Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Í GÆR hófst svokölluð Þjóðarkosn- ing á netinu um hvort Alþingi eigi að samþykkja eða synja ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga. Er það vefmiðillinn Eyjan sem efn- ir til kosningarinnar og stendur hún til 17. desember næstkomandi. Not- ast er við kerfið ÍslendingaVal, sem þróað er af Íslenskri erfðagreiningu og er því ætlað að tryggja öryggi og nafnleynd. Aðgangskóðar til þátttöku hafa verið sendir sem rafræn skjöl til kjósenda í gegnum heimabanka þeirra og geta þeir nálgast þá nú þeg- ar og kosið. Þeir kjósendur sem hafa ekki stofnað heimabanka geta gert það meðan á kosningu stendur. Hákon Guðbjartsson, fram- kvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Íslenskrar erfðagreiningar hefur haft umsjón með hönnun kerfisins. „Ís- lendingaVal er vefkerfi sem ætlað er að auðvelda uppsetningu á öruggum rafrænum kosningum og könnunum. ÍslendingaVal skráir sjálft engin svör frá einstaklingum en sér hins vegar um að auðkenna kjósendur og flytja þá yfir á vef viðkomandi kosninga eða könnunar. Kerfinu er ætlað að tryggja nafn- leynd kjósenda, að enginn geti kosið oftar en einu sinni og að kjósendur geti sannreynt að rétt sé farið með svör þeirra við talningu.“ Víðtæk notkun á kennitölum og fullkomin samtenging bankakerfisins hér á landi gerir það mögulegt að dreifa aðgangskóðum til allra net- tengdra Íslendinga. Til að tryggja öryggi kosninga er svokölluðum lykli að hugbúnaði nafn- leyndarkerfisins skipt upp á milli sex einstaklinga. Fjóra þeirra þarf til að fá aðgang að kerfinu og getur því enginn einn einstaklingur breytt kerfinu. Tvær sjálfstæðar stofnanir tilnefna hvor um sig þrjá einstaklinga til að varðveita lykilinn, annars vegar Reiknistofnun Háskóla Íslands og hins vegar Íslensk erfðagreining. Tvo frá hverri stofnun þarf til að fá að- gang að kerfinu, en það á aðeins að þurfa til að endurræsa kerfið reynist þess þörf. Upplýsingar um kjósendur eru ennfremur dulkóðaðar tvisvar. Ann- ars vegar af hugbúnaði Íslend- ingaVals og hins vegar af þeim sem sér um viðkomandi kosningu eða könnun. Hvorki ÍslendingaVal né umsjónaraðili viðkomandi kosningar á því að geta séð hver er að kjósa í hvert sinn eða hvernig hann kýs. Sér umsjónaraðili aðeins hvert kyn kjós- andans er, á hvaða aldursbili hann er Morgunblaðið/Kristinn Kosið Guðmundur Magnússon, ritstjóri Eyjunnar, og Hákon Guðbjartsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs ÍE kynntu kosningarnar í gær. Kosið rafrænt um Icesave-samninginn Nýju kosningakerfi ætlað að auð- velda uppsetningu á öruggum rafrænum kosningum og könn- unum. Kjörseðlar aðgengilegir í gegnum einkabanka á netinu og í hvaða kjördæmi hann býr. Þegar kjósandi hefur greitt atkvæði býðst honum að taka við kvittun. Þessi kvittun inniheldur m.a. svarlykil, all- ar spurningar og svör kjósandans og rafræna undirskrift frá viðkomandi kosningavef. Tilgangur kvittunar- innar er að gefa öllum kjósendum tækifæri til að fylgjast með talningu atkvæða og staðfesta að sín svör séu rétt geymd í gagnagrunni kosn- ingavefjarins. Þá geta áhugasamir kjósendur eða eftirlitsaðilar sótt öll svör af kosn- ingavefnum og staðfest að svörin stemmi við birtar niðurstöður. Einnig eru stemmd af greidd atkvæði og fjöldi þeirra sem sóttu um kjörseðil. 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 www.reykjavik.is/kjostu UM VERKEFNI Í ÞÍNU HVERFI KJÓSTU Kosningu lýkur í dag! Er hægt að nota kerfið í alþingis- eða sveitarstjórnarkosningum? Hákon Guðbjartsson, framkvæmda- stjóri upplýsingatæknisviðs Íslenskr- ar erfðagreiningar, segir mögulegt að nota kerfið í lögbundnum kosn- ingum en að einhverjar breytingar þyrfti að gera á því til að svo yrði. „Í stað þess að fólk kjósi heima hjá sér er t.d. betra í lögbundnum kosn- ingum að setja upp tölvur í kjör- deildum. Markmiðið með því er að koma í veg fyrir að hægt sé að þvinga kjósendur til að greiða at- kvæði gegn sannfæringu sinni.