Ísfirðingur - 15.12.1960, Síða 21
ISFIRÐINGUR
21
Kímnisögur
Kennslukonan: Geturðu sagt
mér hvað átt er við með því að
segja að Karl tólfti hafi verið ein-
valdur?
Telpan: Hann var ógiftur.
Skoti nokkur þjáðist af tann-
verk og fór til tannlæknis til að
láta draga úr sér. Eftir að tann-
læknirinn hafði athugað tennur
Skotans, skýrði hann honum frá
að margar þeirra væru svo
skemmdar að þær þyrfti að taka,
og myndi það kosta 18 krónur með
deyfingu en 12 krónur án hennar.
Eftir að Skotinn hafði hugsað
sig um stundarkom ákvað hann að
láta taka tennurnar án deyfingar.
Læknirinn byrjaði nú á verki
sínu, en er hann hafði tekið 4
tennur leið yfir sjúklinginn. Þegar
hann vaknaði úr yfirliðinu spurði
hann strax: Var þetta deyfing?
— Nei. — Jæja, þá skulum við
halda áfram.
Tveir vinir hittust eftir langan
aðskilnað. Eftir að þeir hafa skipzt
á algengum kveðjuorðum, segir
annar þeirra:
— Ég heyri sagt að það sé sér-
lega vingott milli þín og dóttur
læknisins, þar sem þú átt heima?
— Hvaða bölvuð vitleysa, við
erum gift fyrir löngu.
í vesturvíkino
ævisaga JÓNS ODDSSONAK skipstjóra,
Skráð af GUÐM. G. IIAGALÍN.
Þetta er ein fjölbreyttasta og sérstæðasta ævisaga, sem Haga-
lín hefur skráð. 19 ára gamall fór Jón Oddsson á enskan togara,
félaus og mállaus, en ekki leið á löngu áður en hann var orðinn
frækin aflakló og farsæll skipstjóri. Snemma gerðist Jón útgerð-
armaður og foringi um nýjung í smíði skipa. Hann segir látlaust,
en skemmtilega frá hrikalegum vetrarstormum og hafróti við ís-
landsstrendur og í Hvítahafinu og mörgum mun forvitni á að
lesa um frásögn hans af stórbúskap hans á eynni Mön en þar bjó
hann stórbúi um 12 ára skeið. Þá mun mönnum ekki síður for-
vitni á að lesa um fangavist hans, en hann var stríðsfangi Stóra-
Bretlands í 3 ár og rennir menn þar grun í hver öfl standa á bak
við brezka landhelgisbrjóta við íslandsstrendur.
1 VESTURVÍKING er skemmtileg bók og mikillar gerðar og
mun flestum reynast ærið eftirminnileg.
SKUGGSJÁ.
Laus staða
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjómar Isafjarðar er sameinað
starf byggingai’fulltrúa og vatnsveitustjóra kaupstaðarins hér
með auglýst til umsóknar.
Kunnátta og reynsla í húsasmíðum nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til 31. desember n. k.
Nánari upplýsingar fást hjá undirrituðum.
ísafirði, 29. nóvember 1960.
BÆJARSTJÖRI.
Orðsending
öndvegisumboðið í Bolungavík hefur fyrirliggjandi allskonar
gerðir húsgagna. Húsgögnin eru til sýnis að Aðalstræti 18 og
Hólastíg 2, Bolungavík.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Símar 6 og 66.
Bernódus Halldórsson.
ffleðala-
Fóður-
LYSI
Meðalalýsi, bæði þorskalýsi og
ufsalýsi.
Lúðulýsi.
Fóðurlýsi.
Sendum gegn póstkröfu til kaup-
enda úti á landi. Fyrirspurnum
svanað í síma 15212. — Afgreiðsla
lýsisins er á Grandavegi 42.
LÝSI H.F.
Grandaveg 42 - P. O. Box 625
Reykjavík.
ÍSFIRÐINGUR
Útgefandi:
Framsóknarfélag Isfirðinga.
Ábyrgðarmaður:
Jón Á. Jóhannsson
Af greiðslumaður:
Guðmundur Sveinsson
Engjaveg 24 — Sími 332
Tilkpning frá Tryggingastofnun ríkisins
til samlagsmanna sjúkrasamlaga Keflavíkur, Njarðvík-
ur, Hafnarfjarðar, Akianess, ísafjarðar, Siglufjarðar,
Akureyrar, Vestmannaeyja og Selfoss.
Frá 16. október gengu í gildi nýir samningar við lækna, og hækkuðu þá greiðslur sam-
lagsmanna fyrir nætur- og helgidagavitjanir. Samlagsmönnum sjúkrasamlaga Hafnarfjarð-
ar, Akraness, Isafjarðar, Sigluf jarðar, Akureyrar, Vestmannaeyja og Selfoss, ber að greiða
að sínum hluta kr. 50,00 fyrir hverja slíka vitjun. Samlagsmönnum sjúkrasamlaga Kefla-
víkur og Njarðvíkur ber að greiða að fullu með kr. 110,00 fyrir hverja vitjun (fyrir vitjanir
í Innri-Njarðvík greiðist þó kr. 130,00), en af þeirri upphæð endurgreiða samlögin kr.
50,00 gegn framvísun kvittaðs reiknings fyrir fullri greiðslu.
Athygli er vakin á, að næturvakt telst frá kl. 18 að kvöldi til kl. 8 að morgni, laugar-
daga sem aðra daga.
Tryggingastofnun ríkisins.