Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Walter Helgi Jónsson ✝ Walter HelgiJónsson hús- gagnabólstrari fæddist í Reykja- vík 21. september 1933. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. des- ember sl. For- eldrar hans voru Jón V. Guðvarðarson, f. 17.6. 1905, d. 15.3. 1990, og Þuríður Guðmunds- dóttir, f. 26.12. 1893, d. 14.4. 1981, og bjuggu þau í Reykjavík. Hálfsystur Wal- ters eru, Guðmunda, f. 1924, d. 22.2. 2007, Jónheiður, f. 1926, d. 5.12. 1908, og Guðjóna, f. 1927. Hinn 28. maí 1955 kvæntist Walter Guðrúnu Guðmundsdóttur, f. 18.6. 1933, d. 20.4. 1974, frá Böðmóð- stöðum í Laugardal, eignuðust þau þrjú börn, þau eru: 1) Jón Þorvaldur, f. 10.12. 1954, sambýliskona Jolanta Tomaslewska, börn hans eru fimm og eitt barnabarn. a) Margrét Lára, f. 13.7. 1972, d. 27.12. 1972. b) Guðrún, f. 24.8. 1976, maki Stefán Sturluson, barn þeirra, Sturla Már, f. 26.3. 2002. c) Tara Lind, f. 12.6. 1986. d) Karólína Íris, f. 1.10. 1990. e) Walter Hannibal, f. 6.4. 1993. 2) Hrönn, f. 23.10. 1962, maki Kristján Helgi Lárusson, börn þeirra eru fjögur og þrjú barnabörn. a) Lárus Helgi, f. 25.8. 1982, maki Ragn- heiður Magnúsdóttir, barn þeirra Magnús, f. 25.9. 2008. b) Rúnar Karl, f. 27.9. 1983, maki Linda Jóhanns- dóttir, barn þeirra Ísak Kristófer, f. 16.7. 2008. c) Sonja Ósk, f. 13.4. 1989, maki Egill Egilsson, barn þeirra Díana Rós, f. 5.7. 2009. d) Guðjón Óskar, f. 13.4. 1989. 3) Ólöf Birna, f. 12.11. 1963, maki Kristján Einarsson, börn þeirra eru fjögur og tvö barnabörn. a) Róbert Elvar, f. 15.2. 1984, maki Emilia Christina Gylfadóttir, börn þeirra Krist- ján Kári, f. 10.3. 2004, Júlía Guðrún Linnéa, f. 8.7. 2007. b) Walter Fannar, f. 6.9. 1989. c) Mikael Rúnar, f. 13.7. 1993. d) Daníel Sigmar, f. 30.10. 2002. Einnig eignaðist Walter son, 4) Auðun Helga, f. 23.7. 1981, maki Gerda Christine Waltersson. Barnsmóðir er Lára Sigrún Helgadóttir. Walter hlaut hefðbundna skóla- göngu í Reykjavík og útskrifaðist sem meistari í húsgagnabólstrun 1959 og starfaði við það fag mest alla starfsæfi sína. Walter bjó á Blönduósi síðustu misserin þar sem hann undi hag sín- um vel. Útför Walters fór fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík, í kyrrþey að ósk hins látna. Jarðsett var í Fossvogskirkjugarði. Meira: mbl.is/minningar Helga Þorbjörg Jónsdóttir ✝ Helga Þor- björg Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 19. febrúar 1933. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans, Landakoti 1. desember sl. Hún var dóttir hjónanna Jóns Gunnarssonar fv. skrif- stofustjóra, f. 1895, og Ásu Þorsteins- dóttur frá Vík í Mýrdal, f. 1909. Syst- ur Helgu eru Erna Jónsdóttir, f. 1938, maki 1 Magnús Marteinsson, maki 2 Þórður Gröndal, börn; Jón Magn- ússon, Marteinn Magnússon, Ása Magnúsdóttir og Edda Jónsdóttir, f. 1941, maki Ólafur Briem, börn; Ólafur Briem, Kristín Briem og Ása Briem. Helga lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953, innritaðist síðan í Háskóla Íslands þar sem hún lagði stund á frönsku og þýsku. Hún stundaði framhaldsnám í Grenoble, Frakklandi og Heidelberg, Þýskalandi. Helga var gædd góðum gáfum og listrænum hæfileikum en rúmlega tvítug veiktist hún á geði og settu veikindin mark sitt á líf hennar