SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 42
42 28. mars 2010
Þ
egar byltingin sem kennd er við fjölsalabíóin, gjörbreytti
kvikmyndahúsaumhverfinu, var ljóst að sætaframboðið
ykist til muna. Bíó sem var illmögulegt að stækka,
hrukku upp fyrir, þau sem voru betur búin til að aðlag-
ast nýjum kröfum, blésu út. Afleiðingin nýtt og aukið sæta- og
ekki síður salaframboð. Gömlu bíóin fengu andlitslyftingu, marg-
falt betri sæti og aðkomu. Sem dæmi má nefna að óbreyttur Stóri
salurinn (sá gamli, góði) í Háskólabíói, var í mínum huga hinn
fullkomni sýningarsalur. Nú er búið að dekra svo við mann að á
dögunum stóð ég upp hálflerkaður úr gömlum sætum hans eftir
að hafa setið í fyrrverandi Mekka bíófíkilsins.
Það er önnur saga. Vandamálið sem blasti við bíóstjórum eftir
aukninguna, var að nýta þetta mikla sæta- og salaframboð. Sem
skákaði eftirspurninni á hefðbundnar kvikmyndasýningar með
tímanum.
Óperan og leikhúsið koma til skjalanna
SAM-bíóin riðu á vaðið með að útvíkka notkunargildi nýju kvik-
myndahúsanna, en bíóin þeirra bjóða upp á 9 eða 10, vel búna sali.
Einum var fljótlega breytt í VIP-sal, lúxussal með leðursófum sem
er hægt að stilla margvíslega, jafnvel skjóta út fótskemlum. Og
drekka með ómælt gos í boði hússins, sama er uppi á teningnum
hvað varðar hið ómissandi popp. Sena er með hliðstæðan sal í
Smárabíói.
Fljótlega datt einhverjum góðum manni í hug að sýna á bíótjaldi
beinar útsendingar af fótboltaleikjum og voru undirtektirnar
miklu betri en reiknað var með. Boltinn fór að rúlla, á síðasta ári
fengu SAM-bíóin þá snjöllu hugmynd að gera samning við Met-
ropolitan í New York og sýna beinar útsendingar í hágæðum frá
þessari frægu óperu. Óperuhúsið hóf þessa nýjung fyrir fáeinum
árum og hefur hún slegið í gegn í öllum heimshornum. Svipaðan
samning gerðu Sambíóin síðan við The National Theatre í London
og hefur aðsóknin að verkum þess verið hliðstæð.
Flestar sýningarnar eru á laugardögum kl. 18 að íslenskum tíma
og fara fram í SAM-bíóunum Kringlunni. Meðal sýninga sem ver-
ið hafa á dagskrá fyrsta sýningarársins eru Tosca, Aida, Turandot,
Les Contes D’Hoffmann, Der Rosenkavalier, Carmen, Simon
Boccanegra.
Hamlet verður sýndur í dag, laugardaginn 27. mars, og Armida,
laugardaginn 1. maí nk.
Landinn hefur tekið fagnandi þessari skemmtilegu nýjung og
nauðsynlegt reyndist að bæta við aukasýningum á nokkur verk-
anna. Mesta aðsókn hlaut Tosca, sem var sótt af um 2.000 óperu-
unnendum
George Gagnidze í hlutverki Scarpia í óperu Giacomo Puccinis, Tosca, í Metropolitan-óperunni.
AP
Bíóin breytast í
óperu- og leikhús
Sæbjörn Valdimarsson
Föstudagurinn langi (RÚV) 02.04.
kl. 21:40.
9 Óskarsverðlaun, m.a. sem besta myndin
og fyrir leikstjórn (frumraun Minghellas).
Uppblásin sápuópera um dauðvona, skað-
brendan hermann, sem segir hjúkrunarkonu
(Binoche), dapurlega ástarsögu sína , og
konu (Scott-Thomas), sem gift var félaga
hans í herþjónustunni. Sláandi myndatökur í
eyðimörkinni og ítalskt klaustur skapa eft-
irminnilegan ramma í kringum tilfinningaríka
upprifjun atburðanna. Þau Fiennes í aðal-
hlutverkinu, og Juliette Bonoche sem hjúkr-
unarkonan, eru bæði óaðfinnanleg. Þriggja
klúta mynd.
