Ísfirðingur - 15.12.1960, Page 19
ISFIRÐINGUR
19
lCjC^cemkíamoau^ iiamicímal^éla^amia í VedLaíbakjcíclœmi
óskar öllum íbúum kjördæmisins
gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.
Gömul vísa
um ókosti jarða í Snæfjalla-
hreppi.
Snæfjallatúnið merkja má
mergð þúfna leið þó sé.
Flói Sandeyrar firðum hjá
fargar sauðpeninge.
Skarðstún á vetrum skaða kann
skelfileg snjóaflóð.
Æðeyjarsundið einatt vann
óhagnað gera þjóð.
Landareign Mýrar lítil er
last fyrir beit hann Dalur ber.
Vatnsból í Bæjum, vont þó sé
vetnartímanum á.
Leið til kirkju frá Lónseyri
löng jafnan kallast má.
Sitt er að jörðu sérhverri
samt öllum búið á.
Fyrir 300 árum
1660: Kom Henrik Jensen, dansk-
ur, með kongsbréf upp á
kaupskaparhöndlun í Patreksfirði,
Bíldudal, Skutulsfirði og Dýrafirði,
hvar hann 2 skip fragtaði, og
brotnaði hans stærra skip í fram-
siglingu við Jótlandsskaga og
komust ei af utan 2 menn, hvaraf
hann fékk mikinn skaða. Var þá
góð kauphöndlan hér á höfnum.
Andaðist séra Gísli Einarsson á
Stað á Reykjanesi, en séra Gunn-
laugur Snorrason hans dótturmág-
ur, fékk þann stað aftur.
Féll Torfi Erlendsson frá öllum
sinum lénum, kannske fyrir fá-
heyrð orð, fékk aftur sýslu og lén,
með allri afgipt, með kongsbréfi
ári síðar, og svaraði enginn sekt-
um sem á hann vom dæmdar.
Giptist séra Helgi Grímsson Guð-
ríði Stefánsdóttur, séra Þorkell
Amgrímsson í Görðum Margréti
Þorsteinsdóttur, og Þorleifur frá
Melum dóttur Runólfs Sigurðsson-
iar.
Andaðist Gísli Eggertsson frá
Skarði á Skarðsströnd. Item Guð-
rún Jónsdóttir á Eyri við Seyðis-
fjörð, kvinna Guðmundar Ás-
mundssonar.
1661: Varð Eiríkur Sigvaldason
iögréttumaður bráðkvaddur
í lögréttu á alþingi.
Deyðu: Halldóra Jónsdóttir,
móðir Margrétar kvinnu biskups
Mag. Brynjólfs, ítem Elín Sigurð-
aróttir að Helgafelli og Guðrún
Sæmundsdóttir að Borg í Borgar-
firði.
Gekk fátæk stúlka í Súganda-
firði til Keflavíkur og fannst síð-
an sama dag í fjörunum milli
nefndra bæja, nær dauð; voru
hennar föt brunnin upp að mitti,
hempa og pils með götum, en
likaminn óskaddaður.
(Eyrarannáll).
★
Tilkynning
Það tilkynnist hérmeð að húsgagnverzlun mín, sem hefir heit-
ið Valbjörk, verður framvegis rekin undir nafninu Húsgagna-
verzlun Isafjarðar.
ísafirði, 8. desember 1960.
Aðalbjörn Tryggvason.