Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 8
Veidd sæbjúgu, afli upp úr sjó í kg. Bátar 2007/2008 2008/2009 2009/2010 1 83.455 47.829 2 336.938 691.707 128.616 3 218.837 201.169 159.699 4 160.873 108.494 5 24 20 Afli samt.: 555.775 1.137.228 444.658 He im ild :F is ki st of a Fiskveiðiár Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Sjávarútvegsráðuneytið hefur kynnt útgerðarmönnum báta sem stundað hafa sæbjúgnaveiðar drög að reglu- gerð um veiðarnar. Reglurnar eru um afmörkun veiðisvæða og hvað miða skal við þegar Fiskistofa út- hlutar veiðileyfum. Sæbjúgnaveiðar hafa verið stundaðar í fáein ár, áður var bjúganu fleygt beint í sjóinn aft- ur, og nú er orðin samkeppni um bestu veiðisvæðin. Steinar Ingi Matthíasson, skrif- stofustjóri auðlindaskrifstofu sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðuneyt- isins, segir að ekki sé búið að ganga frá reglugerðinni og ekki hægt að greina frá efni hennar. Reiknað er með að hún taki gildi um áramót en þá renna út leyfi sem fimm bátar hafa til tilraunaveiða. Steinar segir nauðsynlegt að koma formlegu skipulagi á þessar veiðar til fram- tíðar. Sæbjúga sé takmörkuð auð- lind og þurfi að lúta veiðistjórnun og reglum, eins og aðrar tegundir. Aflinn tvöfaldaðist Steinar segir að fjöldi leyfa á hvert svæði verði takmarkaður og þá horft til þess, eins og kostur er, að þeir sem hafi lagt mestan tíma og fjármuni í að búa þessi verðmæti til njóti þess til frambúðar. Tveir bátar stunduðu veiðar á sæ- bjúgum á fiskveiðiárinu 2007 til 2008 en á síðasta ári og í ár hafa fimm bátar leyfi til tilraunaveiða. Bátarnir lönduðu samtals 556 tonnum á árinu 2007 til 2008, sam- kvæmt upplýsingum Fiskistofu. Heildaraflinn tvöfaldaðist á fisk- veiðiárinu sem lauk 1. september sl., var 1137 tonn, og það sem af er þessu fiskveiðiári hafa bátarnir landað tæpum 445 tonnum. Fjórir bátar hafa aðallega stundað þessar veiðar síðustu tvö árin, sá fimmti landaði óverulegu magni. Bátarnir veiða samkvæmt til- raunaveiðileyfum. Hannes Andr- ésson SH hefur verið lengst að og hefur leyfi til veiða fyrir mest öllu landinu, samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins. Tveir bátar sem landa í Sandgerði hafa leyfi til veiða í Faxaflóa, Valur ÍS og Hans Jakob GK. Þá hefur Sæfari ÁR frá Þor- lákshöfn leyfi til tilraunaveiða fyrir Austurlandi. Tvær umsóknir til viðbótar liggja fyrir, samkvæmt upplýsingum ráðu- neytisins, frá útgerðum í Sandgerði og á Flateyri. Reglur settar um sæbjúgnaveiðar  Veiðisvæði afmörkuð og fjöldi leyfa á hvert svæði takmarkaður  Sæbjúganu var áður fleygt en nú er samkeppni um bestu veiðisvæðin  Nauðsynlegt að koma formlegu skipulagi á veiðarnar Sæbjúga Brimbútur er sú tegund sæbjúgna sem nú er keppst um að veiða. 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Jólagjöf fyrir þá sem „eiga allt“ Gefðu hlýju og samveru um jólin! Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni. Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000. E N N E M M / S IA • N M 3 0 87 7 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „NEMENDUR okkar eru stundum sagðir vera í Hörpunni og ég sjálfur er ósjaldan kenndur við skólann. Við gætum því þurft eitthvað að umorða hlutina, ef einhver vandamál skap- ast,“ segir Kjartan Eggertsson, skóla- stjóri Tónskóla Hörpunnar. Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við Reykjavíkurhöfn var gefið nafn við formlega athöfn sl. föstudag og skal húsið einnig heita Harpa. Spurningar vekur hins vegar hvort þetta geti valdið misskilning og ruglingi – þar sem tónlistarhúsið og tónskólinn verða lagðir að líku. „Nei, þetta verður ekkert vandamál bara ef hlutirnir eru orðaðir skýrt. Hins vegar hefði farið betur á því ef tónlistarhúsið hefði verið nefnt til dæmis Kristall eins og kom víst til greina. Með glerhjúpnum verður húsið gló- andi kristal líkast og oft segjum við að hlutirnir séu krist- altærir.“ Alls eru 210 nemendur í Hörpunni. Höfuðstöðvar skól- ans eru í Grafarvogi, auk þess sem kennt er í tíu grunn- skólum í Reykjavík. Jólatónleikar skólans voru fyrir helgina, þar sem margir efnilegir nemendur komu fram. „Ég vænti þess að einhverjir muni koma fram í tónlistar- húsinu Hörpunni í framtíðinni. Þau eiga mörg framtíðina fyrir sér sem góðir tónlistarmenn,“ segir skólastjórinn. Hörpu þarf að orða skýrt  Tónlistarhúsið og tónskóli með sama nafn  Þarf að umorða, segir skólastjóri  Nemendur í Hörpu í framtíðinni Kjartan Eggertsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Frá athöfninni sl. föstudag þar sem tónlistarhús- inu var gefið nafn, sem valið var úr fjölda tillagna.. „ÁIN greip jeppann sem varð vélarvana þegar vatnið flæddi inn. Fyrst vaggaði hann í straumvatninu en síðan grófst hann niður og varð stöðugri. Við kölluðum strax eftir aðstoð björg- unarsveitarmanna sem komu á vettvang eftir um klukku- stund. Okkur sem stóðum á árbakkanum fannst biðin hins vegar löng og í raun höfðum við tapað tímaskyni þó við vær- um með klukku,“ segir Björn Valdimarsson frá Akranesi. Hann var með tíunda mann, sem nokkrir eru í björgunarsveit, á leið í Þórsmörk á laugardagskvöld á þremur bílum og var sá fyrsti kominn út í Steinholtsá þegar straumur hreif bílinn og bar út í miðja á. Þremenningar í bílnum komust upp á þak bílsins og í gegnum talstöð og síma gerðu Björn og félagar þeim fljótlega ljóst að hjálp væri á leiðinni. Björgunarsveitum barst útkall kl. 18:20 á laugardagskvöldið. „Við fórum bæði á velbúnum bílum auk þess sem bátaflokkur frá Selfossi og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út, en báðum var fljótlega hægt að snúa,“ segir Jón Hermannsson í svæð- isstjórn björgunarsveita á Suðurlandi. Leiðina í Þórsmörk segir hann hafa verið torfæra, niðamyrkur og úrhelli. Þegar björgunarmenn komu að Steinholtsá var stórum vörubíl bakkað að jeppanum og þannig var þremenningunum bjargað. Jeppinn var svo dreginn í land og sóttur í gær. „Þetta var mikil reynsla og maður ber meiri virðingu fyrir náttúruöflunum eftir þetta,“ segir Björn Valdimarsson. Ljósmynd/Jón Hermannsson Bjargað eftir volk í Steinholtsá á Þórsmerkurleið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.