SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 33
28. mars 2010 33 F yrir meira en fjörutíu árum sá ég í dönsku blaði smælki þar sem gert var góðlátlegt grín að nágrannaþjóðunum og þar mátti lesa eftirfarandi klausu: „Íslendingar hafa ákveðið að fylgja fordæmi Svía og taka upp hægri um- ferð. En Íslendingar ætla að framkvæma þessa breytingu í áföng- um: Byrja á trukkunum!“ Einhverra hluta vegna kemur þessi danska skrítla mér í hug þegar ég horfi á það sem er að gerast í ís- lensku samfélagi nú. Það er eins og gengið sé út frá því að regl- urnar nái ekki til allra, að eitt gangi ekki yfir alla. Hagsmunir fjár- magnsins hafa forgang. Nú er það svo með umferðarlög og reglur að þær hafa almennt gildi og ná til allra vegfarenda. Hver sá sem fer um götur og stræti verður að geta treyst því. Skilti og merkingar minna á boð og bönn til að greiða fyrir umferð og afstýra árekstrum og slysum. Hversu margar sem umferðarreglur eru þá er víst að allar eru þær bornar uppi af einni frumreglu sem öllum er ætluð, hvert svo sem farartækið er og ferðamátinn. Sem er: Sýnið tillitssemi, aðgát með tilliti til aðstæðna og annarra vegfarenda. Gildir ekki hið sama um siðgæði mannlegra samskipta og samfélagsins yfirleitt? Í umferðinni vitum við að lögreglan er hugsanlega á næsta leiti og maður getur átt á hættu að vera gripinn sé ekið of greitt eða með öðrum hætti brotið gegn umferðarreglunum. Að baki umferð- arlögum og reglum er vald samfélagsins til að framfylgja þeim og refsa þeim sem þau brjóta. En hvað með umferðarreglur lífsins, siðaboð og almenn viðmið samfélagsins? Hvaða vald er á bak við það? Allir telja sig þrá frið, og þó er ófriður hvert sem litið er. Átök og illdeilur í stjórnmálum, átök á vinnustöðum, óeining og deilur milli hjóna og milli foreldra og barna, ósætti systkina veldur upp- lausn, þjáningum og verður einatt tilefni ofbeldis og voðaverka. Einelti er vandamál víða í skólum og á vinnustöðum, skemmd- averk af ýmsu tagi, svo sem veggjakrot og rúðubrot er alvarlegt vandamál og spilla samfélaginu. Agaleysi barna og unglinga þykir mikið hér á landi, skrílmenn- ing með tilheyrandi drykkju og afskiptaleysi foreldra og sam- félagsins yfirleitt, hefur hvað eftir annað orðið viðfangsefni er- lendra fjölmiðla. Hér hefur viðkvæðið og frumreglan um langan aldur verið: „Ég er á móti boðum og bönnum.“ Ekki vantar samt vandlætingasemi skoðanamótendanna, siðavendni fjölmiðlanna sem umsvifalaust afhjúpa þau sem ekki standast þær kröfur sem almenningsálitið setur þeim, og dæmir út í ystu myrkur og þá er enga miskunn að finna. En hver eru viðmiðin og hvaðan eru þau runnin? Við höfum horft upp á hrun í íslensku samfélagi, hamfarir af manna völdum. Við horfðum upp á það hvernig sjálfsánægjan, sjálfsréttlætingin, agaleysið og oftraustið varð okkur að falli. Fullvissan um eigin yfirburði, siðgæðislega, trúarlega, menning- arlega yfirburði hefur oft leitt þjóðir í ógöngur, og valdið hruni siðmenninga. Við höfum lent í ógöngum. Ummæli Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar um skálmöld sinna tíma eiga vel við það sem hér gerðist:„Lifði hver sem lysti en engi þorði um að vanda né satt að mæla.