Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 16
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Skólar og námskeið Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefna því á nám og námskeiða. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um menntun, skóla og námskeið þriðjudaginn 5. janúar 2010. Meðal efnis verður : Háskólanám og endurmenntun. Fjarmenntun á háskólastigi. Verklegt nám/iðnnám á framhalds og háskólastigi. Endurmenntun. Símenntun. Listanám. Sérhæft nám. Námsráðgjöf og nám erlendis. Kennsluefni. Tómstundanámskeið og almenn námskeið. Lánamöguleikar til náms. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 21. desember Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Brjósk er þess eðlis að þaðbrotnar stöðugt niður ogendurnýjar sig eins ogmargir aðrir vefir, t.d. húðin. Í nýrri rannsókn sem greint var frá í New York Times í síðustu viku kemur fram að við högg á hné drepast brjóskfrumur í hnénu. Við dauða frumnanna spillist endurnýj- unin á því svæði og brjóskið end- urnýjar sig ekki á sama hátt og áð- ur. Þessar skemmdir sjást ekki við fyrstu sýn en leiða síðar til slitgigt- ar. Engin lækning er til við slitgigt þótt ýmis lyf slái á einkennin og gigtin versnar með aldrinum. Ungt fólk með gömul hné Ein þeirra sem unnu að rann- sókninni er dr. Constance R. Chu. Í viðtali við New York Times benti hún á að slitgigt var áður að mestu bundin við ellilífeyrisþega. Nú er hún sífellt algengari meðal ungs fólks, ekki síst íþróttafólks sem meiðst hefur á hnjám. Algengustu áverkarnir á hnjám eru slitin kross- bönd en talið er að í Bandaríkj- unum séu framkvæmdar um 175.000 aðgerðir á ári til að gera við krossbönd í hnjám. Dr. Chu sagði að aðgerðunum hafi fjölgað á und- anförnum árum eftir því sem keppnisíþróttir ungmenna hafi orð- ið vinsælli. „Flestir bæklunarlækn- ar hafa meðhöndlað ungt fólk með mjög gömul hné.“ Rannsóknin bendi til þess að slit á krossböndum skaði ekki aðeins krossböndin held- ur einnig brjóskfrumurnar í hnján- um. Slíkt geti leitt til sársauka og bæklunar. Erfitt er að greina áhrifin á brjóskið fyrr en langt er um liðið. Því hefur dr. Chu mælt með því að íþróttamaður sem meiðist á hné hlífi því eftir að hnéð virðist hafa jafnað sig. Hlaupurum til uppörvunar er rétt að ítreka að rannsóknin tekur ein- ungis til þess sem gerist þegar íþróttamenn meiðast illa á hnjám. Stutt er síðan New York Times fjallaði um að rannsókn hefði sýnt fram á að hlaup færu ekki illa með hnén. Ferill búinn, slitgigt komin Dr. Helgi Jónsson, sérfræðingur í gigtarlækningum við Landspítala – háskólasjúkrahús, segir að langt sé síðan sýnt hafi verið fram á tengsl á milli áverka á hnjám og slitgigtar. Í fyrrnefndri rannsókn sé fjallað um hvernig áverkar orsaka skemmdir á brjóski og dauða brjóskfrumna. „Þetta hefur mest verið rannsakað hjá fótboltamönnum. Það er enginn vafi á því að atvinnumenn eða hálf- atvinnumenn í fótbolta eru í mjög aukinni hættu á að fá slitgigt í hné, eftir áverka, liðþófatökur, speglanir og ýmislegt sem tengist áverk- unum. Margir eru komnir með slit- gigt þegar ferlinum lýkur,“ segir hann. Tæklingarnar slæmar Helgi tekur fram að íþróttir og hreyfing almennt sé góð fyrir lík- amann og liði hans. Íþróttir séu á hinn bóginn misjafnlega hliðhollar hnjánum. „Við sjáum minna slit hjá sundmönnum og golfurum en meira hjá keppnisfólki, svo sem maraþon- hlaupurum og fótboltamönnum. Einhvers staðar þarna á milli eru mörkin. Og þau eru gríðarlega ein- staklingsbundin. Það sem oft spilar inni í eru þessir fjárans áverkar, sérstaklega hjá fótboltamönnum með öllum þessum tæklingum sem eru í fótboltanum.