Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
gott í jólamatinn
Þökkum frábærar viðtökur
www.gottimatinn.is
Uppstúfur?
Er það einn a
f
jólasveinunum
?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/S
ÍA
–
0
9
-1
9
1
7
FORSVARSMENN íslenska safn-
aðarins í Noregi hafa afhent
Hjálparstofnun kirkjunnar fimm
milljónir króna sem hafa safnast í
Noregi. Gunnar Hólm, formaður
stjórnar safnaðarins, segir að söfn-
unin sé enn í gangi. Söfnuðurinn
hafi ákveðið í apríl að safna alls
andvirði einnar milljónar norskra
króna, eða sem svarar rúmum 20
milljónum íslenskra, og þetta sé
fyrsti áfanginn í þeirri söfnun.
Söfnuðurinn
í Noregi gaf
5 milljónir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afhending Kristján Daðason, ritari stjórnar safnaðarins í Noregi, Jónas Þórisson, framkvændastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, Gunnar Hólm, formaður stjórnar safnaðarins og Nanna Hauksdóttir meðstjórnandi.
Börnin okkar, Samtök foreldra-
félaga leikskóla, og stjórn Félags
leikskólakennara, segja að ekki sé
hægt að skera meira niður á leik-
skólum.
Kristín Bjarnadóttir hjá Sam-
tökum foreldrafélaga leikskóla, seg-
ir að þegar hafi verið gengið of langt
í hagræðingunni og hún bitni á fæði,
hreinlæti, búnaði og öryggi
barnanna. Hún nefnir að foreldrar
barna á nokkrum leikskólum hafi
sagt að ekki sé lengur peningur til
þess að kaupa ávexti og grænmeti
handa börnunum alla daga og svo-
kallaðar ávaxtastundir hafi sums
staðar verið aflagðar. Á nokkrum
stöðum sé boðið upp á pakkasúpur
sem séu ekki eins næringarríkar og
súpur úr góðu hráefni. Hafragraut-
ur sé þrisvar til fimm sinnum í viku
en áður hafi líka verið boðið upp á
morgunkorn. Brauð sé keypt til þess
að rista en annars sé það bakað á
leikskólum. „Matseðillinn ræðst
mjög mikið af tilboðum í lág-
vöruverðsverslunum,“ segir hún og
hefur áhyggjur af því að þetta komi
niður á gæðum fæðisins. „Það segir
enginn að ekki eigi að hagræða og
kaupa ódýrt inn en það þarf að vera
fjölbreytni og bjóða upp á hollan og
næringarríkan mat.“
Klósettpappír skammtaður
Hagræðingin þýðir m.a. að ekki á
að ráða í stöður sem losna og skera á
niður í afleysingum. Kristín segir að
samkvæmt upplýsingum frá leik-
skólasviði Reykjavíkur gæti fækkað
um 20 stöðugildi í Reykjavík með
þessu móti auk þess sem sú breyting
að aðstoðarleikskólastjórar verði
deildarstjórar sem eigi samt að leysa
leikskólastjóra af, þýði enn færri af-
leysingar. Ekki séu til peningar til
að kaupa kennslugögn, leiktæki eða
leikföng og þetta komi niður á
kennslunni. Þrif verði skorin niður
en það hljóti að skipta miklu máli að
þrífa vel í kringum börn sem séu á
gólfinu og setji allt upp í sig. Hand-
þurrkur víki fyrir handklæðum og
klósettpappír sé skammtaður.
„Við höfum áhyggjur af öryggi
barnanna,“ segir Kristín og bendir á
að talað sé um svona hagræðingu í
mesta lagi í þrjú ár en það sé tími
barnanna á leikskólum og því missi
heill árgangur mikið. „Svona
„sparnaður“ hefur langtíma afleið-
ingar fyrir börnin, bæði hvað varðar
menntun þeirra, heilsu og þroska,“
segir hún og bendir á að á liðnu ári
hafi fjöldi barna á starfsmann og
lágmark fermetra á barn verið fellt
úr lögum sem sýni að verið sé að
hugsa til lengri en ekki skemmri
tíma.
Áhyggjur
af öryggi
barnanna
Morgunblaðið/RAX
Gaman Í jólaþorpi í Hafnarfirði.
Segja að ekki sé hægt
að skera meira niður
Greint verður frá áhrifum 3-
3,5 milljarða kr. niðurskurðar
í grunnskólum á næsta ári á
reksturinn og nemendur.
Á morgun