“ Gróðafíkn og ágirnd var leidd til öndvegis sem aflvaki góðra hluta. Hin „tæra snilld“ ís- lenskra athafnamanna, áhættusækni og ofsaakstur á markaðnum dró samfélagið allt niður með sér. Stjórnvöld brugðust aug- ljóslega. Enda hafði sannarlega verið slakað á öllum hömlum og viðnámi í löggjöf og eftirliti. Trukkarnir nutu forgangs, svo vísað sé til dönsku skrítlunnar. Þeim erlendum sérfræðingum og fjöl- miðlum sem höfðu uppi varnaðarorð um íslenskt efnahagslíf sendu íslenskir ráðamenn tóninn. Þeim innlendu vökumönnum sem vöruðu við var iðulega mætt með yfirlæti og gert lítið úr kunnáttu þeirra og skynsemi: „Þetta eru bara klisjur“ var við- kvæðið. Ofdrambið varð okkur að falli, trúin á Mammon varð okkur að falli. „Oftraustið er oft að meini, um það sagan vitni ber.“ Það stað- festir reynsla kynslóðanna. Og hvað það varðar þá gildir viðvörun postulans: „Sá er hyggst standa, gæti því vel að sér að hann falli ekki.“ (1.Kor. 10.12) Nú ríður á að við stöndum í fæturna, að við festumst ekki í fortíðinni heldur vinnum úr reynslunni til góðs fyrir samfélag okkar, þjóð og land til framtíðar. Styrkja þarf stofnanir og setja reglur til að tryggja eftirlit, svo efla megi traust og koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. En ekki er síður mik- ilvægt að vinna að aukinni siðvitund, sjálfsaga, heilindum og heiðarleika í samfélaginu. Án slíks duga nefnilega engar reglur eða eftirlitsstofnanir, hversu vel til er vandað. Gildi, siðæði, boð og breytni Hugvekja Karl Sigurbjörnsson I: „Ég er á móti boðum og bönnum“ gunnur, „hún fór alltaf á undan og ég sigldi í kjölfarið.“ Stöllurnar eru með vinnustofu við Seljaveg og eru þar í samfélagi við aðra listamenn sem vinna í nágrenninu. Þær eru nýbúnar að fá sendar nokkrar mynd- ir eftir Benedikt Gröndal af íslenskum fuglum, en til stendur að gefa út bók hans Íslenzkir fuglar í haust og er það sami hópur og stóð að Flora Islandica sem stendur að þessari útgáfu. Það er því nóg að gera og ýmis verkefni á döfinni. Snæfríð og Hildigunnur segja óvenjumörg bókaverkefni liggja fyrir og svo hafa þær verið að vinna ýmis önnur verkefni, til dæmis dagatöl og skemmti- legt „post-it’“ veggverk sem stendur til að setja í framleiðslu bráðlega. „Við erum búnar að vera í þessu svo lengi, það er kannski erfiðara fyrir þá sem eru að koma út á markaðinn í dag að fóta sig. En á hinn bóginn held ég að það séu mörg tækifæri í dag sem ekki voru áður. Til dæmis var það að selja erlendis nánast ógerningur, það var svo dýrt. Í það minnsta er komin glóra í að skoða það núna, út af genginu,“ segir Snæfríð, „já, já, það er meira en nóg að gera hjá okkur. Öll svona samvinna er líka mjög skemmtileg og sérstaklega eins og með Flóruna, að allir skuli hafa verið svona samstiga.“ Þær segja líka skipta miklu máli að vinna að fjölbreyttum verkefnum, þann- ig séu þær líka alltaf að læra eitthvað nýtt. Það er bjartsýnistónn í þeim þegar þær tala um íslenska hönnun og þær minnast á alla þá frumkvöðlastarfsemi sem eigi sér stað mitt í kreppunni og at- vinnuleysinu. „Það þarf að hlúa að þessum krafti sem er þarna úti,“ segir Hildigunnur. Og Snæfríð tekur við, „þetta er mjög lær- dómsríkt tímabil. Við þurfum að koma íslenskri hönnun á næsta stig, varðandi framleiðslu og dreifingu og setja hana í stærra samhengi. Hugsa út fyrir ramm- ann og hugsa út fyrir Ísland. Það er ekk- ert sjálfgefið að þessi kraftur sé til stað- ar.“ Bókin er 560 síður og heil 12 kíló. Eggert teiknaði 270 háplöntur íslenskrar flóru og eru myndirnar bæði nákvæmar og fallegar. ’ Það er líka voða gaman að upp- skera þetta af því að það er ekk- ert sjálfgefið að fara út í svona útgáfu. Það þarf bæði metnað og hug- sjón og þess vegna er svo gaman að uppskera. Af því líka að það hefur ver- ið svo mikil væntumþykja í kringum þennan grip og allt þetta ferli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.