upp frá því. Hún vann um tíma við skrifstofustörf, en eftir dauða móður sinnar hélt hún heimili með föður sín- um. Helga var afar ljóðelsk, hafði gaman af að skrifa ljóð sjálf og birt- ust nokkur þeirra í Lesbók Morg- unblaðsins. Helga tók kaþólska trú ár- ið 1973. Útför Helgu fór fram í kyrrþey frá Kristskirkju, Landakoti, 8. desember 2009. Meira: mbl.is/minningar ✝ Katrín Káradóttirljósmyndari fæddist í Reykjavík þann 9. ágúst 1933. Hún lést 1. desember sl. á Landspítala í Fossvogi. Foreldrar Katrínar voru Kristín Elín Theódórsdóttir hús- freyja, f. 10. sept- ember 1914, d. 14. júlí 2002 og Kári Þórðarson rafveitu- stjóri, f. 3. nóvember 1911, d. 30. janúar 1998. Þau voru síðast búsett í Keflavík. Systkini Katrínar eru: 1) Theódóra Steinunn, f. 31. mars 1935. 2) Elín, f. 23. júlí 1942. 3) Hlíf, f. 28. október 1943. 4) Þórunn, f. 1. júlí 1947. 5) Kristín Rut, f. 21. desember 1950. 6) Þórður, f. 1. apríl 1955. 7) Theódór, f. 4. júní b) Eiríkur Örn, f. 13. maí 1988. c) Nína Katrín, f. 15. september 1991. 3) Þóra, f. 2. janúar 1963, maki Ómar Guðjónsson, f. 16. september 1954, börn þeirra eru: a) Særún, f. 9. nóvember 1987. b) Erna, f. 23. september 1989. c) Guðjón Valur, f. 26. júlí 1994. Katrín stundaði nám við Flensborgarskóla í Hafnarfirði og fór svo til Danmerkur, fyrst á húsmæðraskóla og seinna í iðn- skóla til að læra ljósmyndun. Þeg- ar heim var komið vann hún á ljós- myndastofu Vigfúsar Sigurgeirssonar og hlaut hún meistaragráðu í ljósmyndasmíði 1964. Á sínum starfsferli vann Katrín m.a. sem fréttaljósmyndari á Sjónvarpinu og sem ljósmyndari á Landspítala við Hringbraut. Á árunum 1966 til 1972 bjuggu Katrín og Svavar ásamt dætrum sínum í Lúxemborg. Starfaði Svav- ar þar hjá Loftleiðum. Útför Katrínar fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 14. desember 2009, og hefst at- höfnin kl. 15. 1957. Hinn 14. apríl 1956 giftist Katrín Eiríki Svavari Eiríks- syni, f. 1. apríl 1930. Foreldrar hans voru Guðbjörg Eiríks- dóttir húsfreyja, f. 20. desember 1903, d. 20. nóvember 1982 og Eiríkur Snjólfsson, vörubifreiðastjóri, f. 31. janúar 1893, d. 1. desember 1972. Börn Katrínar og Svavars eru: 1) Guðbjörg Kristín, f. 6. október 1958, maki Dirk Lubker, f. 25. nóv- ember 1962, sonur þeirra er Mark- ús Svavar, f. 18. janúar 1996. 2) Steinunn, f. 15. maí 1960, maki Þorsteinn Lárusson, f. 31. janúar 1960, börn þeirra eru: a) Berglind, f. 24. ágúst 1982, samb.m. Sævar Þór Rafnsson, f. 8. september 1981. Elsku hjartans amma mín. Amma, sem söngst og spilaðir fyrir mig, kenndir mér svo margt og varst mér svo góð. Það var gaman að vera þar sem þú varst. Þú varst svo ótrú- lega skemmtileg, kunnir fullt af bröndurum og alls konar sögur og vissir svo margt. Þú varst svo góð að hlusta og maður þurfti jafnvel ekkert að segja þér ef eitthvað amaði að, þú bara vissir það og vissir hvað var hægt að segja til að láta manni líða betur. Ég átti eftir að læra svo mikið af þér og það var fullt sem ég átti eftir að spyrja þig um. Ég held áfram að skoða allar fallegu myndirnar af þér og tala við þig, þó þú heyrir kannski ekki í mér. Ég sakna þín svo óskaplega mikið. Minningarnar um þig hugga mig og það tekur enginn þær í burtu. Þú átt sérstakan stað í hjarta mínu um