Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, hefur fyrirskipað endur-
skoðun á lista yfir fólk sem ekki má
ferðast til Bandaríkjanna eftir mis-
heppnaða tilraun 23 ára Nígeríu-
manns til að sprengja farþegaþotu í
loft upp yfir Detroit.
Bresk yfirvöld hafa staðfest að
Nígeríumaðurinn Umar Farouk Ab-
dulmutallab hafi verið settur á bann-
lista þeirra í maí síðastliðnum. Hann
hafði stundað háskólanám í London.
Abdulmutallah var settur á gát-
lista í síðasta mánuði eftir að faðir
hans skýrði bandaríska sendiráðinu í
Abuja, höfuðborg Nígeríu, frá því að
hann hefði áhyggjur af trúarofstæki
sonar síns. Alls eru um 550.000
manns á gátlistanum.
Abdulmutallah er þó ekki á lista
yfir 18.000 manns sem notaður var
til að velja þá sem bannað er að
ferðast til Bandaríkjanna. Nígeríu-
maðurinn var með gilda vegabréfs-
áritun til Bandaríkjanna og fór með
flugvél frá Lagos til Amsterdam á
jóladag og þaðan til Detroit daginn
eftir.
Hermt er að sprengiefnið hafi ver-
ið saumað í nærfatnað mannsins en
kveikibúnaðurinn ekki virkað, þann-
ig að farþegar hafi getað yfirbugað
manninn.
Endurskoða
bannlista
NÝ TÆKNI VIÐ ÖRYGGISGÆSLU Á FLUGVÖLLUM
Búnaður til að tryggja
öryggi dyra stjórnklefans
Ber kennsl á fingraför
flugmanna og flugþjóna,
myndavél til að fyrirbyggja
að aðrir komist inn
Búnaður er metur hættu
og stjórnar viðbrögðum
við henni Safnar gögnum
og leggur til hvernig
bregðast eigi við ef hætta
skapast. Flugmaður sér
tillögurnar á tölvuskjá
Búnaður til að greina
hættu inni í vélinni
Myndavélar og
hljóðnemar til að greina
afbrigðilega hegðun
farþega
Evrópska verkefnið SAFEE (Security of Aircraft in the Future
European Environment) hefur þróað kerfi til að tryggja öryggi í flugi
Nýir skannar hafa verið teknir í notkun
til reynslu á flugvöllum í Bandaríkjunum
Heimildir: AS&E, TSA, SAGEM Defense Securite
Búnaður til að vernda
fjarskipti
Tryggir örugg fjarskipti milli
stjórnklefa og
flugumferðarstjóra
Búnaður til að afstýra
hugsanlegum árekstrum
Breytir stefnu vélar ef hún
fer af heimilaðri braut
Merki með tölvukubba
Tengir saman farþega og
farangur hans, tryggir að
hvort tveggja sé í vélinni
Manngreinimyndavélar
Sannreyna hvort sá sem
fer inn í vélina sé sá sami
og skráði sig inn
„Rafrænt nef"
Á að nema lykt af
hugsanlegum
sprengiefnum
Svæðin sem tvístra
geislum eða taka þá í
sig eru dregin fram
Plastsprengi-
efni og lyf
eða vímuefni
tvístra
geislunum
Byssur eða
vírar taka
röntgen-
geislana í sig
Lokaútlínur myndar
Tækið
finnur bæði
lífræn og
ólífræn efni
Hlutir
innan
klæða
Röntgen-geislar sem
endurkastast nást á
nemum á stórum fleti
Aðeins
lítið svæði
verður fyrir
geislum í
einu
Föt verða
ósýnileg
þar sem
röntgen-
geislarnir
fara í
gegnum þau
Röntgen-
geislar
Röntgen-
nemi
Þannig virka nýjustu skannarnir
Óhætt er að nota
tækið á barnshafandi
konur
Geislunin frá tækinu
er mjög lítil
Andófsmenn handteknir
Öryggissveitir í Íran láta til skarar skríða gegn stjórnarandstæðingum eftir að
minnst átta manns biðu bana í götumótmælum Vestræn ríki fordæma ofbeldið
ÖRYGGISSVEITIR í Íran handtóku á annan tug
andófsmanna í gær eftir að minnst átta manns
biðu bana í hörðum átökum milli lögreglumanna
og mótmælenda í Teheran og fleiri borgum.