“ Eru rafrænar kosningar notaðar annars staðar í heiminum? Netkosningar hafa verið notaðar í þjóðaratkvæðagreiðslum eða öðrum kosningum t.d. í Bretlandi, Eistlandi og Sviss auk þess sem þær hafa ver- ið notaðar í sveitarstjórnarkosn- ingum í Kanada og prófkjörum í Bandaríkjunum og Frakklandi. Þá nota sum ríki tölvur til að telja at- kvæði, sem greidd eru á pappír. S&S NOKKUR hundruð manns tóku þátt í þriðja kröfufundi Hagsmuna- samtaka heimilanna og Nýs Íslands á Austurvelli á laugardag. Áhersla var lögð á bætt lánskjör fyrir heim- ilin. Vakin var athygli á því að nú væri öðru greiðsluverkfalli hags- munasamtakanna að ljúka án þess að stjórnvöld og lánastofnanir hefðu komið með heildstæða lausn til leiðréttingar á höfuðstól lána. „Tugir þúsunda heimila rétt merja að ná endum saman,“ segir Friðrik Ó. Friðriksson formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Hann telur aðgerðir samtakanna þegar farnar að skila árangri. Þá hafi samtökin hvatt fólk til að hætta að nota greiðslukort sem kortafyr- irtæki hafi svarað með því að fjölga vildapunktum. Þá hafi bankar teflt fram tilboðum til sinna skuldunauta sem fæst séu þó jafn bitastæð og af sé látið. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Aðgerðirnar skila þegar árangri UMSÁTUR var við hús í Reykja- nesbæ á tíunda tímanum í gærmorg- un. Lögreglan á Suðurnesjum kall- aði til sérsveit ríkislögreglustjóra vegna byssuhótana, en eftir um hálf- tíma umsátur um íbúðina þar sem meintir byssumenn héldu til gáfu þeir sig fram við lögreglu. Í húsinu fannst óhlaðin haglabyssa. Forsaga málsins er sú að nokkrir menn bönkuðu upp á hjá tveimur mönnum, sem þeir eru málkunnugir, en þeir töldu sig eiga harma að hefna eftir slagsmál. Mennirnir tveir hótuðu aðkomumönnunum og í framhaldinu var lögreglan kölluð til. Vegna gruns um vopnaburð var kall- að í sérsveitina. Allir mennirnir sem við sögu komu í þessu máli eru lag- anna vörðum vel kunnir frá fyrri tíð. sbs@mbl.is Umsátur í Reykja- nesbæ Vopnlausir hótuðu Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is BRESKA efnahagsbrotadeildin (SFO) undirbýr nú formlega rann- sókn á málefnum Kaupþings vegna gruns um að bankinn hafi tekið þátt í glæpsamlegri starfsemi. Í breska blaðinu Daily Tele- graph segir að frá því í ágúst hafi SFO aflað gagna til að komast til botns í því hvernig staðið hafi á hruni bankans. Í blaðinu segir enn- fremur að stjórnarmenn Singer & Friedlander, dótturfélags Kaup- þings í London, hafi leitað aðstoðar breska lögfræðingsins Ian Burton, sem er sérfræðingur í fjársvika- málum. Einn heimildarmanna blaðsins sagði markmið rannsóknarinnar m.a. að grennslast fyrir um hvað orðið hafi um fjármuni bankans vegna þess að hundruð breskra sveitarfélaga og góðgerðarsamtaka hafi orðið fyrir umtalsverðu tjóni þegar bankinn hrundi. Er einnig farið yfir viðskipti bankans við stærstu viðskiptavini og eigendur. Þannig hafi bankinn lánað athafnamanninum Robert Tchenguiz 1,7 milljarða evra, um 310 milljarða króna á núvirði, en Tchenguiz sat í stjórn Exista, stærsta hluthafa bankans. Þá er bent á 41,7 milljóna evra lán til athafnamannsins Kevins Stanford, en féð á að hafa verið notað til að stunda viðskipti með skuldatryggingar á skuldabréfum bankans. Í október kom hingað til lands þriggja manna teymi á vegum SFO og skiptist á upplýsingum við starfsmenn embættis sérstaks sak- sóknara. Bretar hafa lengi haldið því fram að fyrir hrun hafi háar fjárhæðir verið fluttar frá Bretlandi til Ís- lands, en fyrrverandi stjórnendur Kaupþings hafa ætíð hafnað þeim ásökunum. Má þó leiða að því líkur að rannsókn SFO muni einnig beinast að því hvort um slíkar millifærslur hafi verið að ræða. Kaupþing til rann- sóknar í Bretlandi Munu leita skýringa á hruni bankans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.