Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 36

Morgunblaðið - 14.12.2009, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS! ÝND Í ÁLFABA KA OG KRINGLUNNI TVEIR VINIR TAKA AÐ SÉR 7 ÁRA TVÍBURA MEÐ ÁKAFLEGA FYNDNUM AFLEIÐINGUM OldDogs JOHN TRAVOLTA OG ROBIN WILLIAMS FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI SPRENGHLÆGILEGU MYND SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK / KRINGLUNNI OLD DOGS kl.6 -8-10 L DIGITAL SORORITY ROW kl.8 -10:20 16 NINJA ASSASSIN kl.10:40 16 THE TWILIGHT NEW MOON kl.5:30-8 12 A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D ótextuð 7 3D-DIGITAL / ÁLFABAKKA OLDDOGS kl. 6-8D-10:10D L DIGITAL ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.5:503D ótextuð 7 OLDDOGS kl. 8 - 10:10 LÚXUS ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl.5:50 7 SORORITYROW kl. 8 -10:20 16 ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.8 7 NINJAASSASSIN kl. 8 - 10:10 16 PANDORUM kl.5:50 16 THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30-8-10:30 12 LAW ABIDING CITIZEN kl.10:10 16 THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30 LÚXUS EFTIR sýningu á BadLieutenant: Port of CallNew Orleans er ljóst aðHerzog er ekki að endurgera Bad Lieutenant, sem Abel Ferrera hneykslaði heiminn með fyrir tæpum 20 árum. Hann hefur verið að leita að titli – út- úrsnúningi sem hæfði innihaldinu – og fundið hann. Vissulega snúast báðar mynd- irnar um spillta lögregluforingja og almennan ruslaralýð á sorp- haugum mannlífsins í bandarísk- um stórborgum en samlíkingin nær ekki miklu lengra. Cage leikur Terence McDonagh, lögreglumann í New Orleans, sem í upphafi fær foringjastöðu – og helti – fyrir hetjudáð í starfi. Við komumst hins vegar fljótt að því að það sem knýr McDonagh til að drýgja umrædda dáð er dópmeng- uð vitfirring. Myndin siglir áfram og áhorfendum verður æ ljósara að McDonagh er ekki aðeins ótta- laus rugludallur heldur skítseiði, í flestum tilfellum mun spilltari, hrottafengnari, siðblindari og for- hertari eituræta en úrþvættin sem hann fær greitt fyrir að koma á bak við lás og slá. Hann er sann- arlega skrímsli, nautnasjúkt ill- menni í löggubúningi. Tökuvélar skrásetja samvisku- samlega ofstopafull, vímustýrð störf McDonaghs í borginni, sem er hálfgerð forarvilpa, skömmu eftir flóðbylgjuna Katrinu. Sann- kölluð gróðrarstía illvirkja sem aldrei fyrr þó svo að New Orleans, í sinni glæstu hnignun, sé með eina hæstu glæpatíðni borga í Vesturheimi. Hann beitir öllum ráðum til að knésetja sorann og hafa jafnframt af honum drjúgan skilding, ómælt dóp og fjörugt kynlíf hjá kvensniftunum sem hann á að vera sverð og skjöldur. Hann er settur yfir rannsókn á morðum barna ólöglegra seneg- alskra innflytjenda, sem voru farnir að selja dóp á yfirráðasvæði annars glæpagengis. Hann finnur vitni að drápunum og glatar því; leitar uppi og finnur morðingjana í heillandi borgarrústunum, stelur, drepur og verður vel ágengt. Sam- hliða heldur McDonagh gangandi ástarsambandi við hina undur- fögru Frankie (Mendes), fíkil og vændiskonu. McDonagh hefur sannarlega í nógu að snúast þar sem hann skakklappast í dópfirringunni um lastabælin eins og löggumaður úr víti. Hann verður að gæta sín á innra eftirlitinu, hafa veðmang- arann sinn (Dourif) góðan og leika tveim skjöldum gagnvart sam- starfsmönnum sem óaldarlýðnum. Fullkomlega ómennskt hlutskipti og Bad Lieutenant … verður seint talin trúverðug, það er heldur ekki meiningin hjá Herzog, sem fær vel þegið tækifæri til að leika sér að firringunni sem hefur gjarnan ver- ið viðloðandi hans bestu verk. Hann gengur það langt að stund- um er erfitt að greina á milli hvað eru ofsjónir og ímyndun lögreglu- foringjans (eðlur, dansandi náir) og hvað veruleiki. Það er tæpast heil brú í myndinni, en hún er hröð, hrottafengin og spennandi afþreying í senn, stórkostlega leikin og stýrt. Enginn betri en Cage, það var kominn tími til að hann fengi almennilegt hlutverk sem reyndi á hann, ekki síst þetta einstæða jaðaræði sem við fengum að njóta í eina tíð þegar það rann á hann í myndum eins og Wild at Heart, áður en Ghost Rider, Next