Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 19

Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Jólaskógur Þrátt fyrir úrkomu var margt um manninn í Jólaskógi Skógræktarfélags Reykjvíkur í Heiðmörk eftir að hann var opnaður á laugardag. Hann verður einnig opinn um næstu helgi. Kristinn NÚ Í LOK ársins 2009 er ég engu nær um stöðu St. Jós- efsspítala en ég var í byrjun ársins en þá boðaði þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem sparnaðar- leið sameiningu sjúkrahúsanna á suðvesturhorninu og að verk- efni sjúkrahúsanna yrðu flutt á milli sjúkrahúsanna á Suð- urnesjum, Suðurlandi, Akranesi og St. Jósefsspítala. Mikil mót- mæli voru borin fram við þess- um hugmyndum enda mikið og gott starf unn- ið á St. Jósefsspítala hvort sem um er að ræða sjúkrahúsið sjálft, skurðdeildina eða göngudeild meltingarsjúkdóma en af henni hef ég mesta reynslu. Í framhaldi af þessum hugmyndum heil- brigðisráðherra stóð áhugamannahópur um framtíð St. Jósefsspítala af því að haldinn var borgarafundur í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði hinn 10. janúar sem bar yf- irskriftina „Stöndum vörð um starfsemi St. Jósefsspítala og framtíð heilbrigðisþjónustu í Hafnarfirði“. Margir tóku til máls á fundinum. Má þar nefna þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, Lúðvík Geirsson bæjarstjóra, Almar Grímsson bæjarfulltrúa, Krist- ínu Gunnbjörnsdóttur, formann bandalags kvenna, og Ragnhildi Jóhannsdóttur hjúkrunarfræð- ing. Mælendaskrá var síðan opn- uð og tóku margir til máls. Ekki voru þetta einu opinberu mótmælin en einnig voru mót- mæli við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 24. janúar. Þarna voru samankomnir starfsmenn spítalans og velunnarar. Hópurinn sem þarna var hrópaði hvatningarorð til ráðuneytis og ríkisstjórnar þar sem farið var fram á að starfsemin á St. Jósefsspítala fengi að halda áfram óbreytt. Ekki var um að ræða hávær mótmæli en góð stemning myndaðist og var meðal annars sungið vígsluljóð spítalans frá árinu 1926 sem samið var þegar spítalinn tók til starfa. Í framhaldinu af þessum fundum afhenti hagsmunahópur um framtíð St. Jósefsspítala heilbrigðisráðherra undirskriftalista þar sem um 14 þúsund manns skoruðu á ráðherra að endurskoða þá ákvörðun að leggja stofnunina niður í núverandi mynd. Ég var mjög óhress með þessar hugmyndir um lokun deilda og þessa tegund af hagræðingu þar sem ég þekki á eigin skinni hve mikilvægt starf er unnið á þessari stofnun og hef fylgst með þeirri upp- byggingu sem átti sér stað á St. Jósefsspítala síðustu ár. Þegar Ögmundur Jónasson tók síðan við embætti heilbrigðisráðherra kviknaði von- arneisti hjá mér um að fallið yrði frá þeim hugmyndum sem fyrrverandi ráðherra boðaði um sameiningu og lokun spítalans. Ekkert fannst mér þó breytast við komu Ögmundar í ráðuneytið og enn jókst óöryggi mitt. Þegar síðan Álfheiður Ingadóttir kom inn í heil- brigðisráðuneytið kviknaði enn og aftur von- arneisti um að ekki yrði af þessum breyt- ingum. Álfheiður Ingadóttir hefur ekki haft hátt um áform sín og hef ég ekkert séð eða heyrt opinberlega frá henni um starfsemi St. Jósefsspítala eða hvort haldið verður áfram með fyrri áform um lokun deilda eða hagræð- ingu á annan hátt frá því hún tók við embætti heilbrigðisráðherra. Ég gæli við þær hugsanir að engar fréttir séu góðar fréttir (þá fyrir okkur sem þurfum á þjónustu St. Jósefsspít- ala að halda). Nú þegar er um hálfur mánuður er eftir af þessu ári er ég alveg jafnnær og í byrjun árs- ins. Óvissu minni um afdrif St. Jósefsspítala og þeirrar starfsemi sem þar fer fram hefur ekki verið eytt. Eins og fram hefur komið hér að ofan hefur ekkert heyrst frá Álfheiði Inga- dóttur heilbrigðisráðherra opinberlega um þessi mál en á meðan er sjúklingum haldið í gíslingu óvissunnar. Ég tel mikilvægt að halda áfram þeirri þjónustu sem St. Jós- efsspítali hefur hingað til sinnt og að allt þetta