alla eilífð. Þín, Berglind. Elsku amma mín. Daginn sem þú dóst þá fór ég heim til þín og afa að skoða gömul mynda- albúm. Ég fór þá að rifja upp öll þessi ár sem ég átti með þér og allar þessar góðu stundir sem við áttum saman. Ég er líka svo ótrúlega ánægður hvað þú varst dugleg að taka myndir við öll tilefni því núna mun ég eiga þessar minningar að eilífu. Þú varst svona ekta amma, þú varst alltaf að baka og kunnir svo ótalmörg lög. Þú ert líka eina mann- eskjan sem ég hef kynnst sem kunni að jóðla. Það var alltaf jafn gaman að koma í heimsókn til ykkar afa og þá sérstak- lega um helgar þegar ég var yngri og fékk að gista hjá ykkur í Hlíðar- byggðinni. Ég fékk alltaf eitthvert góðgæti og síðan fékk ég að vaka langt fram eftir og horfa á sjónvarpið. Síðan fórum við alltaf daginn eftir í sund. Þú varst alltaf svo góð við mig og alla í kringum þig. Það var svo gott að tala við þig og maður gat talað við þig um allt. Þú varst svo góðhjörtuð og það var alltaf svo gaman að hitta þig. Ég sakna þín svo ótrúlega mikið og ég á svo erfitt með að átta mig á því að þú sért farin. Ég elska þig, amma. Kveðja, Eiríkur Örn. Elsku amma mín. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svona snögg- lega. Ég sakna þín svo mikið, amma mín. Ég sakna að þess að láta þig syngja fyrir mig Yndið mitt yngsta og besta og kalla mig litlu músina þína. Ég sakna þess þegar þú hringdir heim bara til þess að segja mér brandara. Við áttum mjög góðar stundir sam- an, amma, og ég er svo þakklát fyrir þær. Það var svo gott að koma til þín og afa og mér leið alltaf svo vel hjá ykkur. Manni leiddist aldrei með þér því þú stakkst alltaf upp á svo snið- ugum hlutum til að gera. Við byggð- um til dæmis fjölmörg teppahús úti í garði saman og spiluðum oft Scrabble. Þú kenndir mér svo mikið, þú kenndir mér meðal annars að sauma og ég saumaði fyrstu flíkina mína með þér. Það var svo gaman að hlusta á sög- urnar þínar, hvernig þú kynntist afa í Húsafelli, allar sögurnar af mömmu, Diddu og Þóru þegar þær voru litlar og seinna sögur af mér. Ég gleymi aldrei þegar ég fór út í garð og tíndi fullt af rifsberjum og við bjuggum til sultu saman og ég var svo spennt að gefa mömmu hana að ég missti sultukrukkuna í gólfið og braut hana. Það var líka svo gaman að gista hjá ykkur afa í Hlíðarbyggðinni, þá var sko komið fram við mann eins og drottningu. Við kúrðum okkur svo oft saman uppi í rúmi og settum sængina yfir haus eins og við værum í tjaldi og þú sagðir mér búkollusöguna og lést hendurnar þramma á sænginni eins og það væru beljur að fara yfir fjallið. Jólaboðin í Hlíðarbyggðinni voru svo skemmtileg þegar jólasveinninn kom og gaf öllum gjafir og þú settist við hljómborðið og spilaðir jólalög og söngst hástöfum á meðan allir krakk- arnir dönsuðu í kringum jólatréð. Þetta verða tómleg jól án þín, elsku amma mín. Þú varst svo fyndin, amma mín og ég skellihlæ í hvert skipti sem ég hugsa til allra afmælisdaganna minna þegar þú hringdir í mig og söngst af- mælissönginn og hættir ekki fyrr en lagið var búið, þetta gerðir þú í öll mín 18 ár. Þú hvattir mig svo mikið áfram í lífinu, ég varð alltaf svo stolt þegar ég sýndi þér eitthvað sem ég hafði gert í skólanum og er glöð að hafa náð að sýna þér peysuna