Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
Rjómi
allra landsmanna
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/
S
ÍA
–
0
9
–
2
2
2
5
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MIKILL munur getur verið á heildargreiðslu
íbúðaláns í erlendri mynt, eftir því hvort lántak-
andi tekur tilboði banka um niðurfellingu hluta
höfuðstóls eða ekki. Á bloggsíðu sinni tekur Guð-
mundur Andri Skúlason, talsmaður Hagsmuna-
samtaka lánþega Frjálsa fjárfestingabankans,
dæmi um mismunandi heildargreiðslur eftir því
hvaða leið lántakandi ákveður að fara. Segir hann
að tilboð Frjálsa sé sambærilegt við tilboð Arion
banka og fleiri fjármálastofnana um lausnir fyrir
viðskiptavini með erlend lán.
Hafa ber þó í huga við útreikninga sem þessa
að ógerlegt er að spá þróun gengis, verðbólgu eða
breytilegra vaxta áratugi fram í tímann. Þá er
rétt að benda á að vegna verðbólgu er verðgildi
heildargreiðslu eftir 40 ár ekki það sama og
krónutalan gefur til kynna. Tölurnar eru þó tæk-
ar til að gera samanburð á mismunandi lánateg-
undum.
Í útreikningum sínum miðar Guðmundur við
reiknivél Frjálsa fjárfestingabankans á láni hans
frá bankanum, sem upphaflega var um 20,3 millj-
ónir króna, að helmingi í svissneskum frönkum og
að helmingi í japönskum jenum. Hefði gengi
krónunnar haldist óbreytt frá lántökudegi hefði
heildargreiðsla Guðmundar verið 31,1 milljón
króna yfir 38 ára tímabil og meðalgreiðslubyrði á
mánuði um 68.400 krónur.
Greiðslubyrðin þyngri til að byrja með
Lánið er nú, vegna gengisfalls krónunnar, met-
ið á um 49 milljónir króna og miðað við óbreytt
gengi krónunnar nú yrði heildargreiðsla Guð-
mundar um 79 milljónir og meðalgreiðslubyrði á
mánuði um 164.800 krónur yfir 38 ára tímabil.
Greiðslubyrðin nú er hins vegar um 220.000 krón-
ur á mánuði en minnkar svo með tímanum.
Taki hann tilboði bankans um að lækka höf-
uðstóls lánsins um 30 prósent og breyta því í
verðtryggt krónulán með 5,25 prósent vöxtum
hækkar heildargreiðslan umtalsvert. Miðað við
fjögurra prósenta verðbólgu næstu 40 árin myndi
heildargreiðslan nema 189 milljónum króna og
meðalgreiðslubyrði á mánuði væri 415.500 krón-
ur. Til að byrja með yrði byrðin hins vegar mun
minni, eða um 180.000 krónur, og ykist með tím-
anum.
Næstu fimm ár er greiðslubyrði Guðmundar
því minni taki hann tilboði bankans en ef hann
heldur láninu óbreyttu. Meðalgreiðslubyrði á
mánuði yrði, að öllu öðru óbreyttu, 214.300 krón-
ur á mánuði næstu fimm ár tæki hann ekki tilboði
bankans, en 197.500 krónur tæki hann tilboðinu.
Eftir þessi fimm ár er greiðslubyrði á mánuði
orðin meiri taki hann tilboðinu um lækkun höf-
uðstóls og breytingu í verðtryggt krónulán.
Margir óvissuþættir
Taka ber fram að í útreikningum sem þessum
eru margir óvissuþættir, einkum þegar horft er
til jafnlangs tímabils og 40 ára. Veikist krónan
enn meira á tímabilinu versnar staða Guðmundar
taki hann ekki tilboði bankans. Á hinn bóginn get-
ur verðbólga vel farið yfir fjögur prósent og þar
með hækkað heildargreiðsluna taki hann tilboði
bankans.
Verðtryggingin veldur
hærri heildargreiðslu
Með því að breyta erlendu láni í verðtryggt krónulán getur heildargreiðsla hækkað
LÚSÍUTÓNLEIKAR voru í Seltjarnarneskirkju í
gærkvöldi á vegum Sænska félagsins á Íslandi.
