SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 8
8 28. mars 2010 Stefani Joanne Angelina Germanotta, öðru nafni Lady Gaga, heldur upp á 24 ára afmæli sitt í dag, sunnudag. Hún er fædd og uppalin í New York en rekur ættir sínar til Ítalíu, Frakklands, Þýskalands og Englands. Tónlistin er henni í blóð borin og sett- ist hún fyrst við slaghörpuna aðeins fjögurra ára. Ellefu ára samdi hún sína fyrstu sónötu. Sautján ára ritaðist Gaga inn í Tisch-listaskólann í New York, þar sem hún lagði stund á píanóleik og tónsmíðar, auk þess að sökkva sér niður í listasöguna, trúar- brögð og stjórnmál. Gaga hætti í námi til að sinna tónlistarferli sínum. Hermt er að hún hefði hæglega getað lagt fyrir sig sígilda tónlist en ekki hugnast það fyrir þær sak- ir að markhópurinn er ekki nægilega stór. Hæfni Gaga til lagasmíða skilur hana frá flestum öðrum poppdívum samtímans. Gaga, sem er tvíkynhneigð, er mikil baráttukona fyrir réttindum samkynhneigðra og nýtur sjálf gríð- arlegrar hylli í þeim kreðsum. „Þeir [samkyn- hneigðir] standa alltaf með mér og ég mun alltaf standa með þeim,“ hefur hún sagt. Lady Gaga hefur vakið óskipta athygli fyrir hug- myndaauðgi sína þegar kemur að klæðaburði, förðun og hárgreiðslum og skyggir iðulega á allt og alla þar sem hún kemur fram. Það er órjúfanlegur hluti af „sjóinu“. Hún er með sveit hönnuða á bak við sig, Haus of Gaga, en betur fer á því að aðrir en sá sem hér heldur á penna leggi mat á áhrif Lady Gaga á tískuheiminn. Eða eins og Rob Fusari sagði eitt sinn við hana: „Ef þú verður í þessu geng ég ekki við hliðina á þér!“ Tónablóð Lady Gaga á Grammy-hátíðinni. Litrík að vanda. Reuters M arkmið hennar er einfalt: Hún ætlar að breyta popp- tónlist um aldur og ævi. Bæði sjónrænt og tónrænt. Hún hefur þegar selt meira en tíu milljónir platna um heim allan, 35 milljónir smáskífna og myndbönd hennar eru mest skoðuð í netheimum. Hún er fyrsti og eini tónlist- armaðurinn til að fá milljarð heimsókna á þeim vettvangi. Lady Gaga hefur brotist upp á yfirborðið af engu minni krafti en eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Maðurinn á bak við fyrirbrigðið Lady Gaga er að öðrum ólöstuðum upptökustjórinn Rob Fusari. Hann heyrði Stefani Germanotta (eins og hún var skírð) fyrst nefnda á nafn árið 2006. Vinur hans hringdi þá og bað hann að bjóða henni í hljóðver sitt í Parsippani, New Jer- sey, svo stúlkan gæti sýnt honum hvað hún hefði til brunns að bera. Það var samþykkt. Fusari kom að sækja hana á rútustöðina og leist ekkert á blikuna. „Ég var að vona að þetta væri ekki hún,“ rifjar Fusari upp en hann kom auga á hana gegnum rúðu. „Ég hafði skýra mynd af því í höfðinu hvernig hún liti út og þetta var ekki það útlit. Það var samt eitthvað við hana. Frá sjónarhóli tískunnar hafði hún ofið áratugunum saman. Hún var sjöundi áratugurinn uppmálaður en um leið undir miklum áhrifum frá þeim tíunda. Síðan kom hún út og ég hugsaði með mér: Þetta er glatað.“ Þrátt fyrir efasemdirnar fór Fusari með Germanotta í hljóðverið og bað hana að setjast við píanóið og gefa sér tóndæmi. „Eftir fimmtán sekúndur rann upp fyrir mér ljós. Það er komið að því. Líf mitt er í þann mund að breytast. Meðan hún spilaði flýtti ég mér að senda lögmanni mínum símaskilaboð: Mig vantar samning, strax!