Morgunblaðið - 14.12.2009, Síða 40

Morgunblaðið - 14.12.2009, Síða 40
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heitast 10°C | Kaldast 2°C Suðaustan 3-8 m/s við SV-ströndina. Þurrt að mestu sunn- anlands. Bjartvirði fyrir norðan og austan » 10 „Hvergi er stigið eiginlegt feilspor,“ segir rýnirinn um nýja plötu Ellenar. Lögin eru sögð ljúf áheyrnar. »36 TÓNLIST» Bjartur söngur KVIKMYNDIR» Ein magnaðasta myndin – og ein sú bilaðasta. »36 Umsátrið, ný bók Styrmis Gunn- arssonar, er sögð „ómissandi bók um fortíð og framtíð Ís- lands“. »33 BÆKUR» Rætt af hreinskilni BÆKUR» Fimm nýjar barnabækur og margar stjörnur. »35 FÓLK» Flugan flaug milli fals- ana og frostrósa. »32 Menning VEÐUR» 1. Erfitt að horfa upp á félagana 2. Var lofað að Davíð myndi hætta 3. Fimmtungur án skírteinis 4. Ungfrú heimur er frá Gíbraltar »MEST LESIÐ Á mbl.is  Hermann Hreiðarsson vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann gekk til leiks í seinni hálfleik með Portsmouth gegn Sunderland á laug- ardaginn. Steve Bennett dómari gekk þá að honum og lyfti gula spjaldinu. Hermann hafði talað tæpitungulaust við Frazier Camp- bell, leikmann Sunderland, þegar þeir gengu af velli. „Ég var bara að- eins að rabba við hann í rólegheitum. Mér fannst hann renna sér tvisvar aðeins of óþægilega í mig og vildi minna hann á að það væri komið að mér. Þetta var bara mjög asnaleg áminning,“ sagði Hermann. KNATTSPYRNA Fékk gula spjaldið þegar hann gekk inn á völlinn  „ÉG tel mig hafa gert ágætt góðverk með því að leika þessa tölu. Ég efa ekki að þeir sem fengu stóra vinn- inginn í lottóinu um helgina eru vel að honum komnir,“ segir Sigurður Sigurjónsson leikari, sem hefur und- anfarið leikið töluna 34 í auglýsingu. Vinningstölur helgarinnar í lottó- inu voru 7, 27, 30, 34 og 38. Pott- urinn var sexfaldur og skiptu tveir heppnir með sér fyrsta vinningi og fá þrjátíu milljónir hvor. Í meira en tuttugu ára sögu Lottósins hefur fyrsti vinningur í sexföldum potti aldrei verið jafnhár. „Í lottóinu not- ar fólk sjaldnast tölur milli 30 og 40. Nú færðu lottóspilarar sig hins veg- ar meira í þær,“ segir Stefán Kon- ráðsson, framkvæmdastjóri Ís- lenskrar getspár. LOTTÓ Sigurður Sigurjónsson (34) gerði ágætt lottó-góðverk  Í ARTNET- tímaritinu er farið lofsamlegum orð- um um framlag Egils Sæbjörns- sonar myndlist- armanns á stærstu listakaupstefnu Bandaríkjanna, Art Basel Miami Beach, sem haldin var fyrr í mán- uðinum. Egill sýndi þar á vegum i8- gallerísins. Gagnrýnandi Artnet segir inn- setningu Egils hafa verið eitthvert ánægjulegasta verk sýningarinnar. Egill hafi leikið sér með raunveru- legt rými og huglægt, þar sem kvik- mynd var varpað á kassastæðu. MYNDLIST Innsetningu Egils hrósað í Artnet-tímaritinu SÖLVI Geir Ottesen, landsliðsmaður í knattspyrnu, er besti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar á þessu keppnistímabili, samkvæmt einkunnagjöf Ekstra- bladet. „Þetta er fínasta viðurkenning. Ég vissi svo sem alveg að ég væri búinn að spila vel í haust en ætli það megi samt ekki segja að þetta hafi komið mér á óvart. Ég fékk þó ekkert sjokk,“ sagði Sölvi við Morgun- blaðið. Mörg sterk lið hafa augastað á þessum öfluga varnarmanni og Sölvi er spenntur fyrir að komast í ensku úrvalsdeildina. | Íþróttir Bestur í dönsku úrvalsdeildinni Morgunblaðið/Eggert Bestur Sölvi Geir Ottesen hefur leikið vel í Danmörku. Á förum frá SönderjyskE? Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is EGGERT H. Kristjánsson, fyrrver- andi yfirpóstafgreiðslumaður, læt- ur sér ekki nægja að senda jólakort út um allan heim heldur sendir mörgum bréfavinum sínum líka dagatöl með fallegum myndum til að kynna Ísland. „Ég á marga pennavini úti um allan heim – suma hef ég átt í hálfa öld – og við skipt- umst á jólakortum og almanökum,“ segir Eggert sem er 84 ára. Enskan með pennavinum Eggert segir að þessi samskipti hafi byrjað með áhuga sínum á ferðalögum og hann hafi fundið út að hann tæki helst framförum í ensku með því að skrifast á við er- lenda pennavini. Hann hafi skráð sig í marga erlenda pennavina- klúbba og pennavinunum fjölgað jafnt og þétt. „Fyrst byrjaði ég á því að senda bréf og eftir að ég kynnt- ist pennavinunum betur fór ég að kynna landið með því að senda þeim almanök. Fyrir nokkrum ár- um kom til dæmis einn hollenskur pennavinur minn til landsins og hann sagðist bara hafa heimsótt Ís- land af því að ég hefði sent honum Snerrualmanök með svo fallegum myndum.“ Landkynning um allan heim Dagatölin fara víða, meðal ann- ars til Japans, Ástralíu, Brasilíu, Chile, Bandaríkjanna, Rússlands, Litháens, Þýskalands, Frakklands, Spánar, Austurríkis og Bretlands. „Einn enskur pennavinur minn frá 1963 býr rétt hjá Windsorkastala og er í miklu sambandi við bresku konungsfjölskylduna,“ segir Egg- ert og bætir við að hann hafi hitt marga pennavini. „Ég þekkti marg- ar fjölskyldur í Bandaríkjunum í gegnum þetta áhugamál og hef til dæmis farið þangað 13 sinnum og þar af tvisvar til Hawaii gagngert til þess að hitta pennavini mína. Undanfarin tvö ár hef ég hitt tvo pennavini mína í Berlín og í sumar kom annar þeirra þangað með lest frá Bæjaralandi til þess að hitta mig einn dag. Hann er 19 ára og ég gerði honum smágreiða á Íslandi í fyrrasumar, þegar hann ferðaðist með tjald um landið í sex vikur. Ég færði honum myndabók um Ísland og spurði hann hvort hann hefði séð þennan og hinn staðinn en þá kom í ljós að hann hafði ekki séð þessa venjulegu ferðamannastaði, bara verið uppi á hálendinu.“ Eggert segir að áhugamálið hafi komið sér sérlega vel eftir að hann hætti að vinna 1994, þótt dregið hafi úr samskiptunum með árunum. „Samt fékk ég 56 erlend jólakort í fyrra og yfir 20 almanök,“ segir hann. „Mest sendi ég 125 jólakort til útlanda en ég reikna með að senda um 60 til 70 í ár og 25 alman- ök, 20 frá Snerruútgáfunni og fimm frá Eimskip.“ Eggert H. Kristjánsson er 84 ára og hefur nóg að gera fyrir jólin Sendir dagatöl til pennavina út um allan heim Morgunblaðið/Heiddi Landkynning Eggert H. Kristjánsson sendir almanök út um allan heim og er með dagatöl frá pennavinum víðs vegar um veröldina uppi á vegg. Hefur farið 13 sinnum til Bandaríkj- anna til þess að heimsækja pennavini Í NÝLEGRI bandarískri rannsókn kemur fram að við högg á hné drepast brjóskfrumur í hnénu. Þessar skemmdir sjást yfirleitt ekki við fyrstu sýn en geta leitt til slit- gigtar síðar. Það er því afar mik- ilvægt fyrir íþróttamenn að reyna að forðast meiðsli og stunda fyr- irbyggjandi æfingar. Hnémeiðsli hafa að líkindum leitt til slitgigtar hjá Ásthildi Helgadóttur, einni bestu fótboltakonu Íslands og þótt víðar væri leitað. | 16 Högg leiða til slitgigtar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.