Morgunblaðið - 14.12.2009, Side 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
SAMAVERÐ
fyrir alla jólapakka
hvert á land sem er
Hámarksþyngd 30 kg eða 0,1 m3
Við erum sérfræðingar
í matvælaflutningum
Upplýsingar um afgreiðslustaði og opnunartíma
er að finna á landflutningar.is
790 kr.SKOSKA jólasveinahlaupið fór fram í Edinborg í gærog sem fyrr hlupu mörg þúsund manns, en allur ágóði
fer í að láta óskir langveikra barna rætast.
Jólasveinabúningur til þess að hlaupa í er innifalinn í
10 punda þátttökugjaldinu (um 2.000 kr.) en 12 ára og
yngri greiða fimm pund og fá jólasveinahúfu.
JÓLASVEINAR STYRKJA BÖRNIN
Reuters
SAMKVÆMT útgönguspám er bú-
ist við því að Sebastian Pinera hafi
fengið flest atkvæði í forsetakosn-
ingunum í Chile í gær og hann á
mikla möguleika á því að verða fyrsti
forseti hægri manna í landinu í hálfa
öld. Ekki er samt talið að hann hafi
fengið yfir 50% atkvæða og því verði
kosið á ný milli tveggja efstu manna
17. janúar nk.
Í skoðanakönnun fyrir kosning-
arnar mældist Sebastian Pinera með
44% og Eduardo Frei með 31%, en
Marco Enriquez-Ominami og Jorge
Arrate voru með minna fylgi. Frei er
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Ominami
er óháður og Arrate er sósíalisti,
sem hefur boðið Frei stuðning í
seinni umferðinni og þáði hann
stuðninginn.
Sebastian Pinera tapaði í kosning-
unum á móti sósíalistanum Michelle
Bachelet, fyrrverandi varn-
armálaráðherra, fyrir fjórum árum
og þar með varð hún fyrst kvenna til
þess að verða forseti landsins. Lögin
banna henni að halda áfram annað
kjörtímabil. Hún nýtur mikils stuðn-
ings en henni hefur ekki tekist að yf-
irfæra hann á Frei, sem var forseti
1994-2000. Pinera er 60 ára og með
efnaðri mönnum Chile. Hann hefur
lofað 6% hagvexti á ári næstu fjögur
árin nái hann kjöri.
steinthor@mbl.is
Snúningur frá
vinstri til hægri
Reuters
Keppni Barnabarnið á undan Pin-
era en hann líklegur sigurvegari.
Pinera sigurstranglegastur í Chile
LÖGREGLAN í Kaupmannahöfn
hafði í nógu að snúast um helgina
vegna mótmælaaðgerða í tengslum
við aðildarríkjaþing loftslagssamn-
ings Sameinuðu þjóðanna.
Alls voru um 1.200 mótmælendur
teknir úr umferð, en aðeins örfáir
voru ákærðir fyrir lagabrot.
Fáir ákærðir
Á laugardag voru 968 manns
handteknir og þrír þeirra ákærðir
fyrir brot á lögum. Af 233 hand-
teknum í gær voru átta manns
ákærðir.
Mótmælendur, sem handteknir
voru, gagnrýndu lögregluna fyrir
aðgerðirnar, en þeim var gert að
sitja á köldu malbikinu í nokkrar
klukkustundir áður en þeir voru
færðir til yfirheyrslu. Mótmælin
fóru að mestu friðsamlega fram en
einhverjir mótmælendur brutu rúð-
ur og aðrir skutu upp flugeldum.
Lögreglan sagði að fjölmennur
hópur mótmælenda hefði verið með
grímur og það væri ólöglegt í mót-
mælum í Danmörku. Margir hefðu
verið handteknir og tíma hefði tekið
að færa þá til yfirheyrslu.
Reuters
Fjölmenni Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Kaupmannahöfn.
Um 1.200 tekn-
ir úr umferð
Mótmælaaðgerðir í Kaupmannahöfn SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, var í gærkvöldi fluttur á
sjúkrahús í Míanó til næturdvalar að
minnsta kosti eftir að ráðist var á
hann að loknum stjórnmálafundi í
ítölsku borginni.
Ítalska fréttastofan Ansa sagði að
tvær tennur hefðu brotnað í for-
sætisráðherranum auk þess sem
hann skarst á vör og í nefi.
Árásarmaðurinn náðist þegar og
var sagt að hann ætti við geðræn
vandamál að stríða, en sagt var að
hann hefði slegið Berlusconi með
þungri afsteypu af dómkirkjunni í
Mílanó þegar forsætisráðherrann
gaf nærstöddum eiginhandaráritun.
Reuters
Blóðugur Berlusconi eftir árásina.
Ráðist á
Silvio
Berlusconi