sem ég prjónaði um daginn. Takk fyrir allt, elsku amma. Ég elska þig svo mikið, amma Katý. Þín, Nína Katrín. Katrín Káradóttir, eða Katý eins og ég kallaði hana alltaf, var elsta dóttir Stínu systur mömmu minnar. Gunna mamma eins og Katý sagði. Ég var unglingur þegar Katý var daglega á mínu heimili á Bergþóru- götu 59. Á þeim tíma var Katý að læra ljósmyndun hjá Vigfúsi Sigur- geirssyni á Miklubraut og kom oft í hádeginu til okkar. Þessi tími er mér mjög minnisstæður. Þegar Katý kom settist hún gjarn- an við hljóðfærið heima og spilaði og söng. Hún var alltaf kát og glöð. Mér finnst alltaf svo gaman í kringum hana. Ég man hvað mér unglingnum varð oft starsýnt á hendurnar á Katý. Neglurnar voru svo flottar. Ég var alltaf að reyna að herma eftir þeim. Handsnyrting er nokkuð sem segir svo margt um persónu fólks. Svo var það eitt hádegið að ég var að leita mér að vinnu. Það var auglýst í Mogganum eftir aðstoðarstúlku hjá tannlækni. Ég var að lesa þetta fram og aftur þegar Katý tók upp símann og hringdi og hún sannfræði tann- lækninn um að ég væri sú eina rétta í þessa vinnu. Það gekk allt mjög vel fyrir sig og ég fékk vinnuna. Þetta var mín fyrsta vinna og sú eina þar til ég gifti mig. Þannig var Katý. Hún var ekki að velta þessu mikið fyrir sér. Það var mikill samgangur á milli systranna Stínu og mömmu minnar. Ég var mikið í Stekk en það hét húsið fyrir ofan Hafnarfjörðinn sem for- eldrar Katý bjuggu í ásamt börnun- um 7. Þau fluttu svo til Keflavíkur þar sem Kári faðir þeirra var rafveitu- stjóri. Svo flutti Katý með manni sín- um Svavari til Lúxemborgar og dætrunum Diddu, Steinunni og Þóru. Eftir heimkomuna til Íslands fluttu þau í Garðabæinn. Þar áttum við frænkurnar margar góðar stundir í sundlaug Garðabæjar. Þar var Katý fastagestur í mörg, mörg ár. Með þessum fátæklegu orðum langar mér að þakka Katý fyrir öll árin góðu. Svavari og fjölskyldu bið ég góðan Guð að veita styrk í sorg sinni. Anna Lóa Marinósdóttir. Í dag kveðjum við góða og yndis- lega vinkonu. Við kveðjum hana Katý vinkonu okkar úr saumaklúbbnum. Sumum finnst 60 ár ef til vill langur tími, en okkur vinkonunum sem þekktum Katý finnst nú, þegar við kveðjum hana, að hann hafi liðið afar fljótt og söknum þess að geta ekki lengur haft hana hjá okkur. Við mun- um Katý fyrst á Hverfisgötunni. Hún var elst systkina sinna og var þar af leiðandi alltaf að passa yngri systur sínar en þeim fjölgaði furðu fljótt og urðu að lokum fimm. Við munum hana akandi þeim í barnakerrum og reiðandi þær á hjólinu sínu. Tvo bræður eignaðist hún svo síðar. Við vorum allar nágrannakonur af Lin- netsstígnum og Hverfisgötunni og þekktumst vel, en kunningsskapur- inn óx þegar við hófum að starfa sam- an á unglingsárunum í skátafélaginu „Hraunbúinn“ í Hafnarfirði og fórum saman á landsmót skáta á Þingvöll- um 1948. Einnig fórum við oft í úti- legur með skátafélaginu, bæði í ská- taskálann við Kleifarvatn og í tjaldútilegur í Helgadal fyrir ofan Kaldársel. Þá naut Katý þess að spila á gítarinn sinn og syngja skátalögin, því hún var mjög músíkölsk og hafði góða rödd. Eftir það varð sauma- klúbburinn til og hefur kunnings- skapurinn haldist æ síðan. Til að byrja með, þegar við vorum enn ung- ar og höfðum nægan