SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Blaðsíða 23
28. mars 2010 23
M
iðvikudagur og lífið gengur sinn gang rétt
vestan við London í Englandi; knatt-
spyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson
gerði sigurmark Reading kvöldið áður og er
vel úthvíldur þegar hann svarar í símann um hádegisbil.
„Maður sofnar seint eftir kvöldleiki og það er mikilvægt
að hvíla sig vel,“ segir hann, syfjulegur en glaður.
Þetta var eftir rimmu við QPR fyrir hálfri annarri viku.
Enn er óhætt að vitna í Stein Steinarr í upphafi grein-
arinnar því Gylfi gerði nefnilega aftur sigurmark í vik-
unni sem er að líða og það meira að segja á miðvikudags-
kvöldi. Í fyrri leiknum gerði Gylfi sigurmarkið úr víti
þegar fimm mínútur voru eftir, í þeim seinni, gegn Leic-
ester City á útivelli, á lokamínútunni!
Þetta er fyrsti veturinn sem Gylfi Þór fær að spreyta sig
að ráði með aðalliðinu og greip tækifærið. Hann er
markahæstur leikmanna Reading; hefur gert 14 mörk, 10
í deild og fjögur í bikarkeppninni.
Gylfi, sem er samningsbundinn Reading til vors 2012,
var lánaður til Shrewsbury í hitteðfyrra og Crewe í fyrra
til þess að öðlast reynslu, eins og algengt er með unga
leikmenn, og segir það hafa gert sér mjög gott. Hjá Crewe
lék hann undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar.
Fjórir Íslendingar eru nú á mála hjá Reading; Ívar Ingi-
marsson og Brynjar Björn Gunnarsson, auk Gylfa, og
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem var í vetur lánaður til
félagsins frá Esbjerg í Danmörku.
Gylfi er uppalinn í FH en gekk til liðs við Breiðablik
þegar hann var í 3. flokki og varð Íslandsmeistari með
Kópavogsliðinu í þeim aldursflokki 2005. Sumarið eftir
10. bekk grunnskóla hélt hann síðan utan á vit ævintýr-
anna.
Hvernig kom það til að þú fórst út svona snemma?
„Njósnarar frá Reading sáu mig spila með 16 ára lands-
liðinu og mér var boðið út til reynslu. Fór nokkrum sinn-
um og svo buðu þeir mér samning. Ég gat ekki neitað
honum því það hafði verið draumur minn að komast í at-
vinnumennsku; að gera ekki annað en æfa og spila fót-
bolta.“
Gekk þér strax vel?
„Já, það má segja það. Ég byrjaði í unglingaliðinu, þar
sem eru 16 ára og yngri, en var færður upp í 18-ára liðið
eftir nokkra mánuði. Þar var ég í tvö ár og komst þá í
varaliðið.“
Var ekkert mál að fara svona ungur út?
„Nei, það var ekki mikið mál. Ég var að vísu einn í þrjá
eða fjóra mánuði en mamma og pabbi komu út til mín
eftir jól og það var mjög mikilvægt. Það var bara eins og
að vera heima; mamma eldaði þannig að maður fékk allt-
af gott að borða. Þau voru hjá mér alveg þar til á síðasta
keppnistímabili. Nú er ég kominn með mitt eigið hús en
þau eru bæði töluvert hér úti hjá mér og reyna að sjá eins
marga leiki og þau geta.“
Var mikil breyting að koma til Reading að heiman?
„Aðalmálið var að geta æft á grasi allt árið með góðum
leikmönnum. Þegar maður æfir við þær aðstæður frá 15
ára aldri, undir stjórn toppþjálfara, þroskast maður auð-
vitað mikið. Ég hef því bætt mig gríðarlega mikið síðan
ég kom út.“
Þetta keppnistímabil hefur verið ævintýri líkast hjá
þér, ekki satt?
„Jú, algjört ævintýri, ekki síst bikarleikirnir á móti
Liverpool og Aston Villa, þó svo við höfum ekki náð að
spila nógu vel í seinni hálfleik gegn Villa og dottið út. Við
vorum bara einum hálfleik frá því að komast í undan-
úrslitaleik á Wembley.“
Gerðirðu þér vonir um að fá að spila svona mikið í
vetur?
„Nei. Þetta er fyrsta tímabilið mitt í liðinu og mér hefur
gengið framar vonum. Ég átti von á því að verða mest á
bekknum en spila einn og einn leik. Liðið byrjaði hins
vegar mjög illa í haust og ég fékk fljótlega tækifæri, í leik
gegn Sheffield United, og hef spilað flesta leiki síðan. Við
höfum náð að rétta úr kútnum eftir áramót og erum að
komast upp undir miðja deild. Við erum búnir að vinna
níu af síðustu ellefu leikjum í deildinni og erum á fínni
siglingu.“
Mörgum er eftirminnilegt þegar þú jafnaðir bik-
arleikinn gegn Liverpool á Anfield úr víti á síðustu sek-
úndunum. Þú virkaður alveg sallarólegur …
„Já, ég hugsaði ekki um neitt annað en að skora. Það
var ekki fyrr en eftir á að ég sem ég hugleiddi að auðvitað
var gríðarleg pressa á mér. Ef ég hefði ekki skorað hefð-
um við dottið út úr bikarnum.“
Ertu sterkur andlega?
