SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 2
2 28. mars 2010 Augnablikið U pplifunin er alltaf sú sama af eldgosum – þetta er svo yfirþyrmandi,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari, sem fór þrisvar að eldgosinu í vikunni sem leið, fyrst á snjóbíl, svo á flugvél og loks á þyrlu. „Menn segja að þetta sé lítið eldgos, en það er stórt. Maður finnur til í hjartanu við að koma þarna og sjá hamfarirnar, heyra drunurnar – það er ekk- ert stórkostlegra.“ Þó að Ragnar sé kominn til byggða er ljóst að honum er enn mikið niðri fyrir. „Það verður allt svo smátt í samanburðinum. Maður gleymir öllum áhyggjum, allt annað verður hégómi þegar náttúruöflin eru í svona ham. Af því að það skaðar engan. Það horfði öðruvísi við ef eld- gosið hefði valdið manntjóni eða skemmt eignir fólks.“ Og svo eru gangandi alfræðibækur um allt. „Þarna voru vísindamenn á vettvangi, eins og Har- aldur Sigurðsson og Ármann Höskuldsson,“ segir Ragnar. „Þegar maður hlustar á þá tala um gosið, þá skilur maður það óskiljanlega.“ Aldrei verður það ljósara en á slíkum stundum að sýna þarf náttúrunni virðingu. „Ég og Arnar Jóns- son í flugklúbbnum Þyt fórum að gosinu á tveimur flugvélum, einnig Stefán Davíð Helgason, flugstjóri hjá Flugleiðum, og Friðþjófur Helgason kvik- myndatökumaður,“ segir hann. „Maður verður að gæta sín þegar flogið er yfir eldgos. Það var hvasst og mikil ókyrrð. Við lentum í niðurstreymi alveg við eldstöðvarnar og lærðum strax inn á hvar mátti ekki fara. Maður flýgur bara einu sinni ranga leið og sleppi maður lifandi frá því, þá passar maður sig eftirleiðis. Þannig að þeir sem fljúga þarna þurfa að gæta sín verulega ef þeir hafa ekki reynslu af að fljúga yfir eldgosi.“ Ragnar segir að hraunfossinn sem myndaðist hafi verið tilkomumikill. „Það er eins og rauður ormur skríði niður hlíð. Ekki er síðra að horfa nið- ur í gljúfrið, þar sem ægir saman reyk og eldi. Mað- ur býst hálft í hvoru við að sjá kölska sjálfan baða sig í kvikunni.“ Hitinn er mikill, að sögn Ragnars, en þeir sem fylgdust með gættu sín á því að vera vindmegin við gosið. Og það þurfti að gæta að fleiru. „Hálftíma eftir að við stóðum á bjargbrúninni og horfðum of- an í gilið heyrðum við miklar gufusprengingar. Þá þeyttust grjóthnullungar á stærð við fótbolta upp á brúnina. Þeir hefðu farið í gegnum mann.“ pebl@mbl.is Morgunblaðið/RAX Grjóthnullungar á stærð við fótbolta Náttúran sýnir krafta sína á Fimmvörðuhálsi. 4-8 Vikuspeglar Óumflýjanleg heimsókn á einstakan stað, heilbrigðisfrumvarp Bar- acks Obama og Lady Gaga leggur poppheiminn að fótum sér. 10 Býr á „langagangi“ Dagur í lífi fanga á Litla-Hrauni. 30 Bítur kreppan í Evrópu? Íslendingar ganga víðar í gegnum kreppu en heima fyrir. Sunnudags- mogginn sló á þráðinn til Íslendinga á Spáni og Írlandi. 33 Hugvekja biskups Karl Sigurbjörnsson á erindi við lesendur Sunnudagsmoggans frá og með deginum í dag og næstu helgar. 34 Hvað er líkt með froski og brandara? Háðfuglarnir Gísli Rúnar Jónsson og Laddi spjalla um Heilsubælið í Gervahverfi og grín fyrr og nú. 42 Kvikmyndasíðan Kvikmyndahús landsins breytast í óperu- og leikhús. Lesbók 48 Tungutak Ef Snorri Sturluson hefði ekki verið drepinn og fleiri Íslendingasögur skrifaðar, værum við þá ekki í betri málum? 48 Örlagasaga Helgu og Ursulu Bakgrunnur Hlustarans, nýrrar skáldsögu Ingibjargar Hjartardóttur, er örlög þýsks landbúnaðarverkafólks sem flutt var hingað til lands. 52 Prinsinn eilífi Ný útgáfa af hinni dáðu og marglofuðu bók Litla prinsinum eftir An- toine de Saint-Exupéry komin út í íslenskri þýðingu. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. 36-39 40-41 27. mars - 1. apríl Blúshátíð stendur yfir í Reykjavík. Stærstu númerin á hátíðinni eru Su- per Chikan and the Fighting Cocks sem koma frá Mississippi, blúsdívan Deitra Farr og stórstjarnan Billy Branch frá Chicago. Blúsklúbbur hátíð- arinnar er Café Rósenberg en þrennir stórtónleikar verða haldnir á Hilton Reykjavík Nordica og fjórar dívur koma til með að koma fram í Fríkirkjunni á pálmasunnudag. Hátíðin verður sett í Ráðhúsi Reykjavíkur en allar upp- lýsingar má finna á www.blues.is. Blúshátíð í Reykjavík 2010 Við mælum með … 28. mars Íslenski sirkushópurinn Sirkus Sól- ey sýnir listir sínar í Salnum í Kópa- vogi kl. 20. Sirkusinn ætlar sér að leika alls kyns skemmtilegar kúnstir og sýna spennandi áhættu- atriði. 28. mars til 11. apríl Þessa daga verður haldin Kirkju- listahátíð 2010 í Hallgrímskirkju. Meðal stórviðburða er sálma- spuninn Úr fjötrum til frelsis 29. mars kl. 20, flutningur Schola Can- torum og Caput-hópsins á Hall- grímspassíu föstudag- inn langa kl. 17 og Spuni í myrkri, gjörningur Ólafar Arnalds og fleiri hljóðfæraleik- ara, 3. apríl kl. 21.15. ferskt & gott 40%afsláttur Grísalundir , erlendar1559k r. kg verð áður 2 598
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.