Menningarstraumar víða að hafa í áranna rás
borist til Íslands og verða oft hluti af hefðinni.
Margir listamenn komu fram á tónleikunum í
gærkvöldi. Heilög Lúsía var uppi á Sikiley um
árið 300 e. Krist og naut víða hylli fram eftir öld-
um. Hér lagðist trú á Lúsíu af um siðaskipti en í
Svíþjóð hefur hún haldist til líðandi stundar.
Morgunblaðið/Kristinn
SÆNSKA FÉLAGIÐ HÉLT LÚSÍUHÁTÍÐ Á NESINU
RÁÐIST var á íslenskan námsmann
í Kaupmannahöfn um helgina, en sá
var þá að koma úr jólaboði. Hann
beið á brautarpalli þegar bíll renndi
þar að og þrír menn stigu út. Einn
gaf sig á tal við Íslendinginn en þá og
nánast umsvifalaust réðust hinir
tveir að manninum, börðu hann og
drógu inn í bílinn. Ekið var af stað og
leitað að verðmætum á Íslend-
ingnum, að því er kunningjafólk
hans greindi frá. Að því loknu var
manninum kastað út úr bílnum, en
þá höfðu árásarmennirnir haft af
honum síma, skilríki, veski, tösku
með fartölvu, lykla og fleira.
Manninum tókst um síðir að kom-
ast heim til sín á Fredriksberg en
hann var í miklu áfalli eftir árásina.
Kaupmannahafnarlögreglan tók
skýrslu af Íslendingnum vegna at-
viksins. Hann leitaði á slysadeild og
fór í myndatöku en hann var vank-
aður eftir árásina.
Kunningi mannsins sagði gengi
sérhæfa sig í að elta uppi og ræna
fólk sem er eitt á ferð að næturlagi á
fáförnum stöðum. sbs@mbl.is
Varð fyrir árás í
Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Köben Íslendingur varð fyrir árás.
MILDI var að ekki kviknaði í íbúð-
arhúsi við Grasarima í Reykjavík
aðfaranótt laugardags þegar
kveikt var í bíl sem stóð þétt upp
við húsið.
Bíllinn er nýlegur jeppi, Toyota
Landcruiser. Hann er ónýtur. Til-
kynning um eldinn barst klukkan
hálffimm á laugardagsmorgun.
Grafarvogsstöð lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu hefur unnið
að rannsókn málsins alla helgina.
Einn var handtekinn vegna málsins
á laugardag. Sá játaði að hafa verið
á staðnum en viðurkennir ekki að
hafa kveikt í. Þá hefur verið rætt
við ýmsa fleiri, en enn var þó ekki
kominn botn í rannsóknina þegar
Morgunblaðið ræddi við lögreglu
seint í gærkvöldi. sbs@mbl.is
Mikil
hætta af
íkveikju
Einn handtekinn og
fleiri yfirheyrðir
75
milljónir í heildargreiðslu af
49 milljóna króna erlendu
láni miðað við óbreytt gengi.
164.832
meðalgreiðslubyrði á mánuði
af 49 milljóna króna erlendu
láni miðað við 2,8% vexti og
óbreytt gengi.
189
milljónir í heildargreiðslu af
35,2 milljóna króna verð-
tryggðu láni miðað við 4%
verðbólgu.
415.525
meðalgreiðslubyrði á mánuði
af 35,2 milljóna króna verð-
tryggðu láni á 5,25% vöxtum
miðað við 4% verðbólgu.
Heildargreiðsla
og afborganir
VEÐURSTOFA Íslands spáir því að
rjómablíða verði á öllu landinu alla
næstu viku. Vindur verður með
minnsta móti, úrkoma mun varla
mælast og hitinn verður hærri en
flestir eiga að venjast á þessum árs-
tíma.
Landsmenn fengu forsmekkinn
af blíðunni um helgina. Mælirinn á
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði
komst í 15 gráður á laugardag og
víða á Austurlandi náði hitinn yfir
10 gráður. Á höfuðborgarsvæðinu
var um 10 stiga hiti í gær og fremur
lítill vindur. Rætist spáin mun viðra
sérlega vel til jólainnkaupa.
Rjómablíða
um allt land
Morgunblaðið/Skapti