Morgunblaðið - 29.12.2009, Qupperneq 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
✝ Júlía Svava Elías-dóttir fæddist í
Hólshúsum Gaul-
verjabæjarhreppi í
Árnessýslu 20. jan-
úar 1922. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Víðinesi 11. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar Svövu
voru Elías Árnason f.
31.12. 1884, d. 25.9.
1966, og Guðrún
Þórðardóttir, f. 29.8.
1885, d. 9.3. 1969.
Systkini Svövu sem
öll eru látin voru: Margrét, f.
1914, d. 2003, Þórður, f. 1915, d.
2003, Árni, f. 1917, d. 1995, Guð-
rún Júlía, f. 1918, d. 2005, Elín, f.
1920, d. 1992, Guðrún, f. 1923, d.
1990, Bjarni, f. 1926, d. 1927, Guð-
laug, f. 1928, d. 2000.
Svava giftist hinn 9. desember
1944 Indriða Jóni Gunnlaugssyni,
f. 16.1. 1915, d. 2.7. 1972. For-
eldrar hans voru Gunnlaugur
Torfason, f. 29.1. 1878, d. 25.12.
1937, og Þuríður Ólafsdóttir, f.
10.7. 1881, d. 23.9. 1930. Börn
Hlíf, f. 1977, og Elva Brá, f. 1983.
Með Petru Ingvadóttur eignaðist
Jens dótturina Ingu Birnu f. 1998.
5) Guðrún, f. 8.2. 1956. Maki Jón
Eyjólfsson, f. 16.3. 1959. Sonur
þeirra er Eyjólfur, f. 1996. Lang-
ömmubörn Svövu eru 30 talsins og
eitt langalangömmubarn. Sam-
býlismaður Svövu frá 1993 er Sig-
tryggur Þorsteinsson, f. 30.1.
1929.
Svava sleit barnsskónum í Fló-
anum en fluttist í Mosfellssveit ár-
ið 1943 og bjó fyrst á Laugabóli í
Mosfellsdal og svo á Æsustöðum
en síðan byggðu þau Indriði sér
hús í dalnum sem þau nefndu Víði-
gerði og fluttu þangað 1949. Þar
bjó Svava allt til ársins 2007, er
hún vegna veikinda flutti í hjúkr-
unarheimilið Víðines.
Svava var heimavinnandi hús-
móðir eins og tíðkaðist í þá daga
en fór að vinna úti er hún missti
mann sinn Indriða, þá aðeins
fimmtug að aldri, og starfaði hún
lengst á Reykjalundi. Hún var í
Kvenfélaginu í Mosfellssveit til
margra ára og var á seinni árum
mjög virk í félagsstarfi aldraðra.
Útför Svövu verður í Lágafells-
kirkju í dag, 29. desember, kl. 11
og jarðsett verður á Mosfelli í
Mosfellsdal.
Svövu og Indriða
eru: 1) Hrefna, f.
21.10. 1942. Maki
Ragnar Jónsson, f.
13.1. 1934. Börn
Hrefnu og Jóns
Björnssonar fyrri
manns hennar eru
Indriði, f. 1962,
Helga, f. 1963, og
Guðleif, f. 1965. 2)
Ásgeir, f. 27.6. 1945.
Maki Sigrún B.
Gunnarsdóttir, f. 1.8.
1944. Dóttir þeirra
er Svava Björk, f.
1980. Fósturbörn Ásgeirs eru
Hjörtur, f. 1963, Anna Silfa, f.
1968, og Gunnar Reynir, f. 1973.
3) Bjarni f. 2.11. 1948, d. 27.12.
1999. Maki Aðalheiður V. Stein-
grímsdóttir, f. 6.4. 1948, d. 18.2.
2006. Synir þeirra eru Stein-
grímur, f. 1967, Gunnlaugur Indr-
iði, f. 1970, og Eyþór Már, f. 1974.
4) Jens, f. 10.5. 1954. Sambýlis-
kona Sveinbjörg Hrólfsdóttir, f.
15.9. 1959. Fyrri kona Jens var
Guðlaug Snæfells og eru börn
þeirra Guðmundur, f. 1974, Áslaug
Nú er ég kveð þig elsku mamma
mín kemur fyrst upp í hugann
hversu ljúf, blíð og góð þú varst og
sérlega skapgóð en afar viðkvæm.
Þú varst sterk eins og klettur þar
til yfir lauk og ég veit að nú ertu
laus við allar þrautir og komin til
allra ástvina þinna sem eru farnir.