“ Fólk verði einn- ig að forðast ofreynslu því jafnvel þótt t.d. hjólreiðar séu almennt holl- ari fyrir hnén en hlaup geti menn ofgert sér. „Atvinnuhjólreiða- kappar, þeir eyðileggja í sér hnén.“ Morgunblaðið/Jim Smart Átök Í fótboltanum er oft tekist harkalega á og því miður geta átökin leitt til slæmra meiðsla, líkt og Ásthildur Helgadóttir (t.h.) fékk að kenna á. Hér sést hún í sigurleik kvennalandsliðsins gegn Hvít-Rússum árið 2005. Brjóskið drepst og það leiðir til slitgigtar í hnjám Þeir sem hafa meiðst illa á hné vita vel hversu erf- iðir slíkir áverkar geta verið. Færri vita að hné- meiðsli geta leitt til þess að brjóskfrumur í hnénu drepist og að slíkt leiði á endanum til slitgigtar. ÁSTHILDUR Helgadóttir er ein þeirra fjölmörgu fótboltakvenna og -manna sem hafa þurft að hætta að spila fótbolta vegna meiðsla á hnjám. Hún meiddist alvarlega á hægra hné í landsleik árið 2004 og hún telur að allt bendi til þess að hún sé nú með slitgigt í hnénu. Meiðslin hlaut hún í landsleik gegn Skotum árið 2004. „Ég var bara óheppin. Skotinn vafði sinni löpp utan um mína og festi hana þannig,“ segir Ásthildur. Liðböndin slitnuðu og einnig þurfti að taka af liðþófanum. Ásthildur náði sér þó nægjanlega vel af meiðsl- unum til að geta spilað sitt besta tímabil 2006-2007 þegar hún var annar markahæsti leikmaðurinn í sænsku deildinni og var tilnefnd sem besti sóknarmaðurinn. Síðan tóku meiðslin sig upp aftur og í desember 2007 lagði hún skóna á hilluna. Það vann ekki með Ásthildi að konur eru með um 40% minna brjósk í hnjánum en karlar og þar að auki með mýkri og veikari liðbönd – alveg burtséð frá því hversu harðar þær eru að öðru leyti. Getur ekki skokkað Nú, tveimur árum seinna, há meiðslin henni enn. Ásthildur getur ekki skokkað í svo sem hálftíma án þess að fá verk í hnéð. Ásthild- ur segir að liðamín og glúkósamín hjálpi til en ástandið fari einnig mikið eftir því hversu dugleg hún er að gera styrktaræfingar. „Ef ég styrki hné með lyftingum og æfi vöðvana í kringum hnéð er ég betri.“ Þá syndir hún og hjólar en hvort tveggja hlífir hnjánum. Jafnvægisæfingar mikilvægar Ásthildur segir að endurhæfingin sem hún hlýtur í Svíþjóð sé ólík meðferðinni á Íslandi að því leyti að á Íslandi sé einblínt á lær- vöðvana. Í Svíþjóð sé hún einnig látin gera æfingar sem auka stjórn hennar á hnjánum og ýmsar jafnvægisæfingar. Hún er látin stunda einfaldar æfingar sem þjálfa rassvöðvann, t.d. með því að standa á öðrum fæti og beygja sig fram. „Það skiptir rosalega miklu máli að þjálfa hnéð vel upp og taka endurhæfinguna alvarlega,“ segir Ást- hildur. Mikilvægt sé fyrir fótboltakonur að gera fyrirbyggjandi æf- ingar og þær geti verið samskonar og hún geri í endurhæfingunni. Skiptir öllu máli að taka endurhæfinguna alvarlega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.