“ Fusari gerði sér þegar í stað grein fyrir því að hann væri með efni í stórstjörnu í höndunum. Hitt var annað mál: Í hvaða grein tónlistar- innar átti hann að láta hana bera niður? Fusari og Germanotta sömdu saman lagið Beautiful, Dirty, Rich, sem síðar fór á fyrstu breiðskífu Lady Gaga, og við það opnuðust all- ar flóðgáttir. Hún lék það m.a. fyrir útgefandann Joshua Sarubin. „Hún settist við píanóið og flutningurinn – söngurinn, líkamsbeit- ingin, textinn – var gjörólíkur öllu sem maður hafði áður heyrt og séð,“ segir Sarubin. „Manni krossbrá og gat ekki haft augun af henni. Hún var í brjálæðislegum hvítum mjaðmastígvélum og svört- um örkjól. Yfirlýsingin var einföld: Ég er kynþokkafull og mér er ná- kvæmlega sama hvað öllum finnst um það.“ Sarubin lagði nótt við dag til að greiða götu Lady Gaga og varð því fyrir gríðarlegum vonbrigðum þegar yfirmenn hans hjá Island Def Jam ákváðu að láta hana róa eftir einungis fáeina mánuði. Svo virðist sem Lady Gaga hafi verið of djörf fyrir útgáfuna. „Ég hefði viljað halda henni en eftir á að hyggja var ágætt að hún komst burt frá fólki sem botnaði ekkert í henni. Til þess var hún of góð.“ Gaga gramdist höfnunin og hótaði að gefa tónlistina upp á bátinn. Fusari stappaði hins vegar í hana stálinu og innan skamms reis Lady Gaga upp á afturlappirnar – djarfari en nokkru sinni. Fusari kynnti hana fyrir tónskáldinu RedOne og saman sömdu þau smellina Just Dance og Poker Face, sem komu Lady Gaga á kortið. Eftir nokkrar þreifingar kom Fusari henni á fund yfirmanns Int- erscope-útgáfunnar, hins virta Jimmys Iovines, sem meðal annars hefur unnið með Bruce Springsteen og John Lennon. Það er víst í eina skiptið sem Lady Gaga hefur verið orðlaus og feimin. Iovine var aftur á móti til í tuskið: „Látum á þetta reyna,“ mun hann hafa sagt að fundi loknum. Hann sér eflaust ekki eftir því. Þætti Robs Fusaris í ferli Lady Gaga var lokið. Hann hafði náð markmiði sínu – komið best geymda leyndarmálinu í poppheimum á framfæri. Að svo búnu dró hann sig glaður í hlé. Þeim Gaga er enn vel til vina og vonast til að vinna saman í framtíðinni en Fusari er meira en sáttur við að standa álengdar og horfa á flugeldasýninguna. „Þetta er eins og með Frankenstein. Þegar læknirinn hefur skapað ferlíkið fer það sína leið. Vitaskuld sakna ég hennar en um leið er ég ákaflega stoltur af árangrinum sem hún hefur náð.“ Lítið og krúttlegt eldgos Poppgyðjan Lady Gaga sigrar heiminn Lady Gaga í öllu sínu veldi á MTV-tónlistarhátíðinni. Reuters Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Í ljósi metnaðarins sem ein- kennir Lady Gaga mætti ætla að listamannsnafn hennar ætti sér djúpar rætur. Svo er ekki. Það er einfaldlega vísun í Queen-smellinn Radio Ga Ga. Þau Rob Fusari voru vön að syngja lagið á æfingum og í eitt skipti sendi hann henni sms-skilaboð, þar sem orðið Radio varð óvart Lady. Hann var fljótur að fá svar: Þetta er komið! Síðan hefur enginn mátt kalla hana Stefani. Nafnið tilbrigði við drottningu www.noatun.is Nóttin er nýjung í Nóatúni Hringbraut Austurver Grafarholt Nú er opið 24 tíma, 7 daga vikunnar í þremur verslunum Nóatúns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.