og hvað það heitir þetta flotta drasl fyllti hjá honum stundatöfl- una. Cage er hrygglengja verks- ins, vanheill skúrkur og samvisku- samur löggæslumaður í senn. Botnsori sem semur við hvern sem er ef svo ber undir, serður glansgellurnar undir húsveggjum fyrir augunum á kærustunum þeirra en hugsar jafnframt vel um föður sinn og fyrrum hetju í lög- reglunni, lúxusmelluna sína og einhvers staðar bak við þoku- kennda og vænisjúka hegðun er honum annt um starfið. Bad Lieutenant … er rússíbana- reið um niðurnítt mannlíf og um- hverfi, geggjuð lýsing á óstjórn og ofbeldi. Afþreying með bullandi óráði, ein magnaðasta mynd ársins og örugglega sú snarbilaðasta. saebjorn@heimsnet.is Feyskið mannlíf í fögrum rústum Laugarásbíó, Regnboginn Bad Lieutenant: Port of Call New Orleans bbbbn Leikstjóri: Werner Herzog. Aðalleikarar: Nicolas Cage, Eva Mendes, Val Kilmer, Xzibit, Brad Dourif. 122 mín. Bandarík- in. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Nicolas Cage í vanda „Ein magnaðasta mynd ársins“ segir í dómnum. má heyra skvett- ur af djass- og þjóðlagaáhrifum. Öll umgjörð plöt- unnar er eins og best verður á kosið; útsetn- ingar eru góðar, allur hljóðfæra- leikur fyrsta flokks og varningnum pakkað í myndarlegt umslag. Lögin á plötunni eru einkar ljúf áheyrnar, mörg hver dæmi um frá- bærar lagasmíðar, s.s. „Draumey“, „Hafðu á honum gætur“ og „Sól- skinsdagur“. Lagið „Liljurós“ hefur þegar fengið að hljóma allnokkuð í útvarpi á undanförnum vikum og nýtur skiljanlegra vinsælda, enda svipar því að verulegu leyti til þeirra laga sem áheyrendur þekkja vel frá samstarfi systkinanna Ellenar og Kristjáns. Dæmi eru einnig á plöt- unni um stórbrotnari lög en vænta mætti af Ellen, s.s. „Stjörnubjarti drengur“, epískt og spennuþrungið Fimm ár eru nú liðin síðanhin ástsæla söngkona Ell-en Kristjánsdóttir sendifrá sér sína seinustu sóló- plötu en nú hefur glæný frumsamin plata litið dagsins ljós. Upp- tökustjórn nýrrar plötu, Draumeyj- ar, er í góðum höndum Péturs Ben sem þjónaði sama hlutverki á nýj- ustu plötu Bubba sem kom út í fyrra. Flest lög eru eftir Ellen og Pétur og er allur texti sunginn á góðri ís- lensku. Þeirri tónlistarstefnu sem fylgt er eftir á plötunni mætti lýsa sem „kántrískotnu“ poppi, en einnig lag sem sækir áhrif víða og myndi örugglega sóma sér stórvel í kvik- mynd eða í suðurríkjaútvarpi vest- anhafs. Allur söngur á plötunni er fagur, bjartur og einlægur að hætti Ellenar og er öll hendingamótun að sama skapi smekkleg. Hvergi er stigið eig- inlegt feilspor. Nokkur lög á plöt- unni, s.s.„Stjörnubjarti drengur“ og „Sparka af mér skónum“ veita þó söngvaranum fullkomið tækifæri til að tjá breitt tilfinningaróf mannsins; frá ótta og söknuði yfir í eintóma lífs- gleði og kæruleysi. Og það er ein- hvernveginn eins og farið sé á mis við þessi góðu tækifæri. Þrátt fyrir allan stuðning í tónlist og texta auk frábærs flutnings hljóðfæraleikara er líkt og annars fagur söngur Ell- enar geti ekki slitið sig frá þeirri var- færnislegu nálgun sem einkennir plötuna alla. E.t.v. felst mun meiri tjáning að baki viðkvæmri raddbeit- ingunni en eyru undirritaðrar ná að greina, en það er engu að síður eins og lögin eigi miklu meira inni. Í heild er þó um að ræða góða plötu með nokkrum virkilegum perl- um hvað lagasmíðar varða. Útsetn- ingar eru vandaðar og á Ellen auk allra þeirra tónlistarmanna sem komu að plötunni fullt lof skilið fyrir. Óvíst er með öllu hvort lög plötunnar hafa hér náð að blómstra til fulls en ætla má, og er það óskandi, að þau lifi engu að síður um ókomin ár. Ljúft og gott Geisladiskur Ellen Kristjánsdóttir – Draumey bbbmn ALEXANDRA KJELD TÓNLIST Morgunblaðið/Árni Sæberg Ellen Kristjánsdóttir Allur söngur á plötunni er fagur, bjartur og einlægur. Harvei Keitel lék afburða vel ótrú- lega djöfullegt afstyrmi í Bad Lieu- tenant (́92), sem má e.t..v. líta á sem innblástur hinnar gjörólíku myndar Herzog. Forverinn gerðist á öngstrætum New York, ódýr, hrá og sjokkerandi lýsing á mann- skepnu í löggubúningi sem Keitel gerði ógleymanlega. FYRST KOM KEITEL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.