Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 34

Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 34
Svínið Pétur Guðmundur Steingrímsson Sögur bbbbn Svínið Pétur er stórundarlegt í augum Sigga snáks og félaga í Dýrabæ. Pétur er sáttur við það sem hann hefur og segist ekki þurfa neitt meira, sama hvað honum er boðið. Hin dýrin ætla að sýna þessu ógráðuga svíni hverju það er að missa af og halda stórt „góðæris“-partí. Auðvitað, eins og gengur og gerist, fá þau leið á allsnægtunum og leita aftur í faðm Péturs og látlauss lífernis hans. Enda þarf maður bara að eiga vinkonur og vini svo veröldin ljómi í glaðasólskini. Þetta er fyrsta barnabók alþingismannsins Guðmundar Steingrímssonar og fær hann Halldór Baldursson til að myndskreyta. Er það góð samvinna, myndir Halldórs eiga vel við grallaralegan texta Guðmundar. Sagan sjálf er skemmtileg og boðskapurinn góður, sér- staklega eftir að græðgi kom þjóðinni í koll og börn sem fullorðnir verða að rifja upp hamingjuna sem felst í nægju- seminni. Rímaður texti Guðmundar heppnast vel, er stór- góður á köflum en stundum fær maður á tilfinninguna að hann hafi lent í smávandræðum með rímið. Bókin gæti komist í uppáhald hjá mörgum krökkum, sér- staklega ef foreldrarnir lesa hana upphátt fyrir þau með leikrænum tilþrifum, en textinn býður upp á það. Svínið Pétur er góð frumraun höfundar sem mætti alveg huga að því að setja í aðra barnabók. Og þau lifðu hamingjusöm allt til æviloka … eða hvað? Huginn Þór Grétarsson Óðinsauga bbbmn Hér er á ferðinni klassískt ævintýri í gamla stílnum … eða hvað? Sagan hefst þar sem flest ævintýri enda. Haraldur er bóndasonur sem, eins og í klassískum ævintýrum, tekst að bjarga prinsessunni og hlýtur hana og konungsríkið að launum. Lífið í konungshöllinni er samt enginn dans á rósum, hjóna- kornin hrúga niður börnum, prinsessan er algjört skass og gömlu konungshjónin ætla aldrei að hrökkva upp af svo Haraldur fái krúnuna. Aumingja Haraldur á ekki sjö dagana sæla, þvælist hálfpartinn fyrir í höllinni og gerir ekkert rétt. Einn daginn sparkar prinsessan honum og Haraldur fer á vergang en allt er gott sem endar vel og prinsinn og prins- essan ná saman aftur, verða kóngur og drotting og lifa (hamingjusöm) saman allt til æviloka. Þetta er mjög sniðug bók og skemmtileg saga hjá Hugin Þór. Bókina myndskreytir Phil Nibbelink og eru myndir hans mjög fínar, fullar af lífi og smáatriðum, og eiga vel við sög- una. Og þau lifðu hamingjusöm allt til æviloka … eða hvað? er tilvalin fyrir aðeins eldri krakka, svona um tíu ára, sem geta skilið grínið í henni. Þeim á eflaust eftir að finnast bókin mjög áhugaverð, því hver er ekki forvitinn um hvað gerist eftir að ævintýrinu lýkur? Úlfur, Uggi og Skuggi í ævintýraferð Skúli Bjarnason og Sigríður Lillý Baldursdóttir Málstaður bbnnn Úlfabræðurnir Úlfur, Uggi og Skuggi búa á Úlfasteini, sem er í Svíþjóð, með foreldrum sínum. Á lengsta degi ársins fá þeir að fara í bæjarferð og lenda þar í miklu ævintýri; verða vitni að bankaráni og enda í æsilegum eltingaleik við ræningjann. Sagan um úlfafjölskylduna er góð, klassísk saga um þá sem eru óvinsælir en ná vinsældum með því að vinna afrek og eru teknir í sátt í samfélaginu í framhaldinu, en það vant- ar ákveðinn léttleika í textann sem verður heldur alvarlegur og langdreginn á köflum, t.d. þegar útskýrt er fyrir litlu úlf- unum af hverju mönnunum er illa við þá. Ég hefði líka viljað sjá úlfana lenda í öðrum ævintýrum en að elta bankaræn- ingja, það er einhvern veginn of mikið Disney. Teikningar Sigríðar eru fínar en bókina skortir eitthvað til að teljast