SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 42
42 28. mars 2010 Þ egar byltingin sem kennd er við fjölsalabíóin, gjörbreytti kvikmyndahúsaumhverfinu, var ljóst að sætaframboðið ykist til muna. Bíó sem var illmögulegt að stækka, hrukku upp fyrir, þau sem voru betur búin til að aðlag- ast nýjum kröfum, blésu út. Afleiðingin nýtt og aukið sæta- og ekki síður salaframboð. Gömlu bíóin fengu andlitslyftingu, marg- falt betri sæti og aðkomu. Sem dæmi má nefna að óbreyttur Stóri salurinn (sá gamli, góði) í Háskólabíói, var í mínum huga hinn fullkomni sýningarsalur. Nú er búið að dekra svo við mann að á dögunum stóð ég upp hálflerkaður úr gömlum sætum hans eftir að hafa setið í fyrrverandi Mekka bíófíkilsins. Það er önnur saga. Vandamálið sem blasti við bíóstjórum eftir aukninguna, var að nýta þetta mikla sæta- og salaframboð. Sem skákaði eftirspurninni á hefðbundnar kvikmyndasýningar með tímanum. Óperan og leikhúsið koma til skjalanna SAM-bíóin riðu á vaðið með að útvíkka notkunargildi nýju kvik- myndahúsanna, en bíóin þeirra bjóða upp á 9 eða 10, vel búna sali. Einum var fljótlega breytt í VIP-sal, lúxussal með leðursófum sem er hægt að stilla margvíslega, jafnvel skjóta út fótskemlum. Og drekka með ómælt gos í boði hússins, sama er uppi á teningnum hvað varðar hið ómissandi popp. Sena er með hliðstæðan sal í Smárabíói. Fljótlega datt einhverjum góðum manni í hug að sýna á bíótjaldi beinar útsendingar af fótboltaleikjum og voru undirtektirnar miklu betri en reiknað var með. Boltinn fór að rúlla, á síðasta ári fengu SAM-bíóin þá snjöllu hugmynd að gera samning við Met- ropolitan í New York og sýna beinar útsendingar í hágæðum frá þessari frægu óperu. Óperuhúsið hóf þessa nýjung fyrir fáeinum árum og hefur hún slegið í gegn í öllum heimshornum. Svipaðan samning gerðu Sambíóin síðan við The National Theatre í London og hefur aðsóknin að verkum þess verið hliðstæð. Flestar sýningarnar eru á laugardögum kl. 18 að íslenskum tíma og fara fram í SAM-bíóunum Kringlunni. Meðal sýninga sem ver- ið hafa á dagskrá fyrsta sýningarársins eru Tosca, Aida, Turandot, Les Contes D’Hoffmann, Der Rosenkavalier, Carmen, Simon Boccanegra. Hamlet verður sýndur í dag, laugardaginn 27. mars, og Armida, laugardaginn 1. maí nk. Landinn hefur tekið fagnandi þessari skemmtilegu nýjung og nauðsynlegt reyndist að bæta við aukasýningum á nokkur verk- anna. Mesta aðsókn hlaut Tosca, sem var sótt af um 2.000 óperu- unnendum George Gagnidze í hlutverki Scarpia í óperu Giacomo Puccinis, Tosca, í Metropolitan-óperunni. AP Bíóin breytast í óperu- og leikhús Sæbjörn Valdimarsson Föstudagurinn langi (RÚV) 02.04. kl. 21:40. 