Morgunblaðið - 29.12.2009, Side 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR, ÉG HEYRÐI AÐ NEFIÐ OG
EYRUN Á MANNI HALDA ÁFRAM AÐ
VAXA ÞEGAR MAÐUR ELDIST
SLEPPUM ÞVÍ
AÐ ELDAST
SAMÞYKKT
EFTIR
NOKKRAR
VIKUR FERÐU
Í LEIKSKÓLA
LEIKSKÓLA?
JÁ,
ÞAÐ FARA
ALLIR Í
SKÓLA
SKÓLA?
ÞANNIG
MENNTAR
FÓLK
SIG
MENNTAR? KENNARI?
AUMINGJA
KENNARINN
ÞINN
AF HVERJU VILDIR ÞÚ AÐ
ÉG SETTI „X“ Á VEGGINN?
SVO VIÐ MUNUM EFTIR ÞVÍ
AÐ SLEPPA ÞESSU HÚSI NÆST
ÞEGAR VIÐ KOMUM HINGAÐ
EN ÉG FANN
HANA! SÁ
Á FUND SEM
FINNUR!
EF ÞÚ HEFÐIR TÝNT
ÞESSARI TÖLVU MYNDIR
ÞÚ EKKI VILJA AÐ
HENNI YRÐI SKILAÐ?
EN EF ÉG ÆTTI HANA ÞÁ
HEFÐI ÉG EKKI TÝNT HENNI!
ÆTLI ÞAÐ
EKKI...
SKILAÐU
HENNI
NÚNA!
ÞÚ VERÐUR AÐ SKILA
ÞESSARI TÖLVU TIL
SUNDLAUGARVARÐARINS
JAME-
SON VEIT
AÐ PETER
PARKER
ER MEÐ
FLENSU
EF HANN SÉR AÐ
KÓNGULÓARMAÐURINN
ER LÍKA VEIKUR...
GÆTI HANN ÁTTAÐ
SIG Á ÞESSU
ER ALLT Í
LAGI MEÐ ÞIG?
MÉR LÍÐUR VEL... MÉR DATT
BARA SVOLÍTIÐ FYNDIÐ Í HUG
HLÆÐU OG
HEIMURINN
HLÆR MEÐ ÞÉR...
HRJÓTTU,
OG ÞÚ SEFUR
EINN
Tapað/fundið
IPOD fannst á bíla-
stæðinu við N1 Stað-
arskála í Hrútafirði í
desember. Upplýs-
ingar í síma 691-0612
eða 848-9968.
Hver er Ágúst?
Í lok jólatarnarinnar,
á sjálfri Þorláks-
messu, kom Ágúst
færandi hendi til okk-
ar starfsfólksins í
bókaversluninni Ey-
mundsson við Skóla-
vörðustíg, en veglegan
konfektkassa færði
hann okkur að gjöf. Um leið og við
þökkum þann vinarvott sem okkur
er sýndur þá viljum við bjóða
Ágúst velkominn á Skólavörðustíg-
inn sem fyrst aftur, til að þiggja
þakkir okkar starfsfólksins fyrir
sýnda vináttu í verki, en okkur
langar mikið til að hitta þann sem
er okkur svo hlýr og góður.
Með kærri kveðju,
Starfsfólk Eymundsson,
Skólavörðustíg.
Stolið hjól
HJÓLI mínu var stol-
ið fyrir utan heimili
vinar míns, Álftamýri
6, milli laugardags og
miðvikudags. Hjólið
er svart, rautt og
hvítt Scott-hjól. Það
eru ekki eins gjarðir
á dekkjunum og
fremra dekkið er
meira notað. Það er smáryðguð
rispa á stýrinu og smábrot í gír-
skiptingunni vinstra megin á stýr-
inu.
Ef einhver kemur auga á hjólið
er hann vinsamlegast beðinn um
að hafa samband í síma 568-2384.
Árni Einar Marselíusarson.
Ást er…
… að klippa ekkert út úr
blaðinu fyrr en hann er
búinn að lesa það.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin frá kl. 9-
16.30, vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl.
10.50, postulínsmálun kl. 13, lestrarhópur
kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handavinna
og smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl.
9, botsía 9.45.
Dalbraut 18-20 | Framsögn fellur niður.
Vinnustofa opin kl. 9-12, félagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa opin frá
kl. 8-16, myndbandssýning kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl. 10.50,
hádegisverður og heitt á könnunni. Kynn-
ing á starfsemi í Gjábakka á vormisseri
verður þriðjudaginn 5. jan. kl. 14.
