SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 30
30 28. mars 2010 S pánverjar eru vanir þessu ástandi þannig að þeir kippa sér kannski ekkert mikið upp við það þótt þeir séu svartsýnir. Þeir líta þannig á að svona sé gangur lífsins. Það eru góðir tímar og slæmir tímar. Spánverjar höfðu það ekki eins gott og Íslendingar í góðærinu þó að það hafi verið góðæri hér,“ segir Kolbrún Rut Ragnarsdóttir mannfræðingur um afstöðu Spánverja til kreppunnar en hún hefur verið búsett í Barcelona í um tíu ára skeið ásamt manni sínum, Alexandre Ruiz, en saman eiga þau þrjá stráka, Mána Snæ Ruiz (7 ára), Alvar Áka Ruiz (5 ára) og Ívar Alexandre Ruiz (8 mánaða) – Hvað um atvinnuleysið? Er það áber- andi? „Já. Ég verð talsvert vör við það. Ég er sjálf í barneignarfríi og er því ekki á vinnu- markaði, líkt og maðurinn minn. Ég fæ þetta í gegnum hann. Það er 19% atvinnuleysi á Spáni og fólk er í rauninni fegið að halda í vinnuna sína. Margt af ungu fólki sem er að koma úr námi, eða fólk sem hefur verið á skammtímasamningum, hefur misst vinn- una, líkt og fólk í byggingarbransanum. Það er allt stopp þar. Þar var mikið af ófaglærðu fólki sem fær hvergi vinnu. Ég held að 40% af fólki sem er undir 25 ára sé atvinnulaust.“ Taka minni áhættu en áður – Skynjarðu svartsýni um framhaldið? „Já. Svolítið.“ – Hvernig birtist það? „Það birtist aðallega í því að fólk þorir ekki að hreyfa sig mikið heldur vill halda í vinnuna sem það er með, er ekki að biðja um launahækkun eða ætlast til of mikils. Það samþykkir aðstæður sem það hefði ekki gert áður, bæði hvað snertir vinnuálag og laun. Um daginn var til dæmis verið að tala um að unga fólkið hefði ekki sama metnað og það hafði til að byggja upp fyrirtæki og vinna sjálfstætt og áður, heldur vilji það frekar vinna hjá ríkinu og fá vinnu sem er örugg hvort sem það er kreppa eða ekki, jafnvel þó að hún sé illa launuð. Þegar ég fluttist hingað var góðærið byrj- að. Fólk hafði miklu meiri peninga á milli handanna. Það er greinilegur munur. Fólk er svartsýnt og heldur í það sem það á og hefur. Fólk var kannski opnara og bjartsýnna þá. Spánverjar eru vanir því að vera fátæk þjóð en mér finnst sem þeir hafi aldrei treyst á þetta góðæri í blindni. Þeir hafa alltaf haft varann á sér.“ Launin standa í stað – Hafa laun lækkað? „Þau hækka allavega ekki.“ – Hvað um fátæktina? Verðurðu meira vör við hana? „Já. Það er meira af fólki á götunni núna og meira um rán, vasaþjófnað, búðahnupl og svoleiðis. Það er bein afleiðing af kreppunni. Maður fór að finna fyrir þessu fyrir einu og hálfu ári.“ – Er kreppuumræðan fyrirferðarminni á Spáni en hér? „Já, miklu. Íslendingar eru vanir svo góðu. Það er ekki langt síðan Spánn var fátækt land. Ég held að rétt fyrir aldamótin hafi at- vinnuleysið verið svipað og það er í dag. Maðurinn minn er Katalóni og hann hálfhlær að því þegar Íslendingar eru alveg í rusli yfir því að atvinnuleysið sé 8-9%. Þegar best lét var 8% atvinnuleysi á Spáni. Ég nefni þetta sem dæmi um hvernig hugsunarhátturinn er hérna.“ Svartsýnir og sætta sig við lægri laun en áður Kolbrún Rut með Mána Snæ og Alvari Áka. Ljósmynd/Alexandre Ruiz É g hef verið að selja fasteignir hérna í tæp 13 ár og sýnist sem kreppan komi einkum fram í því að fólk kaupir minni og ódýrari eignir. Allar fasteignir hafa hækkað skuggalega mikið undanfarin ár en síðustu tvö ár hafa fasteignir lækkað um allt að 40%. Ég var líka að selja þegar pesetarnir voru í umferð þannig að ég geri mér alveg grein fyrir því hvað verðið hefur hækkað mikið,“ segir Ívar Hauksson, golf- kennari og fasteignasali, um reynslu sína af fasteignamarkaðnum. „Tökum dæmi. Hús sem ég seldi fyrir sjö árum á Campamor á 18 milljónir peseta, eða fyrir um 9 milljónir króna á þávirði, var að seljast á 230.000 evrur rétt fyrir byrjun kreppunnar eða á 38 milljónir peseta. Þetta er gríð- arleg hækkun á ekki lengri tíma.“ – Hvað um fasteignakaup Íslendinga? „Margir keyptu þegar evran var á genginu 54-75 krónur og þá var gós- entíð. Þegar maður leggur þetta á borðið fyrir fólk sem vill losna úr skuld- um er það gjarnan seint að átta sig á hvað það fær mikið fyrir krónuna ef það selur í dag. Það verður hissa þegar því er sýnt hvað það fær fyrir eign- irnar í krónum miðað við kaupverðið á sínum tíma. Því kemur á óvart hvað það getur selt á lágu verði en samt haft mikinn hag af kaupunum,“ segir Ív- ar og tekur annað dæmi. „Síðastliðið haust setti ég hús á lista hjá mér sem var verðmetið af banka á 156.000 evrur, eða svipað og sett var á húsin í kring. Ég sagði við konuna sem á húsið: „Lækkaðu verðið niður í 100.000 evrur.“ Hún sagði strax nei en þá bað ég hana að leyfa mér að útskýra það fyrir henni að þrátt fyrir að hún færi niður í þessa upphæð hefði hún 6,2 milljónir króna í hagnað. Þegar hún áttaði sig á því þá samþykkti hún það og lækkaði verðið niður í 100.000 evrur,“ segir Ívar sem telur aðspurður að á milli 25 og 30 Íslend- ingar hafi leitað til hans með eignir. Íslendingar vilja losna við evrulán Ívar Hauksson með sambýliskonu sinni Ana Moltó Pelegrin en saman eiga þau dæturnar Raquel og Melanie Ívarsdætur Moltó. Þau hafa verið saman í tíu ár. Sætta sig við lægri laun Regnhlífin hefur komið sér í góðar þarfir í höfuðborg Katalóníu í ár. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Það er víðar en á Ís- landi sem Íslendingar ganga í gegnum kreppu. Sunnudags- mogginn sló á þráðinn til fjögurra Íslendinga sem hafa hreiðrað um sig á Spáni og Írlandi. Baldur Arnarson baldura@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.