæði og þrifum á leikskólunum, segir að matseðillinn ráðist að miklu leyti af tilboðum í lágverðsverslunum hverju sinni, handþurrkur víki fyrir handklæðum og klósettpappír sé skammtaður. „Við höfum áhyggjur af öryggi barnanna.“  Skólakerfi á krossgötum Hverjum steini velt við | 12 M Á N U D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 332. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Stúfur k ominn Margur er knár … *Nánar um skilmála á flytjandi.is PI PAA P RR \\ BW A W A TB ••• SÍ A • 9 SÍ A • 91 8 81 S 91 8 8 «DAGLEGTLÍF ALDAGÖMUL UPP- SKRIFT AÐ JÓLAMAT «MENNING Hampa ætti barna- bókahöfundum 6 Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SVOKÖLLUÐ þjóðarkosning um hvort Alþingi eigi að samþykkja eða synja ríkisábyrgð á Icesave- samkomulaginu við Breta og Hol- lendinga hófst á Netinu í gær. Vefmiðillinn Eyjan efnir til kosn- ingarinnar, en notast er við kerfið ÍslendingaVal, sem þróað er af Ís- lenskri erfðagreiningu. Kjósendur nálgast aðgangskóða í gegnum heimabanka sinn og geta svo kosið á netinu. Hægt að nota við þingkosningar Kosningin er óformleg, en Há- kon Guðbjartsson, framkvæmda- stjóri upplýsingatæknisviðs Ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að með ákveðnum breytingum sé hægt að nota kerfið fyrir lög- bundnar kosningar, t.d. til Alþing- is. Þingmenn eru samkvæmt stjórn- arskrá aðeins bundnir af eigin sannfæringu og eiga að fylgja henni á þinginu, að sögn Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálf- stæðisflokksins. „Hins vegar hef ég ekkert á móti því að reynt sé að leiða fram þjóðarviljann, hvort sem það er gert með undirskriftasöfn- unum eða óformlegum kosningum. Stjórnvöld verða líka að svara kalli almennings um beinni þátttöku fólks í ákvörðun mikilvægra mála.“ Ekki náðist í Jóhönnu Sigurð- ardóttur, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjár- málaráðherra, vildi ekki tjá sig um málið.  Kosið rafrænt | 4 Óformleg netkosning um Icesave-málið Kjósendur nálgast kjörseðil í gegnum einkabanka sinn » Kerfið þróað af Íslenskri erfðagreiningu » Enginn getur kosið oftar en einu sinni » Geta sannreynt að rétt sé farið með atkvæði » Upplýsingar dulkóðaðar tvisvar sinnum Karlalið KA og kvennalið HK unnu toppleiki Íslandsmótsins í blaki um helgina, gegn HK og KA í Digra- nesi, og eru í efstu sætunum þegar mótið er hálfnað. ÍÞRÓTTIR HK og KA eru á toppnum í blakinu ÁGÚST Jóhannsson hefur aðeins þjálfað norska handknattleiksliðið Levanger í hálft ár. Forráðamenn þess eru hins vegar svo ánægðir með störf hans að þeir hafa þegar fengið hann til að gera nýjan samn- ing til þriggja ára. Ágúst með nýjan samning í Noregi  Breytingartillögur meirihlutans í fjárlaganefnd þýða að halli á rík- issjóði verður 101 milljarður króna en ekki 87 milljarðar eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í október. Lagt er til að ráðstöfunarfé ráðherra minnki um 21,2 milljónir og fram- lög til þingflokka skerðist um 10%. Útgjöld aukast m.a. sökum þess að fjölmargar niðurskurðartillögur hafa verið dregnar til baka, svo sem fyrirhugaðar skerðingar á barnabótum. Þá aukast útgjöld til dóms- og fangelsismála. »6 Eyða Breyta fjárlagafrumvarpi. Leggja til að halli á rík- issjóði verði 101 milljarður  MIKILL munur getur verið á heildargreiðslu vegna íbúðarláns eftir því hvort um óverðtryggt lán í erlendri mynt eða verðtryggt krónulán er að ræða. Sé erlendu láni breytt í krónulán og höfuðstóll lækkaður lækkar greiðslubyrði lántakanda töluvert fyrstu árin en þyngist svo með tím- anum. Að sama skapi léttist greiðslubyrði á óbreyttu erlendu láni með tíma. Margir óvissuþættir hafa hins vegar áhrif á endanlega nið- urstöðu, svo sem verðbólga og gengisþróun krónunnar. »2 Mikill munur á heildar- greiðslu vegna íbúðarláns Lán Margir tóku erlend lán fyrir íbúðarkaupum sínum fyrir hrun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.