Hæðargarður 31 | Gjafabréf í fé-
lagsstarfið er góð nýársgjöf. Ekkert síð-
degiskaffi milli jóla og nýárs, s. 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi og
vísnaklúbbur kl. 9.15, leikfimi kl. 11, hand-
verksstofa – ýmis verkefni kl. 11, opið hús
– brids/vist kl. 13, veitingar.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun kl. 9-12,
enska kl. 10.15, handavinna kl. 9.15-16,
matur, spurt og spjallað, leshópur, búta-
saumur og spilað kl. 13, veitingar. Óskar
Pétursson syngur kl. 14.30 og áritar nýút-
kominn geisladisk. Veitingar.
Magnús frá Sveinsstöðum varað skreyta jólatréð að kvöldi
Þorláksmessu og eitthvað fram á
nótt. Að morgni aðfangadags
bauðst hann til þess að elda hafra-
graut, slíkt væri góð undirstaða
fyrir komandi veisluát. „Ég er nú
enginn snillingur í eldamennsku,
og síðast þegar ég gerði grautinn
mislukkaðist hann vegna þess ég
tók víst hjartarsalt í stað venjulegs
salts, og ef einhver veit það ekki,
þá er það mjög slæmt.“ Það var
því fylgst með grautargerðinni á
aðfangadag:
Ég ætlast til að allir viti
upp er komið jólaskraut
en undir ströngu eftirliti
ég eldaði fínan hafragraut.
Björn Ingólfsson yrkir á jólum:
Í svörtum geimi glóir stjarna
í gylltum kjól,
mús í holu hefur fundið
hlýju og skjól,
una menn í makindum
í mjúkum stól
meðan fugl á furugrein
á freðið ból.
Með ýmsu móti
öllum skömmtuð
eru jól.
Davíð Hjálmar Haraldsson á
náðug jól:
Næðið er algjört hér norður við haf,
njótum við bóka og sitjum að tafli,
húsið er næstum því komið á kaf
og kerla mín blessunin föst úti í
skafli.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af jólum, graut og næði
Bridsfélag Siglufjarðar
Mánudaginn 30. nóvember var
spiluð síðasta umferð af fjórum í
Siglufjarðarmótinu í tvímenningi.
Þeir bræður Anton og Bogi voru enn
á sömu siglingu og urðu efstir þetta
fjórða og síðasta kvöld og höfðu þar
með unnið öll fjögur kvöldin. Það
gefur því auga leið að þeir hafa unnið
mótið með nokkrum yfirburðum, en
lokaúrslit mótsins urðu þessi:
Siglufjarðarmeistarar í tvímenn-
ingi 2009 Anton Sigurbjörnsson og
Bogi Sigurbjörnsson 784
Næstu pör:
Ólafur Jónsson – Guðlaug Márusdóttir 731
Þorsteinn Jóhannss. – Reynir Karlsson 700
Birgir Björnss. – Þorsteinn Jóhanness. 681
Næstu tvö mánudagskvöld 7. og
14. desember var spiluð blönduð
hraðsveitakeppni, þar sem efsta par
í tvímenningnum myndaði sveit með
neðsta pari, par nr. 2 með næst-
neðsta pari o.s.frv.
Lokaúrslit urðu:
Sveit Birgis Björnssonar 804
Með Birgi spiluðu Þorsteinn Jó-
hannesson, Sigurður Hafliðason og
Björn Ólafssom
Sveit Ólafar Ingimundard. 769
Ólöf – Albert, Anton – Bogi.
Sveit Jóhönnu Þorleifsd. 762
Jóhanna – Sigríður, Ólafur – Guð-
laug.
Nú að loknum fyrri hluta spila-
vetrar er staða efstu spilara í brons-
stigabaráttunni þessi:
Anton Sigurbjörnsson 160 stig
Bogi Sigurbjörnsson 160 stig
Björn Ólafsson 107 stig
Sigurður Hafliðason 89 stig
Þorsteinn Jóhannsson 82 stig
Ólafur Jónsson 78 stig
Þar sem þetta er síðasti fréttapist-
ill ársins vill Bridsfélag Siglufjarðar
senda öllum bridsspilurum og öðrum
landsmönnum bestu óskir um gleði-
lega jólahátíð og gæfuríkt og
skemmtilegt komandi spilaár.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is