Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
www.noatun.is
LAMBAFRAM-
HRYGGJANEIÐAR
KR./KG
1598
AÐ EIGIN VA
LIKR
YDDAÐ
Nóatún
bestir
í kjöti
20%
afsláttur
1998
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
92224
Þetta helst ...
● UTF ehf. hefur hlotið gullvottun
Microsoft „og þannig fengið við-
urkenningu sem eitt þeirra upplýs-
ingatæknifyrirtækja sem hvað mesta
þekkingu og reynslu hafa á Microsoft-
lausnum hér á landi,“ segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu. Stutt er síðan
UTF var stofnsett, en það hefur starf-
að frá því í mars á þessu ári. Sérstaða
UTF liggur í mikilli reynslu starfs-
manna, að því er segir í tilkynningu.
ivarpall@mbl.is
Hlýtur gullvottun
● LANDSBANK-
INN spáir því að
verðbólga milli
nóvember og
desember
mælist 0,6%, að
því er fram kem-
ur í Hagsjá hag-
fræðideildar
bankans. Býst
bankinn við
fremur litlum
verðhækkunum á
mat- og drykkjarvörum, en telur lík-
legt að kaupmenn muni nýta sér
aukna neyslu í desember og beita
tilboðum til að reyna að laða við-
skiptavini til sín. Líklegt megi telja
að nokkrar áframhaldandi verð-
hækkanir verði á fötum, skóm, hús-
gögnum og heimilisbúnaði.
Gangi spáin eftir lækkar 12 mán-
aða verðbólga úr 8,6% niður í
7,6%, en vísitalan hækkaði um
1,5% í desember í fyrra. Sú hækk-
un dettur nú úr tólf mánaða takt-
inum, að því er segir í Hagsjá
Landsbankans.
ivarpall@mbl.is
Verðlag LÍ spáir
0,6% hækkun
vísitölu.
Spáir hjaðnandi
verðbólgu í desember
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TILLAGA um 1.800 milljarða dala
aukningu á lántökuheimild liggur
fyrir í bandaríska þinginu og er sú
fjórða sem þingið hefur fjallað um á
síðustu átján mánuðum.
Samþykki þingið tillöguna hækk-
ar hámarksheimild ríkisins til
skuldsetningar í 14.000 milljarða
dala, en um mitt ár í fyrra var hún
milli 10.000 og 11.000 milljarða dala.
Ekki er enn ljóst hvort heimildin
verður samþykkt, en sumir þing-
menn demókrata hafa krafist þess
að stigin verði skref í átt að því að
laga fjárlagahalla alríkisins. Er
hallinn nú um 1.400 milljarðar dala
og er gert ráð fyrir því að hann
verði samtals um 9.000 milljarðar
næstu tíu árin.
Svokallaðir Bláu hundar, hópur
þingmanna demókrata, sem teljast
íhaldssamir í ríkisfjármálum, vilja
að settar verði reglur sem geri
þinginu skylt að jafna fjárlög. Eigi
t.a.m. að auka útgjöld á einu sviði
beri að skera niður á öðrum sviðum.
Einnig beri að skera niður útgjöld á
móti skattalækkunum.
Bláu hundarnir eru tiltölulega
áhrifamikill hópur innan þingflokks
demókrata í neðri deild þingsins og
munu gera þingflokksforystunni
erfitt fyrir gangi hún ekki að kröf-
um þeirra.
Dollarinn styrktist nokkuð í vik-
unni sem leið og hafði það áhrif á
heimsmarkaðsverð á olíu. Hefur
olían ekki verið ódýrari, í dollurum
talið, í tvo mánuði eftir að hafa
lækkað um 11 prósent og endaði í
tæpum 70 tölum á fatið. Gull hefur
einnig fallið umtalsvert og er nú í
um 1.115 dölum á únsuna eftir að
hafa farið yfir 1.200 dali fyrir
skömmu. Þá eru einnig merki um
að fjárfestar telji að hrávörur eins
og olía og gull hafi verið of dýrar og
verðið ekki í samræmi við raun-
verulega eftirspurn.
Undanfarinn mánuð hefur gengi
evrunnar fallið um 2,5 prósent
gagnvart dollaranum. Ástæðan fyr-
ir styrkingu dollarans er sú að nú
gera margir ráð fyrir því að seðla-
banki Bandaríkjanna fari fljótlega
að hækka stýrivexti sína. Spáð er
töluverðum hagvexti á fjórða árs-
fjórðungi og þykir það benda til
þess að rétt sé að herða
peningastefnuna.
Vilja auka heimildir til
skuldsetningar ríkisins
Myndi hækka heimildina í 14 billjónir dala Fjárlagahallinn er 1.400 milljarðar
Washington Bandaríkjaþing ræðir tillögu um auknar lántökuheimildir rík-
isins. Ef hún verður samþykkt munu heimildirnar nema 14 billjónum dala.
Reuters
Í vikunni verður tekin um það
ákvörðun í bandaríska þinginu
hvort leyfa eigi þarlendum
stjórnvöldum að auka enn skuldir
ríkisins.
Í HNOTSKURN
»Fjárlagahalli Bandaríkj-anna er nú í kringum 1.400
milljarða dala.
»Búist er við því að sam-anlagður halli á næstu ár-
um verði 9.000 milljarðar
dala.
»Vegna væntinga um stýri-vaxtahækkun vestra hefur
gengi dalsins hækkað gagn-
vart evru.
Á FÖSTUDAGINN var haldið útboð
á þeim ríkisbréfum sem enn voru eft-
ir af stabbanum sem lagður hafði ver-
ið til tryggingar veðlánum hjá Seðla-
bankanum og kom að lokum í hlut
ríkissjóðs í kjölfar bankahrunsins í
fyrra. Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að stýrivaxtalækkunin frá því á
fimmtudaginn hafi væntanlega komið
sér vel fyrir ríkissjóð, „enda lækkaði
krafa RIKB13-flokksins strax við
opnun markaðar í gær [á fimmtudag]
og stóð í 7,32% í dagslok“. Í boði voru
RIKB13-bréf að nafnverði 1,1 ma.kr.
og reyndist eftirspurn eftir þeim
nærri áttföld sú upphæð.
ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Vextir Krafa á ríkisbréf lækkaði við
stýrivaxtalækkunina.
Áttföld eftirspurn
Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa lækkaði