Morgunblaðið - 29.12.2009, Síða 31
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Með kærri þökk fyrir allt, elsku
Hanna mín.
Gróa Halldórsdóttir.
Jæja Hanna, nú ertu farin frá okk-
ur, í raun alltof snemma, við áttum
eftir að fara í Karabíska hafið á átt-
ræðisafmælinu þínu, og hvert á ég nú
að fara þegar ég verð strand í
myndagátum um jólin, það var alltaf
tryggt að fá lausnarorð hjá þér. En
svona er maður eigingjarn, því það
var ljóst fyrir nokkru að þinn tími hér
hjá okkur var að enda kominn og ég
veit að nú ert þú á nýjum stað með
Sigga, Halla bróður þínum og fleir-
um sem þér eru kærir og eru farnir,
við hin verðum að bíta á jaxlinn og
halda áfram með allar góðu minning-
arnar sem tengjast þér og ykkur báð-
um tengdaforeldrum mínum. Ég er
þakklátur fyrir þær móttökur sem ég
fékk þegar Didda kynnti mig fyrir
ykkur árið 1973 og þá vináttu sem
hefur haldist æ síðan og allar góðu
stundirnar sem við áttum saman
hvort heldur heima yfir kaffibolla, við
að spila bridge eða á ferðalögum sem
voru þó nokkur. Mér er minnisstætt
þegar við heimsóttum Skóga í Mos-
dal við Arnarfjörð þar sem þú varst
fædd og áttir heima áður en fjöl-
skyldan flutti til Siglufjarðar, við
þurftum að ganga töluverðan spotta
áður en við komum að bænum sem þá
var fallinn að mestu, þú hljópst um
eins og unglingur og sýndir okkur
hvernig allt hafði verið. Við komum
svo aftur löngu seinna og ég man að
þú hvesstir þig yfir því að það var bú-
ið að jafna út tóftirnar svo það voru
engin merki um mannabústað og eins
hitt að ekki hefði verið settur steinn
eða merki í bæjarstæðið sem sýndi
hvaða býli hefði verið þarna og ég var
alveg sammála þér. Ég minnist rim-
manna sem við tókum um pólitík og
þjóðmál, þær voru stundum háværar
en enduðu alltaf í sátt og það var
kannski af því að við vorum eiginlega
sammála þegar á allt er litið. Svona
minningar og margar fleiri sem
hrannast upp á lífsleiðinni gera það
að verkum að ég er meira en sáttur
að leiðarlokum. Ég tel það forréttindi
að hafa kynnst ykkur sem fóruð í
gegnum lífið með jafn lítil veraldleg
auðæfi á milli handanna og rákuð svo
stórt heimili eins og ykkar, af jafn-
miklu æðruleysi og þið Siggi gerðuð
því það var örugglega oft erfitt að
koma 11 börnum til manns. Þið lifið í
minningunni, hafið þökk fyrir sam-
ferðina.
Ægir Björgvinsson.
Fleiri minningargreinar um Krist-
rúnu Jóhönnu Ásgeirsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300.
Bílskúr
Flash 2 Pass fjarstýringar
Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara.
Virkar með ljósabúnaði bílsins eða
mótorhjólsins. Kynntu þér málið.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Verslun
Titanium trúlofunar- og giftingar-
hringar - Áralöng reynsla á titanium
tryggir gott verð og gæði. Eigum
einnig pör úr gulli, hvítagulli, wolf-
ram, silfri o.fl. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Bílaþjónusta
Varahlutir
Vinnuvélar
MultiOne fylgihlutir
Eigum á lager mikið úrval fylgihluta
fyrir MultiOne fjölnotavélarnar.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
MultiOne
Eigum á lager nýjar MultiOne
fjölnotavélar í ýmsum stærðum.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Óska eftir
Kaupi frímerki, umslög, kort og
seðla - Kaupi frímerki, umslög,
póstkort með frímerkjum á og seðla,
síðan fyrir 1960. Upplýsingar í
síma: 691 7794, Sverrir.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
✝ Vilhjálmur Krist-inn Sigurðsson
fæddist í Kirkjuvogi í
Hafnahr., Gull. 2.
október 1933. Hann
lést á heimili sínu,
Lindargötu 57, hinn
16. desember sl. For-
eldrar Vilhjálms voru
Sigurður Helgi Ólafs-
son útvegsbóndi og
síðar kaupmaður,
fæddur í Kirkjuvogi,
Hafnarhr., Gull. 21.
október 1892, d. 29.
júní 1975, og Jónína
Guðmundsdóttir, húsfreyja, fædd í
Nýjabæ, Krísuvík í Grindavíkurhr.,
Gull. 20. júní 1896, d. 29. október
1985. Vilhjálmur var yngstur fimm
systkina en þau voru: Kristín, f. 12.
mars 1923, Ólafur Ketill, f. 15. sept-
ember 1926, Guðmundur, f. 28. maí
1929, og Steinunn, f. 7. ágúst 1931.
Vilhjálmur starfaði lengi framan
af sem skrifstofumaður á vellinum
en síðari helming starfsævinnar var
hann póstvarðstjóri
hjá Pósti og síma í að-
alútibúinu í Austur-
stræti. Hann var einn-
ig á Fossunum í
millilandasiglingum
um tíma. Vilhjálmur
flutti með foreldrum
sínum til Reykjavíkur
um fimm ára aldur og
bjó hjá þeim alla
þeirra tíð. Sigurður
faðir Vilhjálms var
kaupmaður og bók-
sali í miðbæ Reykja-
víkur. Eftir andlát
Sigurðar og Jónínu var Vilhjálmur
áfram búsettur í húsi þeirra á
Njálsgötu 48A, eða þangað til hann
flutti í þjónustuíbúð aldraðra við
Lindargötu fyrir tæpum tveimur
árum. Hann var alla tíð ókvæntur
og barnlaus.
