SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 49

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 49
28. mars 2010 49 Eins og fram kemur í spjalli við Ingi- björgu Hjartardóttur hér til hliðar streymdu vinnuhjú úr sveitum á mölina á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina og þá sérstaklega til Reykjavíkur; frá því erlendur her gekk á land í Reykjavík, 10. maí 1940, til 1950 fjölgaði íbúum bæjarins úr 38.000 í 56.000. Það varð því alvarlegur skortur á vinnuafli í sveitum þar sem búskaparlag var víða með frumstæðum hætti og því mannaflsfrekt. Búnaðarfélagið greip því til þess að senda blaðamennina Þor- stein Jósepsson og Jón Helgason til Lü- beck í Norður-Þýskalandi að auglýsa eft- ir verkafólki. Þetta tiltæki vakti nokkra athygli þar í borg og víðar í Þýskalandi og viðtöl birtust við þá í þarlendum blöð- um og fréttir. Þessi saga er rakin í Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. júní 1949, en þá birt- ist frétt af því er þýska verkafólkið kom hingað til lands. Í þeirri ferð komu 130 konur og 50 karlmenn, en í fréttinni er getið um það að umtalsvert fleiri karl- menn hafi sótt um að fá að koma hing- að en konur, en konur urðu þó í meiri- hluta, enda helst skortur á þeim í sveitirnar: „Gífurlegur fjöldi umsókna berst, um 2000 frá karlmönnum, en nokkru færri frá konum. Varð því að neita miklum meirihluta umsóknanna, því ráðin hafa verið alls um 300 hjú. Esja flutti í þess- ari ferð um 180, en síðar munu togarar flytja smátt og smátt um 120 manns, sem enn eru í Þýskalandi.“ Fólkið var á aldrinum 19–25 ára og samkvæmt frétt blaðsins leit það vel út þó það hafi skort nokkuð föt. Blaða- maður Morgunblaðsins ræddi við nokkra ferðalanganna sem flestir voru á því að þeir vildu setjast að og má nefna sem dæmi stúlkuna Ilse Wallmann frá Travemünde, úthverfi Lübeck, er ráðin var að Oddgeirshólum í Flóa. „Hún kvaðst hafa verið gift, en maður hennar látið lífið í styrjöldinni. Hún á eitt barn, er hún skildi eftir. Hana langar að setj- ast hjer að. Segir hún að ástæðan til komu hennar sje fjeleysi og slæmur að- búnaður.“ Síðar í fréttinni segir svo: „Fólkið trúir því, eftir dvölina á Esju, að á Íslandi muni verða gert vel til þess. Það langaði mikið til að fá sem greini- legastar frásagnir af því hvernig lífs skil- yrðin væru á Íslandi og ekki verður því neitað að sumar stúlkurnar langi til að kynnast íslenskum piltum.“ Kvikmyndin María eftir Einar Heim- isson, sem frumsýnd var í september 1997, byggðist meðal annars á frá- sögnum af örlögum verkafólksins. 130 konur og 50 karlmenn komu hingað til lands með Esjunni í júní 1949. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon „ ... ekki verður því neitað að sumar stúlkurnar langi til að kynnast íslenskum piltum“ Í húsi föður okkar eru margar vistarverur Enn um sinn munum við drekka morgunkaffið í sitthvoru herberginu ástin mín Enn um sinn Höfundur fæst við skriftir Ljóð Sigrún Erla Hákonardóttir frá þessu þýska verkafólki og bentum honum á bæi þar sem þýskar konur höfðu sest að. Þó hann muni vel eft- irstríðsárin í Þýskalandi og að þessi störf uppi á Íslandi hafi verið mikið auglýst í þýskum blöðum og útvarpi þá hafði hann ekki hugmynd um þessa sögu og fannst mikið til koma. Hann kom svo sérstaka ferð aftur til Íslands gagngert til að spjalla við þessar konur og safna efni í skáldsögu en hann hefur skrifað margar sögulegar skáldsögur.“ Þurfti að ná fjarlægðinni „Ég gerðist bílstjórinn hans, keyrði með hann til þessara kvenna, við hittum þrjár á Akureyri og eina í Aðaldalnum, svo eitthvað sé nefnt. Þegar hann var svo búinn að tala við nokkrar sagði hann aft- ur á móti: „Ég finn engan flöt á þessu, þetta eru alltsaman bara fátækar alþýðu- konur.“ Áður hafði hann skrifað um Go- ethe, Bruegel og Jesús Krist, svo einhver stórmenni séu nefnd. Þá sagði ég: Ef þú gerir þetta ekki, geri ég þetta sjálf og hann svaraði því til að ég mæti eiga þessa hugmynd, svo ég sat uppi með hana.“ Í fyrstu eftir að Ingibjörg tók við hug- myndinni gekk henni stirðlega að koma sögunni saman og það var eiginlega ekki fyrr en hún fór til þriðja landsins að allt small saman: „Fyrir tveimur árum fór ég til Indlands og var þar í þrjá mánuði og þá kom sagan, þá birtist aðalpersónan í sögunni hjá mér, einsetukona um áttrætt sem býr á nyrsta odda landsins með hundinum sínum. Ætli það hafi ekki ver- ið andstæðurnar í umhverfinu sem urðu til þess að hún birtist mér þar sem ég var stödd í þessari óskaplegu mannmergð og í hita – ég þurfti að ná fjarlægðinni.“ Í Hlustaranum segir Ingibjörg Hjartadóttir frá samskiptum Esjustelpu og BA-nema. Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.