Á meðal þeirra sem voru handteknir í gær voru
fjórir aðstoðarmenn Mohammads Khatamis, fyrr-
verandi forseta Írans, og stjórnarandstöðuleiðtog-
ans Mirs Hosseins Mousavis. Öryggissveitirnar
handtóku einnig andófsmanninn Ebrahim Yazdi,
sem var utanríkisráðherra Írans fyrstu mánuðina
eftir íslömsku byltinguna árið 1979, og blaða-
manninn Emadeddin Baghi sem hefur barist fyrir
mannréttindum í Íran.
Líklegt þykir að handtökurnar magni spennuna
og leiði til frekari mótmæla. Andstæðingar
Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, hafa
notað hvert tækifæri sem gefst til að efna til fjöl-
mennra götumótmæla frá því að hann var endur-
kjörinn í umdeildum kosningum í júní.
„Fyrirlitlegu ofbeldi“ mótmælt
Ríkisrekin sjónvarpsstöð í Íran hafði eftir emb-
ættismanni Þjóðaröryggisráðs Írans að átta
manns hefðu beðið bana í átökunum á sunnudag.
Áður hafði íranska ríkissjónvarpið sagt að minnst
fimmtán manns lægju í valnum í höfuðborginni
einni, þeirra á meðal tíu félagar í „andbylting-
arsinnaðri hreyfingu hryðjuverkamanna“.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Mehdi Karroubi
fordæmdi „þetta fyrirlitlega ofbeldi“ og sakaði
stjórnina um að hafa valdið blóðsúthellingum með
því að „gefa hópi villimanna lausan tauminn“.
Harðlínumenn í klerkastjórninni kröfðust hins
vegar þess að yfirvöld gripu til harðra aðgerða
gegn stjórnarandstöðunni.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk-
landi, Kanada og Þýskalandi mótmæltu ofbeld-
isverkum öryggissveitanna. Rússneska utanríkis-
ráðuneytið kvaðst hafa áhyggjur af atburðunum í
Íran síðustu daga og hvatti til þess að fundin yrði
málamiðlunarlausn til að afstýra enn meiri blóðs-
úthellingum. bogi@mbl.is
FÓLK leikur sér í snjó við baðkofa á bílkerru í
þorpinu Bobrovka í Síberíu. Eigandi skógar-
höggsfyrirtækis í þorpinu lét setja upp baðkofa
á bílkerruna til að gera fólki kleift fara í rúss-
neskt sána, eða banja, á meðan það er flutt á
milli staða.
Mörgum Rússum finnst gott að kæla sig í
snjónum á milli þess sem þeir liggja í gufu-
baðinu.
KÆLA SIG EFTIR GUFUBAÐIÐ
Reuters
RANNSÓKN
ástralska
sálfræði-
prófessorsins
Joe Forgas
bendir til þess
að það geti verið
gott fyrir menn
að vera í vondu
skapi þegar þeir
taka ákvarðanir.
Rannsóknin
bendir til þess að þeir sem eru í
vondu skapi ráði betur við erfiðar
aðstæður en geðgott fólk, þeir
hugsi skýrar, séu athugulli og ekki
eins auðblekktir.
Glaðværð ýtir hins vegar undir
sköpunargáfu, sveigjanleika og
samvinnuvilja manna, að því er
fram kemur í tímaritinu Austral-
ian Science.
Önnur rannsókn sálfræðipró-
fessorsins bendir til þess að
drungalegir rigningardagar bæti
minni fólks en menn hneigist til
þess að vera gleymnir á björtum
sólskinsdögum.
Er vonda
skapið gott?
Skarpur og skap-
vondur maður.
FYRIRTÆKI í Los Angeles býður
viðskiptavinum sínum upp á þá þjón-
ustu að leigja þeim lifandi jólatré
sem geymd eru í pottum og hægt er
að skila eftir jólin. Trén eru gróð-
ursett aftur með rafræn merki til að
viðskiptavinurinn geti fengið sama
tré aftur að ári liðnu. Eigandi fyr-
irtækisins segir þessa þjónustu
njóta mikilla vinsælda meðal fólks
sem hafi áhyggjur af skógareyðingu
og sé andvígt því að tré séu höggvin
en vilji samt ekki gervijólatré.
Leigja lifandi
jólatré
VERSLUNARMIÐSTÖÐ í kín-
versku borginni Shijiazhuang hefur
opnað bílageymslu þar sem kvenbíl-
stjórum er boðið upp á sérstök bíla-
stæði. Rýmið sem konurnar fá fyrir
bílana er breiðara og munar um það
bil metra á hvern bíl. Talsmaður
verslunarmiðstöðvarinnar segir að
þetta hafi verið ákveðið vegna þess
að konur séu með „öðruvísi fjar-
lægðarskyn en karlar“.
Konur fá
stærra stæði