Þessi síðustu ár voru þér erfið að
geta ekki tjáð þig né talað og þú
varst orðin þreytt og hvíldin kær-
komin. Mamma er síðust systkina
sinna sem kveður. Bernskuár
hennar voru góð og það var alltaf
mannmargt í Hólshúsum og oft
glatt á hjalla. Mamma flutti í Mos-
fellsdalinn 1943 með pabba og
byggðu þau sér hús þar er þau
nefndu Víðigerði. Komu þau sér
upp smá hænsnabúi og voru seld
egg í Víðigerði til margra ára.
Mamma undi sér vel í fallega
bragganum sínum í Víðigerði og
bjó þar alls í 58 ár og man ég ekki
eftir öðru en að mamma væri alltaf
heima.
Mamma hafði yndi af blómum
og útbjó fallegan garð í kringum
húsið og naut þess að stússa við
það. Nú þegar hópurinn hennar
stækkaði og ömmubörnin komu
var samt alltaf nóg pláss í Víði-
gerði og alltaf fengu þau eitthvað í
búrinu hennar góða. Eyjólfi mín-
um fannst líka alltaf vera til ótelj-
andi kökur þar og góðgæti. Árið
1972 deyr pabbi og það var áfall
en hún hélt áfram og fór að vinna
úti. Þá kom sér vel að hafa eggja-
söluna. Hún var alltaf heilsuhraust
og oft gekk hún heim úr vinnunni
frá Reykjalundi, þá yfir Skamma-
dal. Henni var Víðigerði afar kært
og okkur öllum og það er ljúft að
hugsa til þess að nú sé það nafna
hennar Svava sem býr þar og
heldur hennar nafni á lofti í daln-
um.
En þótt mamma væri búin að
vera ein svo lengi þá fann hún
hamingjuna á ný er hún kynntist
honum Didda sínum, og áttu þau
góð ár saman og nutu þess. Hann
er mikill dýravinur og fékk sér
nokkrar kindur og eins voru þau
mikið í félagsstarfi og handavinnu,
og máluðu á postulín og eigum við
öll í fjölskyldunni fallega muni frá
þeim. Þau fóru líka saman í ferða-
lög, síðast var það ferð til Kan-
aríeyja. Eins hafði mamma ferðast
töluvert áður og komið til þó nokk-
uð margra landa. Eins er mér ljúft
að minnast þess er ég bjó á Flat-
eyri, þá kom mamma oft í heim-
sókn og naut þess m.a. að fara í
berjamó. Alltaf þótti henni gaman
að dansa og voru gömlu dansarnir
uppáhaldið. Og ekki má gleyma
því hversu gaman henni þótti að
punta sig og vera fín, og geymdi
hún suma kjólana sína og alltaf
var hún vel til höfð um hárið og í
gamla daga er tíðkaðist að túbera
hárið sat ég löngum stundum rétt
um fermingu og túberaði á henni
hárið og greiddi.
En mamma varð fyrir þeirri
sáru reynslu er Bjarni bróðir dó
skyndilega 1999 og konan hans
Heiða 2006. Þetta fannst henni
erfitt að sætta sig við að lifa son
sinn og tengdadóttur. En að fá að
lifa nærri því 88 ár er bara þó
nokkuð gott.
Að lokum vil ég þakka Didda
fyrir alla hans umhyggju og ástúð
við mömmu síðastliðin ár. Og
mamma mín elskuleg, kærar þakk-
ir fyrir öll árin sem við áttum sam-
an, þau voru yndisleg og ég veit að
ég á eftir að sakna þín sárt en
hvíldu í friði og Guð veri með þér.
Þín dóttir,
Guðrún.
Elsku amma mín.
Ég sakna þín nú þegar þú ert
horfin frá mér til Guðs.
Ég man svo vel hvað þú hlóst
innilega og skemmtilega, og ég
mun aldrei gleyma þér. Þú varst
sú sem ég leit alltaf upp til.
Ég elska þig amma og ég man
líka vel það sem þú sagðir svo oft
við mig:
„Eyjólfur minn, vertu nú góður
strákur.“
Takk fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði og Guð geymi þig.
Þinn ömmustrákur,
Eyjólfur.
Nú er elskuleg amma Svava fall-
in frá og það eru ófáar minning-
arnar sem fljúga um hugann þegar
ég sit hér í eldhúsinu í Víðigerði.