tal um lokun og breytingar á spítalanum ógni fyrst og síðast öryggi sjúklinganna. Eftir Þuríði Rúrí Valgeirsdóttur »Ég tel mikilvægt að halda áfram þeirri þjónustu sem St. Jósefsspítali hefur hingað til sinnt og að allt þetta tal um lokun og breytingar á spít- alanum ógni fyrst og síðast ör- yggi sjúklinganna. Þuríður Rúrí Valgeirsdóttir Höfundur er leikskólakennari. Ekki gleyma St. Jósefsspítala NÚ NÝVERIÐ var ákveðið að bjóða út fyrsta áfanga breikk- unar og tvöföldunar Suðurlandsvegar. Um er að ræða vegkafl- ann á milli Lögbergs- brekku og Drauga- hlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna sem 2+2 veg. Vestari kaflinn tengist núver- andi þriggja akreina vegi um Lögbergsbrekku og að austan tengist hann núverandi 2+1 vegi um Svínahraun. Gerð út- boðsgagna er langt komin en aug- lýsa þarf verkið á Evrópska efna- hagssvæðinu. Það er mikill áfangi eftir margra ára baráttu fjölda fólks fyrir bættu umferðaröryggi á Suðurlandsvegi með aðskilnaði akreina á veginum. Bjarni bóksali og rithöfundur Harð- arson gerir áfangann að umtalsefni í grein í Morgunblaðinu um helgina og kallar eft- ir hagsýni og hófstill- ingu við breikkun vegarins. Að þrjár akreinar geri sama gagn og fjórar og stakkur sé sniðinn eftir vexti. Undir margt af því sem Bjarni segir má taka. Hins vegar er mik- ilvægt að nota tækifærið til að rifja upp þá skynsamlegu leið sem Kristján Möller samgöngu- ráðherra valdi að fara við breikk- un vegarins í samráði við sveit- arstjórnarmenn og er ekki fjarri þeim viðhorfum sem fram koma í grein Bjarna. Í fjórum áföngum verða akreinar á öllum veginum frá Reykjavík til Selfoss að- skildar. Frá Kaffistofu að Kamba- brún verður um að ræða þrígrein- ingu vegarins, 2 plús einn, sem síðar verður hægt að bæta við fjórðu akrein þegar umferð- arþungi kallar á það. Það er ein- faldlega hagstæðast og sömu markmið umferðaröryggis nást. Leiðin Hveragerði/Selfoss er 12 km kafli sem verður tvöfaldaður að fullu ásamt nýrri brú yfir Ölf- usá. Þá er áðurtalinn kafli tvöfald- ur sem nefndur er í upphafi. Því er um að ræða blandaða leið tvö- földunar og þrígreiningar eftir því hvað kemur hagstæðast út og hve umferðarþungi er mikill á leiðinni. T.d. er ódýrara að tvö- falda áfangann sem nú verður boðinn út heldur en að bæta við einni akrein með þeim afleið- ingum að loka þyrfti veginum á löngum stundum. Þess í stað verður byggður nýr vegur við hliðina. Alltaf ræður hvað hag- stæðast er að gera og hvað skilar hámarks öryggi á þessum um- ferðarþyngsta og slysahæsta vegi utan þéttbýlis á Íslandi. Það er rangt að halda því fram að byggja eigi fjórar akreinar alla leiðina með þeim afleiðingum að aðrar brýnar framkvæmdir í fjórðungnum sitji á hakanum. Hagsýni og hófstilling í takt við breyttar aðstæður í samfélaginu eru leiðarljósið við aðskilnað ak- reina á Suðurlandsvegi þar sem farin er blönduð leið þrí- og fjór- greiningar. Þess má til gamans geta að aldrei fyrr hefur annar eins fjöldi framfaraverkefna í samgöngu- málum verið í framkvæmd í Suð- urlandsfjórðungi. Nú rís ný brú yfir Hvítá við Bræðratungu, Land- eyjahöfn gjörbreytir samgöngum á milli lands og Eyja og Upp- sveitabraut verður að veruleika með nýjum vegi yfir Lyngdals- heiði og Hvítárbrúnni. Þá er stutt í lok Suðurstrandarvegar sem opnar nýtt atvinnu- og mannlífs- svæði við Suðurströndina og teng- ir kjördæmið okkar loks saman í eitt svæði. Skynsemin ræður för á samdráttartímum í þjóðfélaginu um leið og brýn samgönguverkefni verða að veruleika sem styrkja grunngerð samfélagsins í heild sinni. Skynsemi við breikkun Suðurlandsvegar Eftir Björgvin G. Sigurðsson Björgvin G. Sigurðsson »Hagsýni og hófstill- ing í takt við breytt- ar aðstæður í samfélag- inu eru leiðarljósið við aðskilnað akreina á Suð- urlandsvegi þar sem farin er blönduð leið þrí- og fjórgreiningar. Höfundur er 1. þingmaður Suðurkjördæmis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.