tíma, hittumst við vikulega til skiptis heima hjá hver annarri eins og gengur og gerist, en síðar þegar alvara lífsins tók við og allar stofnuðu heimili og við eignuð- umst okkar eigin fjölskyldur fór að líða lengra á milli saumaklúbbanna. Minna var saumað af púðum og dúk- um, en við saumuðum í staðinn vin- áttu sem hefur haldist alla tíð og hef- ur verið okkur mikils virði. Katý var mjög listhneigð og var lærður ljós- myndari. Hún vann á ljósmyndastofu um árabil og einnig að ljósmyndun fyrir Sjónvarpið og Landspítalann. Seinast hittumst við í sumar í kaffi- stofu Norræna hússins og áttum þar saman ánægjustund. Við þökkum nú Katý samfylgdina og vottum Svavari, dætrum þeirra og öðrum ættingjum samúð okkar. Saumaklúbburinn, Edda, Hólmfríður, Sigrún og Þórunn. Katrín Káradóttir Brynja Jónína Pálsdóttir ✝ Brynja JónínaPálsdóttir var fædd þann 26. desember árið 1935, að Þingeyri við Skólaveg í Vestmannaeyjum. Hún lést á lungnadeild Land- spítalans 19. nóv- ember sl. Foreldrar Brynju voru Páll Jóhannes Guðmundsson frá Fáskrúðsfirði og Þuríður Guðmundsdóttir frá Stokks- eyri. Þau hjón áttu 10 börn og var Brynja Jónína fimmta í aldursröðinni í systkinahópnum stóra. Nöfn þeirra eru í aldursröð, Pétur Ólafur, Valdís Viktoría, látin, Már Guðlaugur, látinn, drengur er lést í frumbernsku, svo kom Brynja, Kristinn Viðar, Einar Sæv- ar, látinn, Guðmundur, Snjólaug og yngst var Jóhanna. Fjölskyldan fluttist í Héðinshöfða í Vestmannaeyjum, þeg- ar Brynja var ung að árum og var fjöl- skyldan ávallt kennd við það hús. Brynja Jónína tók snemma þátt í störfum heimilisins og aðstoðaði Brynja móður sína við að ala upp yngri systkinin, eftir ótímabært andlát heimilisföðurins árið 1955, eftir alvar- leg veikindi. Brynja gekk í barnaskólann í Vest- mannaeyjum og lauk þaðan barna- skólaprófi. Hún byrjaði ung að vinna hin ýmsu störf utan heimilis, svo sem fiskvinnu og verslunarstörf. Brynja var eftirsóttur starfskraftur og ávallt vel liðin af samstarfsfólki sínu. Brynja kastaði heimdraganum og fór til starfa í Reykjavík sem vinnukona og reyndist það gæfuspor. Þar kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum Heiðari Marteinssyni. Felldu þau hugi saman og hófu búskap sinn saman í Stórholti í Reykjavík og bjuggu þar um tveggja ára skeið. Fluttust þau síðan til Vestmannaeyja og giftu sig þann 17. mars árið 1957. Þau eignuðust einkason sinn, Martein Unnar Heið- arsson, 14. janúar 1962. Marteinn á tvær stúlkur, Þórhildi, f. 14.5. 1998, með Ingibjörgu Eiríks- dóttur og Sæunni Heiðu, f. 25.7. 1993 með Sigurlaugu Helgadóttur. Þau Brynja og Heiðar fluttust á Snæfellsnes 1963 vegna vinnu Heiðars og bjuggu þar um sex ára skeið. Lífsfley þeirra Brynju og Heiðars þurfti að taka á sig ágjöf og mótbyr og svo fór að leiðir þeirra skildi um tíma. Áttu þau síðasta sameiginlega heimili sitt á Skeljagranda 2, í Reykja- vík og fluttu síðan þaðan í Hjúkrunar- og dvalarheimilið Seljahlíð í Breiðholti. Þá var heilsu Brynju farin að hraka. Vegna alvarlegs lungnasjúkdóms þurfti Brynja ítrekað að fara á Land- spítala Háskólasjúkrahús þar sem hún lést. Útför Brynju Jónínu fór fram í kyrr- þey, að hennar ósk, frá Fossvogskap- ellu 27. nóvember 2009. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.