Amma Svava var einstaklega hlý
og góð kona. Hún var glaðlynd og
alltaf var stutt í glettinn hláturinn
og fallega brosið hennar. Hún var
afar vandvirk í því sem hún tók
sér fyrir hendur og handavinnu
sinnti hún öll sín ár og var alltaf
gott að fá mjúkan pakka á jólunum
frá ömmu. Hún var ávallt vel til-
höfð og klæddist aðallega kjólum
og pilsum. Henni þótti allt skart
afar fallegt og notaði það á hverj-
um degi. Henni þótti afar vænt um
fjölskylduna sína og faðmaði alla
og kyssti þegar hún hitti fólk og
kvaddi. Faðir minn, Ásgeir, var
lengi með kjúklinga í Víðigerði og
það voru tíðar ferðirnar upp í dal
að sinna þeim og alltaf var gott að
kíkja í búrið hjá ömmu og fá kex
eða kleinu. Amma kenndi mér að
steikja kleinur hér í Víðigerði og
það voru bestu kleinurnar sem til
voru sem amma bakaði. Hún tók
alltaf vel á móti gestum og átti
alltaf til eitthvað gott með kaffinu.
Mikið sport var það að fá að labba
út á veg með ömmu og sækja
Morgunblaðið í rútuskýlið. Þá setti
amma gaddana undir stígvélin ef
það var mikil hálka og svo leidd-
umst við saman þessa leið sem
virtist svo löng í þá daga. Amma
var lengi ekkja og bjó ein eftir að
börnin voru flogin úr hreiðrinu en
svo kynntist hún Didda sínum á
dansleik eitt árið. Ég man hvað
mér fannst þetta æðislegt að
amma mín ætti kærasta. Þau áttu
vel saman og þeim leið vel hérna í
Víðigerði og dunduðu sér við hitt
og þetta, aðallega þó prjónaskap
og að sinna um kindurnar sem
voru einstaklega fallegar og gæf-
ar, enda vel hugsað um þær.
Amma var heppin að hafa Didda
sér við hlið síðustu árin, hann
reyndist henni vel í alla staði. Eft-
ir að amma flutti á hjúkrunarheim-
ilið í Víðinesi fyrir rúmum tveimur
árum hrakaði henni og sjúkdóm-
urinn sigraði að lokum. Við Krissi
erum stolt af því að búa í bragg-
anum hennar ömmu hér í Víðigerði
og gerum okkar besta til að sinna
staðnum eins vel og við getum. Við
kveðjum ömmu Svövu með ást og
söknuði og munum ávallt geyma
minninguna um hana í hjörtum
okkar.
Ó, leyf mér þig að leiða
til landsins fjalla heiða
með sælu sumrin löng.
Þar angar blóma breiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég
þar aðeins við mig kann ég
þar batt mig tryggða band
því þar er allt sem ann ég,
það er mitt draumaland.
(Jón Trausti)
Nú er amma komin í drauma-
landið sitt þar sem vel er tekið á
móti henni. Elsku amma Svava,
við sjáumst seinna.
Svava Björk, Kristmundur
Anton og Bríet Björk.
Júlía Svava Elíasdóttir
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
sonur og afi,
GUÐMUNDUR HEIÐAR GUÐJÓNSSON
frá Bakkagerði,
Ystaseli 21,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 26. desember.
Halldóra Sigurðardóttir,
Heiðrún Ásta Guðmundsdóttir, Andrew James Scrimshaw,
Sigurjón Már Stefánsson, Ásta Sólveig Stefánsdóttir,
Guðjón Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁRNÍNA JENNÝ SIGURÐARDÓTTIR,
Kirkjuvegi 5,
Reykjanesbæ,
áður til heimilis Túngötu 11,
Sandgerði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði
á annan dag jóla, verður jarðsungin frá Safnaðarheimilinu Sandgerði
fimmtudaginn 31. desember, gamlársdag, kl. 12.00.
Rúnar Marvinsson,
Ingimar Sumarliðason, Jolanta Janaszak,
Sólborg Sumarliðadóttir, Gylfi Gunnarsson,
Rut Sumarliðadóttir,
Árnína Guðbjörg Sumarliðadóttir, Björn Halldórsson,
Sigrún Sumarliðadóttir, Sveinbjörn Sverrisson,
Margrét Sumarliðadóttir, Guðbrandur Einarsson,
Sigurður Óli Sumarliðason, Jóna Magnea Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar,
ÞÓRUNN SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést aðfaranótt sunnudagsins 27. desember á Hrafnistu í Reykjavík.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Júlíus K. Björnsson,
Sigurveig Björnsdóttir.
✝
Elskulegur maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORVALDUR STEINGRÍMSSON
fiðluleikari,
lést sunnudaginn 27. desember.
Jóhanna Cortes,
börn, barnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir mín,
SONJA SIGURÐARDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 17. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 7. janúar kl. 11.00.
Ólafur Valdimars.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÓN ÞÓRARINN STEFÁNSSON
bifvélavirki,
Dofraborgum 42,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtu-
daginn 24. desember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
7. janúar kl. 13.00.
Jónína V. Sigurðardóttir
börn og fjölskyldur.