heillandi þótt hún hafi alla burði í það. Ég myndi alveg vilja sjá fleiri ævintýri um Úlf, Ugga og Skugga því þeir eru áhugaverðir úlfar. Bakkabræður Skrudda bbbnn Ég veit ekki hvort krakkar í dag þekkja sögurnar af Bakkabræðrum, hin- um einu sönnu. Nú hefur bókaútgáfan Skrudda endurútgefið sögurnar af þeim bræðrum, sem eru byggðar á þjóðsögum Jóns Árnasonar, og fengið Kristínu Arn- grímsdóttur til að myndskreyta. Bakkabræður eldast vel og sögurnar af þessum klaufabárðum ættu að höfða til allra krakka. Það er líka skemmtilegt fyrir krakka að lesa gamlar íslenskar sög- ur til tilbreytingar. Sögurnar um köttinn sem étur allt, fóta- baðið þar sem allt fer í flækju og sólina sem Bakkabræður reyna að bera inn í bæinn eru alltaf jafnskemmtilegar og vekja eflaust mikla furðu og forvitni hjá börnum. Mynd- skreytingar Kristínar eiga vel við og nær hún að draga upp fína mynd af þeim bræðrum sem eru heldur ófrýnilegir aul- ar. Raggi litli og snjómaðurinn ógurlegi Haraldur S. Magnússon Óðinsauga bbnnn Þetta er ellefta bókin um Ragga litla og nú kemst hann í kynni við snjómanninn óg- urlega þegar hann dvelur ásamt fleira fólki í sæluhúsi uppi í fjöllum. Raggi lendir í smáhættu á snjóþotunni sinni, snjómað- urinn kemur honum til bjargar og upp frá því verða þeir vinir. Þótt sagan hafi alla burði til að vera skemmtileg skemmir textavinnan fyrir, textinn er oft á tíðum óþjáll og illa unn- inn, það hefði mátt liggja meira yfir honum og jafnvel stytta aðeins. Ævintýri Ragga og snjómannsins er líka heldur dauft, það hefði mátt gera meira úr þeirra kynnum. Bókin er myndskreytt af Karli Jóhanni Jónssyni og halda myndir hans bókinni uppi. Myndirnar eru fallegar og draga upp mynd af áhugaverðum persónum, snjómaðurinn er vina- legur en líka hæfilega óhugnanlegur og Raggi litli er sætur gutti sem hefði mátt fá sterkari persónuleika í sögunni. Raggi litli og snjómaðurinn eru áhugaverðir félagar sem hefði mátt liggja meira yfir, myndskreytingin í bókinni gerir það þó að verkum að hún vel þess virði að skoða. Barnabækur Ingveldur Geirsdóttir | ingveldur@mbl.is Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur. Svínið Pétur Refurinn gráðugi reynir að lokka hann út í vitleysu. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Spennumynd af bestu gerð þar sem Nicolas Cage fer á kostum í hlutverki spillta lögreglumannsins Terence McDonagh. SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HHHH Roger Ebert - Chicago Sun-Times SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM HHHH „Taugatrekkjandi og vægast sagt óþægileg” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI Meistarar svarta húmorsins, Coen-bræður er mættir aftur með frábært meistarverk. Í HÁSKÓLABÍÓI Snillingarnir Woody Allen og Larry David snúa saman bökum og útkoman er „feel- good” mynd ársins að mati gagnrýnenda. HHH „Frammistaða leikara er í heildina sannfærandi og einlæg... stendur fyllilega fyrir sínu“ -H.J., MBL SÝND Í BORGARBÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Bad Lieutenant kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára Julie and Julia kl. 5:20 - 8 - 10:35 LEYFÐ 2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára Paranormal Activity kl. 10:30 B.i.16 ára Love Happens kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Anvil kl. 6 - 8 - 10 B.i.7 ára Whatever Works kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára Capitalism: A Love Story kl. 8 B.i. 7 ára The Box kl. 10:15 B.i.16 ára 2012 kl. 8 B.i.10 ára Love Happens kl. 6 LEYFÐ 9 kl. 6 B.i.10 ára Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.