Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 10

Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009 Björn Bjarnason hefur birtmerkilegt yfirlit yfir fram- gang Icesave-málsins. Það er ótrúleg lesning. Framganga for- ráðamanna þess er lyginni lík- ust.     Tökum dæmi af Steingrími J.Hann sagði í mars á þessu ári: „Ég treysti Svavari Gests- syni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjón- máli að hann landi, og hans fólk glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“     Steingrímur „veit“ og hann„lofar því“.     Hinn 3. júní spyr formaðurFramsóknarflokks, Sig- mundur Davíð, Steingrím J. Sig- fússon í þinginu um stöðu máls- ins. Steingrímur svarar: „Ég held ég geti fullvissað hv. þingmann að það standi ekki til að ganga frá einhverju sam- komulagi í dag eða einhverja næstu daga og áður en til þess kæmi yrði að sjálfsögðu haft samráð við utanríkismálanefnd.“     Daginn eftir lá fyrir samn-ingur, gerður án samráðs við utanríkismálanefnd.     Er að undra að málið komi áafturfótunum fyrir þing og þjóð? Steingrímur „veit“, hann „lofar“, hann „fullvissar“ um að eitthvað verði „að sjálfsögðu“ gert. Og ekkert stenst.     Steinrímur J. Sigfússon getursagt eins og karlinn: „Ég viðurkenni að ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér en á móti kemur að mér hefur aldrei skjátlast.“ Steingrímur J. Sigfússon Lítil stoð í Steingrími J. Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík -3 skýjað Lúxemborg 1 skýjað Algarve 18 þoka Bolungarvík -3 skýjað Brussel 3 léttskýjað Madríd 8 súld Akureyri -8 léttskýjað Dublin 2 skúrir Barcelona 13 léttskýjað Egilsstaðir -18 léttskýjað Glasgow -4 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -2 snjókoma London 3 heiðskírt Róm 11 skýjað Nuuk 2 skafrenningur París 5 léttskýjað Aþena 14 léttskýjað Þórshöfn -2 skýjað Amsterdam 4 léttskýjað Winnipeg -19 heiðskírt Ósló -11 léttskýjað Hamborg 4 léttskýjað Montreal -1 snjókoma Kaupmannahöfn 2 léttskýjað Berlín 2 léttskýjað New York 4 alskýjað Stokkhólmur 2 skýjað Vín 6 léttskýjað Chicago -3 alskýjað Helsinki 1 skýjað Moskva -4 heiðskírt Orlando 17 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 29. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.08 3,6 10.32 1,1 16.32 3,3 22.44 0,9 11:22 15:39 ÍSAFJÖRÐUR 0.00 0,5 6.17 1,9 12.43 0,5 18.36 1,8 12:07 15:04 SIGLUFJÖRÐUR 2.02 0,3 8.24 1,1 14.41 0,2 21.09 1,1 11:52 14:45 DJÚPIVOGUR 1.18 1,7 7.39 0,5 13.36 1,5 19.40 0,4 11:01 14:59 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á miðvikudag, fimmtudag (gamlársdagur) og föstudag (nýársdagur) Hæg norðlæg eða breytileg átt, en norðanstrekkingur við aust- urströndina um tíma. Víða létt- skýjað sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum og sums staðar él við strönd- ina. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst. Á laugardag og sunnudag Hægviðri, víða bjart og áfram kalt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15 og dálítil snjó- koma eða él, hvassast með SA- ströndinni, en skýjað með köfl- um og þurrt að mestu S- og SV- lands. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Frost 1 til 8 stig, mildast syðst, en 10 til 16 stig í inn- sveitum á Norður- og Austur- landi. Seyðisfjörður | Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Seyðisfirði (HSSS) bættu aðstöðuna til muna nýverið þegar þau afhentu lyftibað ásamt lyftibaðstól með innbyggðri vog. Búnaðurinn er af fullkomnustu gerð og bætir verulega baðaðstöðu stofnunarinnar, bæði fyrir sjúk- lingana og vinnuaðstöðu starfs- fólksins, þar sem auðvelt er að stilla hæðina á baðkerinu og lyftu- stólnum. Einnig voru stofnuninni gefnar 4 salernisstoðir. Garðar Ey- mundsson byggingameistari styrk- ir samtökin sem nemur helm- ingnum af verði stoðanna. Verðmæti þessara gjafa er um 3,5 milljónir króna. Við sama tækifæri voru Hollvina- samtökunum afhentar 500 þúsund kr. að gjöf frá slysavarnadeildinni Rán. Fyrr á árinu gaf Austurlands- deild VR 1 milljón til HSSS og stjórn Smyril Line gaf nefndarlaun sín, 600 þúsund. Stjórn HSSS hefur ákveðið að endurnýja stóla í borðstofu ann- arrar deildar sjúkrahússins. Heild- arverð er rúmlega 800 þúsund krónur. Magnús Pálsson mun leggja fram veglegan styrk til þeirra kaupa. Sjúkrahúsið fékk bún- að fyrir um 4 milljónir Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Bað Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Seyðisfirði afhentu formlega lyftibað. NÁKVÆMAR tölur um jólaversl- unina eru ekki væntanlegar fyrr en um 10. janúar en að sögn Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, hef- ur verslunin farið fram úr björtustu vonum kaupmanna. „Jólaverslunin 2008 var mjög döp- ur. Menn eru miklu kátari með hana núna,“ segir Andrés. Í fyrra dróst verslunin saman um 18%, en árið þar á undan nam aukningin um 7% á milli ára. „Þetta er mun betra en í fyrra og það má raunar segja að í ljósi alls þá hafi þetta farið fram úr björtustu vonum,“ segir Andrés. Hann segir að verslunin hafi farið hægt af stað í ár en verslunarmenn séu hins vegar sammála um að jólaverslunin í ár hafi gengið betur en þeir hefðu þorað að vona. Skattahækkanir eru framundan og Andrés segir að leiða megi að því líkum að þær hafi ýtt undir kaup á varanlegum neysluvörum, s.s. dýr- um raftækjum. Rannsóknarsetur verslunarinnar mun birta tölur um jólaverslunina í næsta mánuði sem fyrr segir. Jólaverslun fór fram úr björtustu vonum Morgunblaðið/Árni Sæberg STARFSMENN Sorphirðu Reykjavíkur ætla sér að tæma tunnurnar við heimilin í borginni áður en nýtt ár gengur í garð og biðja því fólk um að kanna aðgengi að sorptunnunum eftir ofankomuna í gær. „Gott er að moka frá tröppum og tunnum og færa þær nær götunni til að stytta skrefin sem oft verða þung á þessum árstíma. Aðstæður til sorphirðu geta orðið slæm- ar í myrkri, kulda og snjó,“ segir í tilkynningu frá borginni. Biðja fólk að moka frá sorptunnunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.