9 Óskarsverðlaun, m.a. sem besta myndin og fyrir leikstjórn (frumraun Minghellas). Uppblásin sápuópera um dauðvona, skað- brendan hermann, sem segir hjúkrunarkonu (Binoche), dapurlega ástarsögu sína , og konu (Scott-Thomas), sem gift var félaga hans í herþjónustunni. Sláandi myndatökur í eyðimörkinni og ítalskt klaustur skapa eft- irminnilegan ramma í kringum tilfinningaríka upprifjun atburðanna. Þau Fiennes í aðal- hlutverkinu, og Juliette Bonoche sem hjúkr- unarkonan, eru bæði óaðfinnanleg. Þriggja klúta mynd. Leikstjóri er Anthony Minghella. Aðalleik- arar: Ralph Fiennes, Juliette Binoche, Wil- lem Dafoe, Kristin Scott Thomas. Bandarík- in 1996 . bbbb The English Patient – Enski sjúklingurinn Sunnudagur 28.03. (RUV) kl. 21.20 Draugamyndir eru oftar en ekki heldur ómerkilegar, áhorfandinn beittur ódýrum brögðum þar sem draumfarir koma gjarnan við sögu og núna í seinni tíð, tölvuunnar of- urbrellur. El Orfanato er gott dæmi um hið gagnstæða; „vitræna draugamynd“, ef svo má að orði komast. Hún tekur oft og óþyrmi- lega á taugakerfinu en atburðarásin er óvenjuþétt og lúrir á köflum þar sem finna má skýringar á reimleikunum sem angra per- sónurnar og myndinni lýkur mjög ásætt- anlega samkvæmt þeirri röksemdafærslu. Einn framleiðandinn er Mexíkóinn Guillermo del Toro, gæðaleikstjóri og framleiðandi (El laberinto del fauno). Bayona leikstjóri heldur vel á spöðunum, eitt atriðið, bílslys í snævi þöktum smábæ, er sérlega vel sviðsett, brellur og leikhljóð yndislega óhugnanleg og ánægjulegt að sjá Geraldine Chaplin í litlu en mikilvægu hlutverki miðilsins. Leikstjóri: Juan Antonio Bayona. Aðalleik- arar: Belén Rueda, Fernando Cayo, Roger Príncep. 100 mín. Spánn/Mexíkó 2007. bbbb Myndir vikunnar í sjónvarpi El Orfanato – Mun- aðarleysingjahælið Kvikmyndir Fyrsta beina, hágæðaútsendingin frá Metropolitan-óperunni á næsta sýning- artímabili (því fimmta í röðinni), verður 9. október, og verður þá búið að núm- era öll sætin svo viðskiptavinir geta gengið að sínu sæti vissu með því að panta það fyrirfram eins og í alvöru- leikhúsi. Það er óneitanlega spennandi og ánægjuleg sjón að renna yfir verk- efnaskrána 2010-11: 9.10 Wagner: Das Rheingold James Levine; Wendy Bryn Harmer, Stephanie Blythe. 23.10 Mussorgsky: Boris Godunov Valery Gergiev; Ekaterina Semenchuk, Aleksandrs Antonenko. 13.11 Donizetti: Don Pasquale James Levine; Anna Netrebko, Matthew Polenzani. 11.12 Verdi: Don Carlo Yannick Nézet-Séguin; Marina Pop- lavskaya, Anna Smirnova, Roberto Alagna. 8.01 Puccini: La Fanciulla Del West Nicola Luisotti; Deborah Voigt, Marcello Giordani, Juha Uusitalo 26.02 Gluck: Iphigénie en Tauride Patrick Summers; Susan Graham, Plá- cido Domingo, Paul Groves. 19.03 Donizetti: Lucia di Lammermoor Patrick Summers; Natalie Dessay, Jo- seph Calleja, Ludovic Tézier, 9.04 Rossini: Le Comte Ory Maurizio Benini; Diana Damrau, Joyce DiDonato, Susanne Resmark, Juan Diego Flórez, Stéphane Degout, Michele Pertusi 23.04 Strauss: Capriccio Andrew Davis; Renée Fleming, Sarah Connolly, Joseph Kaiser. 30.04 Verdi: Il Trovatore James Levine; Sondra Radvanovsky, Dolora Zajick, Marcelo Álvarez. 14.05 Wagner: Die Walküre James Levine; Deborah Voigt, Eva Maria Westbroek. Dagskrá National Theatre 2010-11, verður kynnt við tækifæri Nýjungar næsta sýningarár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.