Útför Vilhjálms fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn
29. desember, og hefst athöfnin kl.
13.
Vilhjálmur, eða Villi frændi eins
og hann var oftast nefndur, er nú
farinn frá okkur hinum af yngri
kynslóðinni. Foreldrar hans og
systkini eru látin fyrir alllöngu og
oft varð okkur hugsað til þess að
það hlyti að vera einmanalegt að
búa bæði einn og hafa engan af
sínum allra nánustu hjá sér leng-
ur. Eða eins og ein lítil frænka
hans sagði eitt sinn: Hann Villi
frændi er svo skemmtilegur og
góður við börn að það væri gaman
ef hann ætti einhver sjálfur. Það
var svo sannarlega rétt, hann var
afskaplega barngóður og einnig
var hann þekktur fyrir að kaupa
þeim gjafir sem gleymdust seint.
Frænkur fengu kannski stórt
klapp á hausinn og dúkku í sextán
ára afmælisgjöf því Villa þóttu
frænkur sínar alltaf svo litlar og
indælar, og fyrir honum voru þær
aldrei meira en smástelpur. En
það var kannski ekki skrítið að
fyrir honum væru þetta litlar
stærðir, því hann var sjálfur áber-
andi stór maður, nánast tveir
metrar á hæð og mikill um sig.
Það var alltaf dálítið sérstakt að
þrátt fyrir að vera sá stóri maður
sem Villi var hreifst hann þó yf-
irleitt helst af því sem var fínlegt
eða smátt og hafði til að mynda
mesta unun af bæði listdansi á
skautum og ballett. Frjálsar
íþróttir voru honum líka hugleikn-
ar og það veitti honum ómælda
gleði að komast á ólympíuleikana í
Rússlandi hér áður. Villi hafði sér-
staklega mikinn áhuga á Rússlandi
og Póllandi og ferðaðist þangað
margsinnis auk þess sem hann átti
alltaf pennavini þaðan sem hann
skrifaðist á við.
Eitt sinn kviknaði ástin á milli
Villa og einnar pennavinkonunnar
og þau mæltu sér mót á höfn er-
lendis nokkrum mánuðum síðar.
Þegar skipið sigldi að bryggju beið
hún þar með foreldrum sínum og
bar augljóslega barn undir belti.
Þar sem þetta var þeirra fyrsti
fundur ákvað Villi að sigla aftur
heim, enda nokkuð skelkaður yfir
þessum óvæntu málalyktum.
Gummi bróðir hans gat ekki stillt
sig um að stríða honum í eldhúsinu
á Njálsgötunni við heimkomuna,
og sagði heimilisfólkinu alla sólar-
söguna, Villa til mikils ama. Þá
sagði Sigurður faðir þeirra; eru
þau nú ekki orðin heldur kraft-
mikil bréfin frá þér Villi minn?
Þrátt fyrir að það væri Villa
ævinlega eiginlegra að tjá sig í rit-
uðu máli var þó eitt sem hann
þreyttist aldrei á að tala um, en
það voru Hafnirnar suður með sjó.
Ásamt því að hafa eytt bernskuár-
unum þar átti Villi afa sem var bú-
settur í Höfnum, Ólaf Ketilsson,
og var einkar hlýtt á milli þeirra.
Villa fannst alla tíð mikilvægt að
fara suður á nesin og skoða
bernskuslóðirnar á meðan hann
rifjaði upp góðar minningar og oft-
ar en ekki slóst Lilli frændi hans í
för og keyrði hringinn með Villa.
Þá var alltaf komið við hjá Kal-
manstjörn og kirkjunni, og stund-
um stoppað í kaffi hjá Katli föð-
urbróður hans. Nú er Villi frændi
horfinn á vit forfeðra sinna og
þeirra sem voru honum kærust, og
við hin af yngri kynslóðunum mun-
um ávallt minnast hans sem gamla
góða Villa.
F.h. afkomenda Stínu stórusyst-
ur,
Herdís
Sigurðardóttir.
Vilhjálmur Kristinn
Sigurðsson
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SVANHILDAR HERVARSDÓTTUR,
Sólheimum 23,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 8. desember.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi
fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Auðunn Snæbjörnsson,
Ása Ásgeirsdóttir, Guðvarður Halldórsson,
Kristín Ásgeirsdóttir, Viðar Örn Þórisson,
Aðalsteinn Auðunsson,
Engilbjört Auðunsdóttir, Ólafur Teitur Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samhug
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
FRIÐJÓNS ÞÓRÐARSONAR
fyrrv. ráðherra og sýslumanns,
Dalabyggð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítala
Landakoti fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Guðlaug Guðmundsdóttir,
Sigurður Rúnar Friðjónsson, Guðborg Tryggvadóttir,
Þórður Friðjónsson, Ragnheiður D. Agnarsdóttir,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Margrét L. Steingrímsdóttir,
Lýður Árni Friðjónsson, Renate Mikukste,
Steinunn Kristín Friðjónsdóttir, Árni M. Mathiesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
ÓLAFÍU PÁLÍNU MAGNÚSDÓTTUR
frá Gilsfjarðarbrekku,
síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Indriði E. Baldvinsson, Karólína Ingólfsdóttir,
Jóna G. Baldvinsdóttir, Gunnar Helgi Guðmundsson,
Ingibjörg Magnea Baldvinsdóttir, Jón Kjartansson,
Elinborg A. Baldvinsdóttir, Helgi Stefánsson,
Margrét H. Brynjólfsdóttir,
Hugrún H. Einarsdóttir, Friðrik Ragnarsson,
Katrín Björk Baldvinsdóttir, Sæmundur Ó. Ólason
og fjölskyldur.