„Mér finnst það, já. Þegar ég var í 18-ára liðinu hjá
Reading unnum við dálítið með sálfræðingi og ég næ al-
veg að loka á allt utanaðkomandi á augnablikum eins og
þegar ég tók vítið á móti Liverpool. Ég hef tekið mörg víti
í gegnum tíðina og held því bara áfram.“
Er þetta minnisstæðasta markið þitt í vetur?
„Já, og markið á móti West Bromwich Albion, líka í
bikarkeppninni, þar sem ég skoraði í framlengingu. Ætli
það hafi ekki verið flottasta markið mitt í vetur; ég var
með boltann fyrir utan teig og skrúfaði hann efst í fjær-
hornið. Það var mjög mikilvægt mark.“
Ertu í draumastarfinu?
„Ég lít eiginlega ekki á þetta sem vinnu! Það skemmti-
legasta sem ég geri er að spila fótbolta, mig hefur alltaf
langað að gera það og get því að minnsta kosti ekki
kvartað yfir neinu.“
Dagblaðið Guardian hélt því fram um daginn að þú
værir besti spyrnumaðurinn á Englandi, þegar kæmi að
hornspyrnu og aukaspyrnum. Hvað fannst þér um það?
„Ég vissi ekki af þessu fyrr en vinur minn sá það á net-
inu og sendi mér. Ég hló nú bara! Það er auðvitað gaman
að fá svona umfjöllun en maður má ekki trúa öllu sem
blaðamenn skrifa um mann, hvort sem það er gott eða
slæmt. En ég æfi mikið aukaspyrnur, horn og víti fyrir
leiki; veit að við gætum unnið leik á einni slíkri spyrnu
þannig að það er mikilvægt. Ég hef reyndar æft þessi at-
riði mjög vel alveg síðan ég var 10 eða 11 ára.“
Hverjar eru þínar sterkustu hliðar sem leikmanns?
„Að búa til og skora mörk. Það er mitt starf; ég á að
leika framarlega á miðjunni.“
Þú hefur ekki verið valinn í A-landsliðið ennþá. Þú
stefnir væntanlega á að komast þangað.
„Já, auðvitað. Ég var ekki ósáttur við að vera ekki í
hópnum á móti Kýpur um daginn því ég hefði ekki viljað
missa af mikilvæga leiknum gegn Þjóðverjum sem var
sama kvöld. Ég fór til Þýskalands en var reyndar tæpur í
ökkla og spilaði ekki. Ef ég er ekki nógu góður í A-lands-
liðið er ég ekki valinn en ég stefni að því að komast þang-
að.“
Hvert var uppáhaldsliðið þitt í Englandi áður en þú
fórst út?
„Það var – og er ennþá – Manchester United. Mér
leiddist því ekki að skora á móti Liverpool á Anfield!“
Sögusagnir hafa verið á kreiki um að lið í úrvals-
deildinni hafi verið að fylgjast með þér. Ertu eitthvað að
hugsa um hvað þú gerir í framtíðinni?
„Það eina sem hugsa um núna er leikurinn á laugar-
daginn. Auðvitað vil ég spila í úrvalsdeildinni með ein-
hverju af bestu liðunum en ég veit ekkert hvað gerist. Nú
eru tveir mánuðir eftir af keppnistímabilinu og það er
langur tími í fótbolta. Ég er ánægður hér, fæ að spila í
hverri viku, sem skiptir mestu máli, og hugsa ekki um
neitt annað í augnablikinu. En sjálfsagt yrði erfitt að segja
nei við úrvalsdeildarlið.“
Gylfi í bikarleiknum gegn Liverpool á Anfield með varnarjaxlinn Jamie Carragher á hælunum.
Reddar
Reading
Gylfi Þór Sigurðsson er aðeins
tvítugur en hefur heldur betur
slegið í gegn með Reading í
ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í vetur. Lið í efstu
deild eru sögð renna til hans
hýru augu en markahæsti
maður Reading einbeitir sér
að verkefni dagsins.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
AFP
„Þjálfarar hér hjá félaginu hafa vitað alveg síðan Gylfi
kom hvað í honum bjó. Við vissum að hann yrði mjög
góður leikmaður en yrði að fá tíma til að þroskast og
styrkjast; vorum þolinmóðir og nú er starfið að bera
ávöxt. Gylfi er að blómstra,“ sagði Brian McDermott,
knattspyrnustjóri Reading, þegar Morgunblaðið spurði
hann út í Gylfa Þór Sigurðsson. „Gylfi er drengur góður;
mjög hæfileikaríkur, sterkur bæði líkamlega og andlega
og hugsar vel um sjálfan sig. Hann er samviskusamur
og afar góður atvinnumaður. Hann lætur ekkert slá sig
út af laginu,“ sagði McDermott og vísaði m.a. til víta-
spyrnunnar sem Gylfi skoraði úr gegn Liverpool á An-
field fyrr í vetur á ögurstundu og sigurmarksins í vikunni.
Vissum að hann
yrði mjög góður