Leikstjóri er Anthony Minghella. Aðalleik-
arar: Ralph Fiennes, Juliette Binoche, Wil-
lem Dafoe, Kristin Scott Thomas. Bandarík-
in 1996 . bbbb
The English
Patient – Enski
sjúklingurinn
Sunnudagur 28.03. (RUV) kl. 21.20
Draugamyndir eru oftar en ekki heldur
ómerkilegar, áhorfandinn beittur ódýrum
brögðum þar sem draumfarir koma gjarnan
við sögu og núna í seinni tíð, tölvuunnar of-
urbrellur. El Orfanato er gott dæmi um hið
gagnstæða; „vitræna draugamynd“, ef svo
má að orði komast. Hún tekur oft og óþyrmi-
lega á taugakerfinu en atburðarásin er
óvenjuþétt og lúrir á köflum þar sem finna
má skýringar á reimleikunum sem angra per-
sónurnar og myndinni lýkur mjög ásætt-
anlega samkvæmt þeirri röksemdafærslu.
Einn framleiðandinn er Mexíkóinn Guillermo
del Toro, gæðaleikstjóri og framleiðandi (El
laberinto del fauno). Bayona leikstjóri heldur
vel á spöðunum, eitt atriðið, bílslys í snævi
þöktum smábæ, er sérlega vel sviðsett,
brellur og leikhljóð yndislega óhugnanleg og
ánægjulegt að sjá Geraldine Chaplin í litlu
en mikilvægu hlutverki miðilsins.
Leikstjóri: Juan Antonio Bayona. Aðalleik-
arar: Belén Rueda, Fernando Cayo, Roger
Príncep. 100 mín. Spánn/Mexíkó 2007.
bbbb
Myndir vikunnar í sjónvarpi
El Orfanato – Mun-
aðarleysingjahælið
Kvikmyndir
Fyrsta beina, hágæðaútsendingin frá
Metropolitan-óperunni á næsta sýning-
artímabili (því fimmta í röðinni), verður
9. október, og verður þá búið að núm-
era öll sætin svo viðskiptavinir geta
gengið að sínu sæti vissu með því að
panta það fyrirfram eins og í alvöru-
leikhúsi.
Það er óneitanlega spennandi og
ánægjuleg sjón að renna yfir verk-
efnaskrána 2010-11:
9.10
Wagner: Das Rheingold
James Levine; Wendy Bryn Harmer,
Stephanie Blythe.
23.10
Mussorgsky: Boris Godunov
Valery Gergiev; Ekaterina Semenchuk,
Aleksandrs Antonenko.
13.11
Donizetti: Don Pasquale
James Levine; Anna Netrebko, Matthew
Polenzani.
11.12
Verdi: Don Carlo
Yannick Nézet-Séguin; Marina Pop-
lavskaya, Anna Smirnova, Roberto
Alagna.
8.01
Puccini: La Fanciulla Del West
Nicola Luisotti; Deborah Voigt, Marcello
Giordani, Juha Uusitalo
26.02
Gluck: Iphigénie en Tauride
Patrick Summers; Susan Graham, Plá-
cido Domingo, Paul Groves.
19.03
Donizetti: Lucia di Lammermoor
Patrick Summers; Natalie Dessay, Jo-
seph Calleja, Ludovic Tézier,
9.04
Rossini: Le Comte Ory
Maurizio Benini; Diana Damrau, Joyce
DiDonato, Susanne Resmark, Juan
Diego Flórez, Stéphane Degout, Michele
Pertusi
23.04
Strauss: Capriccio
Andrew Davis; Renée Fleming, Sarah
Connolly, Joseph Kaiser.
30.04
Verdi: Il Trovatore
James Levine; Sondra Radvanovsky,
Dolora Zajick, Marcelo Álvarez.
14.05
Wagner: Die Walküre
James Levine; Deborah Voigt, Eva Maria
Westbroek.
Dagskrá National Theatre 2010-11,
verður kynnt við tækifæri
Nýjungar næsta sýningarár